Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Mán­aða­mót 1. októ­ber 2026

Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Mánaðamót 2
1. október 2026

Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur verðbólga nú mælst yfir 5% allt þetta ár. Mælingin var að mestu leyti í takt við spá okkar en mestu munaði um að flugfargjöld til útlanda lækkuðu nokkuð minna en við höfðum spáð. Eldsneytisverð skýrir langmest af hækkun verðbólgu í september, sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út um mánaðamótin og hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.  

Peningastefnunefnd Seðlabankans fundar í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun sína miðvikudaginn 7. október. Nefndin hefur hækkað vexti á síðustu þremur fundum en við teljum að vaxtahækkunarferlinu sé nú lokið og gerum ráð fyrir að nefndin haldi vöxtum óbreyttum. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Frá síðasta fundi hefur þróun verðbólgu verið í takt við spá Seðlabankans, verðbólguvæntingar svipaðar og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. 

Ágúst er þriðji mánuðurinn í röð þar sem íbúðaverð helst nánast óbreytt á milli mánaða og raunverð íbúða hefur nú lækkað tíu mánuði í röð. Það sem af er ári hafa kaupsamningar um íbúðarhúsnæði verið færri en sömu mánuði í fyrra. Skráð atvinnuleysi skv. Vinnumálastofnun mældist 3,9% í ágúst og er 0,5 prósentustigum meira en í ágúst í fyrra, sem er í takt við þróun síðustu mánaða. Greiðslukortavelta heimila dróst saman um 1,2% í ágúst sem er mesti samdráttur frá því í lok árs 2023. Það sem af er ári hafa örlítið færri ferðamenn komið til landsins en á sama tímabili í fyrra.  

Lesa fréttabréfið í heild:

Mánaðamót 1. október 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.