Hlaðvarp
Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægi
Hófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri...
27. júní 2023
Fjármál ungs fólks hafa verið sérstaklega til umfjöllunar hjá fræðsludeild Landsbankans að undanförnu. Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans, og Guðrún H. Bjarnadóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum, ræða við Karítas Ríkharðsdóttur um hvað gögn bankans segja um fjárhagsstöðu ungs fólks. Meðal annars kemur fram að nokkuð sé um að ungt fólk geymi háar fjárhæðir á veltureikningum og að ungir karlar fjárfesti í hlutabréfum í meiri mæli en ungar konur. Þá eru ungar konur síður skráðar einar fyrir fasteignalánum.
13. júní 2023
Fjölgun ferðamanna og aukin einkaneysla eru á meðal þeirra þátta sem halda uppi hagvexti. Laun hafa hækkað, enda spenna á vinnumarkaði og skortur á starfsfólki. Þrátt fyrir háa vexti kyndir kröftug eftirspurn undir verðbólgu, sem þó vonandi er á niðurleið. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson spjalla um þetta og ýmislegt fleira í nýjasta þætti Umræðunnar.
16. maí 2023
Landsbankinn bauð fólki nýlega í fyrsta sinn í nýtt húsnæði sitt við Reykjastræti á viðburði í tengslum við HönnunarMars. Viðburðirnir voru vel sóttir og ljóst að mikill áhugi er á hönnun og virkni hússins. Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Halldóru Vífilsdóttur, framkvæmdastjóra arkitektastofunnar Nordic og verkefnastjóra nýbyggingarinnar, Helga Mar Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic og Jonas Toft Lehmann, arkitekt og partner hjá dönsku arkitektastofunni CF Möller, um hugmyndafræði hússins frá samkeppnistillögu að raunverulegum vinnustað, áskoranir og árangur.
25. apríl 2023
Útlit er fyrir ágætis hagvöxt næstu ár þótt hægi á hagkerfinu, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar. Ferðamönnum fjölgar og einkaneysla eykst áfram, en allt í skugga þrálátrar verðbólgu. Vextir hækka áfram og byrja ekki að lækka fyrr en á næsta ári. Hagspáin er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþættinum þar sem Una Jónsdóttir, Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson fara yfir helstu atriðin.
29. mars 2023
Netsvik hafa sótt verulega í sig veðrið að undanförnu og eru dæmi um að tugir milljóna hafi verið sviknir út úr einstaklingum og fyrirtækjum. Viðbragð við netsvikum er orðinn hluti af daglegri starfsemi Landsbankans. Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Brynju Maríu Ólafsdóttur, sérfræðing í regluvörslu, og Arinbjörn Ólafsson, framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs, um netsvik og varnir og viðbrögð við þeim.
17. mars 2023
Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku. Verðbólguhorfur versnuðu í febrúar, verðbólgan er almennari en áður og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur aukist. Þrátt fyrir að meginvextir bankans hafi hækkað úr 0,75% í 6,5% á tæpum tveimur árum virðast þeir síður en svo hafa dregið allan þrótt úr hagkerfinu. Í þættinum ræða hagfræðingarnir Una Jónsdóttir og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivaxtaspána og stikla á stóru um stöðuna í hagkerfinu.
3. feb. 2023
Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir fyrstu stýrivaxtaákvörðun ársins miðvikudaginn 8. febrúar. Verðbólgan hefur hjaðnað hægar en búist var við og samsetning hennar hefur breyst á síðustu mánuðum. Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi og ýmis merki eru um kröftuga íbúðauppbyggingu. Kann að vera að verið sé að byggja of mikið? Í þættinum spá hagfræðingarnir Una Jónsdóttir, Ari Skúlason og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fyrir um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, ræða verðbólguna, launahækkanir, fasteignamarkaðinn og fleira.
8. des. 2022
Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa þurft að aðlagast sveiflukenndu rekstrarumhverfi á síðasta áratugnum. Ferðamannabylgja, heimsfaraldur og hvað svo? Horfurnar virðast góðar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu en róðurinn hugsanlega þyngri fyrir þau sem selja vörur og þjónustu á innlendum markaði. Í þættinum er fjallað um stöðu verslunar og þjónustu á Íslandi. Þar spjalla saman þær Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar bankans, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði bankans.
