Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga eykst í 5,9% - hækk­un á eldsneytis­verði hef­ur mest áhrif

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
29. september 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við höfðum spáð því að vísitalan myndi hækka um 0,23% og að verðbólga yrði 5,8%. Mælingin var að mestu leyti í takt við spá okkar en mestu munaði um að flugfargjöld til útlanda lækkuðu nokkuð minna en við höfðum spáð. 

September er níundi mánuðurinn í röð þar sem verðbólga mælist yfir 5%. Verðbólgan án húsnæðis hækkaði nokkuð meira en með húsnæði, eða úr 5,2% í 5,7%. Árshækkun alla fjögurra kjarnavísitalna lækkaði á milli mánaða, sem skýrist af því að verð á eldsneyti er ekki inni í neinni þeirra.  

Óbreytt verðbólga án VSK-áhrifa á eldsneyti 

Breytingin á ársverðbólgu úr 5,6% upp í 5,9% skýrist nær eingöngu af hækkun á eldsneytisverði vegna þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti rann út í byrjun mánaðar og vegna hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Framlag eldsneytisverðs til ársverðbólgu hækkaði um 0,45 prósentustig á milli mánaða í september og þar af voru 0,32 prósentustig vegna þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti rann út í byrjun mánaðar. Ef við horfum fram hjá áhrifum VSK-breytinga hefði vísitalan hækkað um 0,06% og ársverðbólga verið óbreytt í 5,6%.

Helstu liðir: 

  • 16,5% verðhækkun á eldsneyti hafði langmest áhrif til hækkunar í mánuðinum. 
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,32%, þó nokkuð minna en í september í fyrra, og hefur liðurinn því áhrif til lækkunar á ársverðbólgu. Við spáðum 0,5% hækkun eins og síðustu mánuði. Vísitölur íbúða- og leiguverðs hafa flestar sýnt minni hækkanir síðustu mánuði í takt við kólnandi íbúðamarkað. Reiknuð húsaleiga hefur aftur á móti verið aðeins tregari að fylgja þeim vísitölum. Lág mæling nú gæti verið vísbending um að liðurinn sé farinn að endurspegla betur minni verðhækkanir á íbúðamarkaði, en næstu mánuðir munu skera úr um það.  
  • Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,7% á milli mánaða en við höfðum spáð rúmlega 16% lækkun. Flugfargjöld til útlanda eru nú 33% dýrari en á sama tíma í fyrra. 
  • Verð á matarkörfunni hækkaði um 0,32%, en við spáðum 0,1% hækkun. Árshækkun matarkörfunnar lækkaði úr 4,1% í 4,0%. 
  • Komugjöld á heilsugæslu og skimunargjöld voru hækkuð í september og heilsuliðurinn hækkaði því um 1,4%, en við spáðum 1,1% hækkun. Áhrifin af hækkunum á vísitöluna voru um 0,06%. Nýtt komugjald fyrir sjúkra-, iðju- og talþjálfun var tekið upp í september en kemur í mælingar í október. Við gerum ráð fyrir að áhrifin á vísitöluna þá verði svipuð og áhrifin af breytingunum nú.

Eigum von á að verðbólgan verði yfir 5% út árið 

Við gerum núna ráð fyrir að vísitalan hækki um 0,14% í október, lækki um 0,52% í nóvember og hækki um 1,02% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 5,6% í október, 5,5% í nóvember og 5,4% í desember. Við gerum ekki miklar breytingar frá síðustu spá sem við birtum í verðkönnunarvikunni. Aðeins hærri spá nú skýrist aðallega af því að við gerum ráð fyrir hærri flugfargjöldum til útlanda, en á móti kemur aðeins sterkara gengi.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.