Vikan framundan
- Í dag birta Reitir uppgjör.
- Á morgun birtir Hagstofan veltu út frá VSK-skýrslum. Eimskip og Nova klúbburinn birta uppgjör.
- Á miðvikudag birta Iceland Seafood og Sýn uppgjör.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgumælingu ágústmánaðar. Við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%. Hagstofan birtir einnig gögn um vöru- og þjónustujöfnuð og gistinætur. Brim, Hampiðjan, Heimar og Síldarvinnslan birta uppgjör.
- Á föstudag birtir Ísfélagið uppgjör.
Mynd vikunnar
Fjöldi starfandi á íslenskum vinnumarkaði breyttist lítið á milli ára í júní og dróst saman um 0,2%. Nokkuð ólík þróun er þó á milli almenna markaðarins þar sem starfandi fækkaði um 1,6% á milli ára og opinbera markaðarins þar sem þeim fjölgaði um 2,1%. Þeim sem starfa við opinbera þjónustu, svo sem við opinbera stjórnsýslu, fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónustu fjölgaði á sama tíma og fækkun var á almennum vinnumarkaði. Þessi munur á þróun eftir ólíkum mörkuðum er í samræmi við reynslu síðustu ára. Störfum á almennum markaði fækkar yfirleitt þegar hægir á hagkerfinu en fjölgar hjá hinu opinbera.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti Seðlabankans um 0,25 prósentustig. Ákvörðunin kom ekki á óvart og var í samræmi við væntingar okkar. Tónninn í yfirlýsingunni var mildari en við síðustu ákvörðun og vildi einn nefndarmaður halda vöxtum óbreyttum. Samhliða ákvörðuninni birti SÍ Peningamál með uppfærðri þjóðhagsspá.
- Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst lítillega á milli ára í júlí.
- HMS birti vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu. Íbúðaverð stóð nokkurn veginn í stað á milli mánaða.
- Alvotech, Eik, Kaldalón og Síminn birtu uppgjör. Arion banki tilkynnti um lok endurkaupaáætlunar. Icelandair keypti 49% hlut í Fly Play Europe.
- Hagar luku við víxlaútboð. Landsbankinn hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum ásamt skiptiútboði. Orkuveita Reykjavíkur hélt útboð á grænum skuldabréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