24. nóv. 2022
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær, enda hafa verðbólguhorfur versnað lítillega á síðustu vikum. Hvað þýðir að kjölfesta verðbólguvæntinga hafi veikst og hvenær getur Seðlabankinn slakað á taumhaldinu? Hvernig getur fjármálageirinn brugðist við loftslagsvandanum og hver er ábyrgð hans? Þetta er á meðal þess sem farið er yfir í nýjasta hlaðvarpsþættinum. Þátturinn er tvískiptur, fyrst ræða hagfræðingarnir Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivexti, verðbólgu og fleira. Í seinni hluta þáttarins kemur Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri bankans, og ræðir við Hildi Margréti og Ara um sjálfbærni í fjármálageiranum og samfélagslegar fjárfestingar.
3. nóv. 2022
Íbúðamarkaður fer kólnandi, eftirspurnin hefur róast og margt bendir til kröftugrar íbúðauppbyggingar. Vextir hafa hækkað, greiðslubyrði eykst og verðtryggð íbúðalán ryðja sér til rúms á ný. Þetta er á meðal viðfangsefna nýjasta hlaðvarpsþáttarins. Una Jónsdóttir, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Jónas R. Stefánsson, sérfræðingur á Einstaklingssviði bankans, taka stöðuna á íbúðamarkaði.
21. okt. 2022
Hagfræðideildin kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í Hörpu 19. október sl. og hlaðvarpið er að þessu sinni tileinkað henni. Una Jónsdóttir, Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fara yfir það helsta úr spánni; hagvöxtinn, verðbólguna, ferðamenn, kaupmátt, óvissuna og fleira. Þau ræða það hvað hefur gerst á síðustu mánuðum og hvernig má búast við að hagkerfið þróist á næstu árum.
6. okt. 2022
Seðlabankinn kynnti í gær níundu stýrivaxtahækkunina í röð frá því í maí á síðasta ári. Stýrivextir hækka um 0,25% og standa nú í 5,75%. Hvernig slær stýrivaxtahækkun á verðbólgu, hvenær verður hægt að slaka á taumhaldinu og af hverju skipta verðbólguvæntingar máli? Þetta er á meðal þess sem Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingar hjá Landsbankanum, ræða í nýjum hlaðvarpsþætti. Þau koma líka inn á kaupmáttarrýrnun í aðdraganda kjaraviðræðna og þróun á íbúðamarkaði. Þá horfa þau út í heim og tala um verðbólgu og vaxtaákvarðanir erlendis og fjaðrafok í Bretlandi eftir að nýr forsætisráðherra boðaði mestu skattalækkanir í 50 ár.
28. sept. 2022
Það er ekki lengur nóg fyrir fjármálafyrirtæki að huga eingöngu að fjárhagslegum þáttum og birta aðeins upplýsingar um fjárhagslega þætti. Samfélagið ætlast til þess að þau hafi jákvæð samfélagsleg áhrif og þessi þáttur í upplýsingagjöfinni er ekki síður mikilvægur að mati Tjeerd Krumpelman alþjóðasviðsstjóra í sjálfbærni hjá hollenska bankanum ABN AMRO sem er gestur hlaðvarpsins. Tjeerd annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærni og hefur verið leiðandi í að meta áhrif af lánum og fjárfestingum bankans (e. impact assessment). Þannig geti bankinn í senn unnið að sjálfbærni og minnkað áhættu til langs tíma. Hann ræðir við Aðalheiði Snæbjarnardóttur, sjálfbærnistjóra Landsbankans og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjá bankanum.
7. sept. 2022
Verðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi. Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfæðideildar og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjà bankanum.
24. ágúst 2022
Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samfélagssviði bankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, vinnumarkaðinn, verðbólguhorfur og þróun efnhagslífsins.
19. maí 2022
Í hlaðvarpinu ræðum við um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Almennt má segja að útlitið sé bjart og gert er ráð fyrir 5,1% hagvexti í ár sem er drifinn áfram af fjölgun ferðamanna. Búist er við metfjölda ferðamanna í lok spátímabilsins. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn muni bregðast við meiri og þrálátari verðbólgu með því að hækka vexti verulega, áður en hægt verður að lækka vexti á nýjan leik. Það flækir stöðuna talsvert að kjarasamningar eru lausir, á sama tíma og verðbólgudraugurinn herjar á landann. Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar og hagfræðingarnir Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason fara yfir málin ásamt Rún Ingvarsdóttur sérfræðingi á Samfélagssviði hjá bankanum.
