Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 5. októ­ber 2026

Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Vikubyrjun
5. október 2026

Vikan framundan

  • Á miðvikudag er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Hagstofan birtir gögn um fjölda starfandi.  
  • Á fimmtudag birtir Bera uppgjör. 
  • Á föstudag birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll og Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi.  

Mynd vikunnar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands fundar í dag og á morgun og birtir vaxtaákvörðun sína á miðvikudag. Verðbólga mælist nú 5,9%, samanborið við 5,3% þegar nefndin kom síðast saman. Það væri ekki óeðlilegt að búast við vaxtahækkun þegar verðbólga hækkar svo mikið á milli funda. Aukin verðbólga milli funda skýrist af því að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi, hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu og hækkun á opinberri þjónustu. Það eru því lítil merki um að undirliggjandi eftirspurnardrifin verðbólga hafi aukist á milli funda. Við teljum líklegt að nefndin meti núverandi aðhald peningastefnunnar nægilegt til að takmarka annarrar umferðar áhrif þessara hækkana. Þess vegna spáum við því að nefndin haldi vöxtum óbreyttum, þrátt fyrir aukna verðbólgu. 

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Verðbólga jókst úr 5,6% í 5,9% í september og hefur nú mælst yfir 5% allt þetta ár. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum auk þess sem hækkun komugjalda á heilsugæslu höfðu áhrif. Við búumst við því að verðbólga verði áfram yfir 5% út árið. 
  • Fjölda gistinótta á hótelum í ágúst fækkaði um 2,5% á milli ára. Gistinóttum erlendra ferðamanna fækkaði þar um 1,8% en fjölgaði aftur á móti um rúmlega 6% ef taldar eru gistinætur á öllum tegundum skráðra gististaða. 
  • Seðlabankinn birti Hagvísa.  
  • Alls var 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum í september. 
  • Verðbólga á evrusvæðinu jókst úr 3,2% í 3,8% og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Aukningin var nokkuð umfram væntingar og skýrist helst af hærra orkuverði. Seðlabanki Evrópu var fyrstur af stærstu seðlabönkum heims til þess að hækka vexti í kjölfar olíuverðshækkana vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Bankinn hækkaði vexti í júní og aftur í september. Tvær vaxtaákvarðanir eru eftir á árinu, í lok október og í desember. Flestir markaðsaðilar búast við óbreyttum vöxtum í október en hækkun í desember. 
  • Atvinnuleysi í Bandaríkjum hækkaði úr 4,1% í 4,2% í september. Um 29 þúsund ný störf bættust við í mánuðinum. Atvinnuleysi var meira og fjölgun starfa minni en búist var við. Líkurnar á vaxtahækkun hjá Seðlabanka Bandaríkjanna nú í lok október minnkuðu við þessar tölur.  
  • Reykjavíkurborg lauk sölu á skuldabréfum. Lánamál ríkisins birtu ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 5. október 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
23. nóv. 2026
Vikubyrjun 23. nóvember 2026
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Ákvörðunin var einróma og tónninn að okkar mati mildur. HMS birti vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu. Á fimmtudaginn birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir nóvember.
Stýrivextir
18. nóv. 2026
Óbreyttir vextir í samræmi við væntingar
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í morgun og var ákvörðunin einróma. Tónninn var að okkar mati mildur og er ljóst að nefndin hefur vaxandi áhyggjur af kólnandi hagkerfi. Enn er þó lögð áhersla á að verðbólga og verðbólguvæntingar séu langt yfir markmiði. Gangi verðbólguspár eftir gerum við ráð fyrir að nefndin geti lækkað vexti í febrúar.
17. nóv. 2026
Íslendingar auka erlenda neyslu sína
Kortavelta Íslendinga jókst um 2,7% á milli ára í október að raunvirði. Áfram er mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis á sama tíma og samdráttur mælist innanlands. Við spáum því að einkaneysla aukist lítið í ár en taki síðan smám saman við sér.
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.