Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólgu­spá fyr­ir ág­úst: óvissa og mik­ið í húfi

Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
13. ágúst 2026

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,10% á milli mánaða í ágúst og að ársverðbólga verði 5,5%. Hagstofan birtir ágústmælingu vísitölunnar fimmtudaginn 27. ágúst. Meiri óvissa en venjulega ríkir um ágústspána, einkum vegna tímabundinna verðáhrifa sólmyrkvans, sem erfitt er að meta nákvæmlega. Hækkun skráningargjalda við opinbera háskóla mun einnig hafa áhrif til hækkunar í mánuðinum.

Óvissa í ágústmælingunni og mikið í húfi

Töluverð óvissa er um ágústmælinguna og til marks um það birti Hagstofan svör við fyrirspurnum um möguleg áhrif sólmyrkvans og hækkunar skráningargjalda á vísitöluna, auk skýringa á þeim aðferðum sem Hagstofan notar við mælinguna. Þá nefnir Hagstofan að hækkun á komugjöldum á heilsugæslu taki gildi í september, en ekki í ágúst líkt og frétt á vef stjórnarráðsins gaf áður til kynna. Verðbólgumælingin í ágúst ræður úrslitum um hvort forsendur kjarasamninga bresti, sem við teljum þó litla óvissu um.

Áhrif sólmyrkvans á VNV í ágúst

Flugfargjöld til útlanda hækka alla jafna töluvert í júní og júlí en lækka í ágúst. Við gerum ráð fyrir að þau lækki minna í ágúst en ella, vegna aukinnar eftirspurnar í tengslum við sólmyrkvann, eða um 8,8%. Til samanburðar lækkuðu flugfargjöld um 12% í ágúst í fyrra. Takturinn í verði á gistingu er svipaður að því leiti að verð á gistingu hækkar töluvert í júní og júlí. Við gerum ráð fyrir því að verð á gistiþjónustu hækki um 5% nú í ágúst, en til samanburðar hækkaði hún um 1,2% í ágúst í fyrra. Við gerum einnig ráð fyrir áhrifum á verð bílaleigubíla, en erfiðara er að taka tillit til þess í spám þar sem Hagstofan birtir ekki undirvísitölu fyrir bílaleigur. Vert er að hafa í huga að þær verðhækkanir sem má rekja beint til sólmyrkvans munu að líkindum ganga til baka strax í næsta mánuði með samsvarandi verðlækkunum.

Eldsneytisverð næstum óbreytt á milli mánaða

Samkvæmt verðathugun okkar hefur verð á eldsneyti hækkað um 0,6% frá því í síðustu verðsöfnunarviku. Í síðustu spá gerðum við ráð fyrir að eldsneyti myndi lækka um 5% í ágúst, en síðan þá hefur heimsmarkaðsverð á olíu hækkað aftur í kjölfar þess að friðarviðræður í átökunum við Persaflóa sigldu í strand. Í næsta mánuði fellur síðan úr gildi afsláttur af virðisaukaskatti á eldsneyti og við gerum því ráð fyrir að eldsneytisverð hækki um 11% þá.

Sumarútsölur ganga til baka að hluta

Sumarútsölurnar voru nokkurn veginn eins og við höfðum gert ráð fyrir í júlí og takturinn hefur verið nokkuð svipaður og í fyrra. Verð á fötum og skóm lækkaði um 4,7% í júlí og nú í ágúst gerum við ráð fyrir því að útsölurnar gangi til baka að hluta, eða um 1% og hækki svo meira í september, eða um 4%.

Matur hækkar minna en húsnæðið tregbreytanlegt

Árshækkun matarkörfunnar hefur lækkað jafnt og þétt það sem af er ári. Í júlí mældist árshækkunin 3,8%, en var til samanburðar 5,9% í janúar. Verðhækkanir á milli mánaða síðustu mánuði hafa verið nokkuð hóflegar og samkæmt verðlagseftirliti ASÍ hefur verð á matarkörfunni hækkað um tæplega 0,1% frá síðasta mánuði. Við gerum ráð fyrir þeirri hækkun nú í ágúst.

Árshækkun á greiddri og reiknaðri húsaleigu, undirvísitölum Hagstofunnar, er enn nokkuð meiri en á skammtímaleiguvísitölum HMS. Við gerum þó ráð fyrir að rólegri húsnæðismarkaður og minni hækkanir á nýjum leigusamingum komi til með að endurspeglast í mælingum Hagstofunnar, en að það verði með nokkra mánaða töf. Til allra næstu mánaða gerum við áfram ráð fyrir um 0,5% hækkun að meðaltali á milli mánaða.

Spá um þróun VNV í ágúst 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,2% 0,1% 0,02%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,3% 1,0% 0,03%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,4% 0,04%
Reiknuð húsaleiga 20,8% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,0% 1,5% 0,06%
Heilsa 3,9% 0,3% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 0,2% 0,01%
Kaup ökutækja 4,6% 0,4% 0,02%
Bensín og díselolía 2,6% 0,6% 0,02%
Flugfargjöld til útlanda 3,2% -8,8% -0,31%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% -0,5% -0,02%
Afþreying, íþróttir og menning 9,0% 0,2% 0,02%
Menntun 1,1% 4,5% 0,05%
Hótel og veitingastaðir 5,7% 0,9% 0,05%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,1% 0,00%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,3% 0,01%
Alls 100,0%   0,10%

Verðbólguspá til næstu mánaða hækkar

Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan hækki um 0,10% í ágúst, 0,20% í september, 0,12% í október og lækki um 0,46% í nóvember. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,5% í ágúst, 5,6% í september, 5,2% í október og 5,3% í nóvember. Spáin er hærri en síðasta spá okkar, sem birt var eftir júlímælingu Hagstofunnar. Munurinn skýrist af hærra eldsneytisverði í ágúst en við gerðum ráð fyrir þá.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.