5. maí 2022
Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum.
7. apríl 2022
Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksflutning? Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur bankans og sérfræðingur í fasteignamarkaðinum, og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri Mannvirkjafjármögnunar, ræða málin ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum.
25. mars 2022
Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hækkandi fasteignaverð og fleira. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum og Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.
10. mars 2022
Í hlaðvarpinu ræðum við um efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu, viðskiptaþvinganir og þróunina á hlutabréfamarkaði hér heima og erlendis. Mikil óvissa ríkir, sveiflur á mörkuðum, olíuverð er í hæstu hæðum og verðbólguhorfur versna. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, og hagfræðingarnir Ari Skúlason og Gústaf Steingrímsson taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.
11. feb. 2022
Í hlaðvarpinu er fjallað um þróunina á hlutabréfamarkaði, verðbólgu hér heima og erlendis og stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands um 0.75 prósentustig. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Gústaf Steingrímsson hagfræðingur, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.
28. jan. 2022
Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, áhrif vaxtahækkana í Bandaríkjunum, hækkandi fasteignaverð, atvinnumarkaðinn og efnahagshorfur. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Una Jónsdóttir, okkar helsti sérfræðingur um fasteignamarkaðinn, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.
2. des. 2021
Í hlaðvarpinu fjöllum við um áhrif nýs afbrigðis af kórónuveirunni á fjármálamarkaði, nýtt fjárlagafrumvarp, nýjar upplýsingar um hagvöxt og fleira. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum og dr. Daníel Svavarsson forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans.
4. nóv. 2021
Í hlaðvarpinu fjöllum við um lofstlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow og hlutverk fjármálageirans í baráttunni við loftslagsbreytingar. Auk þess tölum við um þróunina á fjármálamörkuðum, góð uppgjör hérlendis og erlendis og fleira. Ari Skúlason, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, og Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans.
21. okt. 2021
Í hlaðvarpinu er ítarlega fjallað um nýja þjóðhagsspá Hagfræðdeildar Landsbankans. Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti 2021 og 2022. Ferðaþjónustan er vöknuð úr dvala, horfur eru á sérstaklega góðri loðnuvertíð og atvinnuleysi heldur áfram að minnka. Töluverðar áskoranir eru í ríkisfjármálum og kröftugur efnahagsbati og þrálát verðbólga munu knýja á um töluverða hækkun stýrivaxta, áður en aðstæður skapast til að lækka þá á nýjan leik. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.
15. okt. 2021
Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og ferðaþjónustuna. Meðal annars er komið inn á nýja verðbólguspá Hagfræðideildar, áhrif síðustu stýrivaxtahækkunar, hækkandi bensínverð og álverð, minnkandi atvinnuleysi og áhrif góðrar loðnuvertíðar á hagvöxt. Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum og Gústaf Steingrímsson, sérfræðingur í Hagfræðideild taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.
1. okt. 2021
Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og fasteignamarkaðinn. Meðal annars er komið inn á mikið líf á innlendum hlutabréfamarkaði, hækkandi fasteignaverð sem drífur verðbólguna áfram, breytt neyslumynstur ferðamanna og að Hagfræðideild bankans geri ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig við næstu stýrivaxtaákvörðun. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, Una Jónsdóttir, sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.
27. maí 2021
Í hlaðvarpinu er rætt við dr. Daníel Svavarsson, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans, um nýja þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar 2021-2023 sem birt var 18. maí. Gert er ráð fyrir að efnahagsbatinn hefjist fyrr en áður var spáð og að landsframleiðslan vaxi um tæp 5% á árinu. Góður gangur í bólusetningum, bæði innanlands og í helstu viðskiptalöndum, bendir til þess að ferðaþjónustan taki fyrr við sér en áður var reiknað með.
29. apríl 2021
Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. M.a. er rætt um verðbólguhorfur og aukna bjartsýni vegna bólusetninga. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn, ræðir ítarlega um þróunina á þeim markaði. Hún bendir á að eftirspurn sé ekki sama og þörf. Íbúðaþörf hafi í raun dregist saman þótt eftirspurn sé mikil og verð hækki. Varasamt sé að byggja inn í eftirspurn sem jókst skyndilega og skynsamlegt væri að horfa í gengum skammtímasveiflur og byggja í takt við langtímaþörf.