Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 5,9% verð­bólgu í októ­ber

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
15. október 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% í september og ársverðbólga jókst úr 5,6% í 5,9%. Við spáum nú 0,49% hækkun vísitölunnar í október og að ársverðbólga verði óbreytt í 5,9%. Hagstofan birtir októbermælinguna fimmtudaginn 29. október.

Eldsneytisverð helsti orsakavaldur hækkunarinnar á milli mánaða

Verð á eldsneyti hækkaði töluvert í september þegar tímabundin lækkun á virðisaukaskatti féll úr gildi. Verð á eldsneyti hefur hækkað áfram síðan, enda hefur heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkað þó nokkuð frá síðasta mánuði. Ný komugjöld í sjúkra-, tal,- og iðjuþjálfun munu einnig hafa áhrif til hækkunar nú í október. Á móti gerum við ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda lækki á milli mánaða og að reiknuð húsaleiga hækki þó nokkuð minna en í sama mánuði í fyrra. Húsnæðisliðurinn mun því vega þyngst til lækkunar á ársverðbólgu í mánuðinum. Aðrir liðir vísitölunnar hafa minni áhrif á breytingu á milli mánaða gangi spá okkar eftir.

Eldsneytisverð hækkar áfram

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur haldist hátt og samkvæmt verðathugun okkar hefur verð á dælunni hækkað um 7,7% frá síðasta mánuði. Hækkun á eldsneytisverði mun því hafa langmest áhrif til hækkunar á verðbólgu í mánuðinum.

Hækkun á heilbrigðisþjónustu

Komugjald á heilsugæslu var hækkað í síðasta mánuði og einnig var lagt á nýtt komugjald fyrir sjúkra-, iðju- og talþjálfun. Samkvæmt Hagstofunni kemur sú breyting inn í mælingar nú í október. Við áætlum að sú breyting hafi um 1% áhrif til hækkunar á heilsuliðnum í október og heildaráhrifin verði því um 0,04 prósentustig til hækkunar á vísitölu neysluverðs í október, gangi spáin eftir.

Flugfargjöld lækka aðeins á milli mánaða í október

Mánaðarbreyting á flugfargjöldum til útlanda er alla jafna minnst á milli september og október. Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld lækki því aðeins lítillega á milli mánaða, eða um 2,3%. Gangi spáin eftir verða flugfargjöld um 30% dýrari en í október í fyrra. Í september voru þau um 33% dýrari en fyrir ári. Framlag flugfargjalda verður þannig til lækkunar á ársverðbólgu.

Matarkarfan hækkar aðeins

Við gerum ráð fyrir því að matarkarfan hækki um 0,3% í mánuðinum. Leiðandi vísitala verðlagseftirlits ASÍ bendir þó til þess að matarkarfan hafi lækkað um 0,5% frá októberbyrjun, en samkvæmt mælingu ASÍ eru miklar sveiflur á milli verslana sem gæti ýkt muninn á milli mánaða. Þá á einnig eftir að koma í ljós hvort átak í frystingu eða lækkun vöruverðs á dagvörumarkaði muni sjást í verðmælingum Hagstofunnar nú næstu mánuði, en spá okkar til næstu mánaða gerir ekki ráð fyrir miklum hækkunum á matarkörfunni.

Reiknuð húsaleiga hækkar hægar

Við gerum ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki ögn minna nú en síðustu mánuði, eða um 0,4% frekar en 0,5%. Við teljum að minni hækkanir á leigu- og íbúðamarkaði fari að endurspeglast í mælingum á reiknaðri húsaleigu. Þeir leigusamningar sem eru vísitölutengdir hækka nú í takt við ágústmælingu vísitölu neysluverðs, sem hækkaði aðeins um 0,2% á milli mánaða og styður við spá okkar um minni hækkun nú í október.

Spá um þróun VNV í október 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,2% 0,3% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,4% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,4% 1,0% 0,03%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,3% 0,2% 0,02%
Reiknuð húsaleiga 20,8% 0,4% 0,08%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,0% -0,7% -0,03%
Heilsa 4,0% 1,0% 0,04%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 1,0% 0,06%
Kaup ökutækja 4,4% 0,0% 0,00%
Bensín og díselolía 3,3% 7,7% 0,24%
Flugfargjöld til útlanda 2,7% -2,3% -0,06%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% 1,0% 0,04%
Afþreying, íþróttir og menning 9,0% 0,6% 0,05%
Menntun 1,1% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,6% -1,0% -0,06%
Fjármálaþjónusta 1,2% -0,2% 0,00%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,9% 0,03%
Alls 100,0%   0,49%

Verðbólguspá til næstu mánaða hækkar

Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan hækki um 0,49% í október, lækki svo um 0,63% í nóvember, hækki um 0,97% í desember en lækki svo um 0,23% í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,9% í október, 5,8% í nóvember, 5,6% í desember og 5,0% í janúar. Spáin er hærri en síðasta spá okkar sem skýrist nánast að öllu leyti af hærra eldsneytisverði.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.