Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um óbreytt­um vöxt­um í næstu viku

Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
Stýrivextir
30. september 2026

Peningastefnunefnd Seðlabankans fundar í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun sína miðvikudaginn 7. október. Nefndin hefur hækkað vexti á síðustu þremur fundum sínum, um 0,25 prósentustig í hvert sinn. Við teljum að vaxtahækkunarferlinu sé lokið og gerum ráð fyrir að nefndin ákveði að halda vöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans verða því áfram 8%.

Vaxtaákvarðanir peningastefnunefndar

Dags. Vikur frá seinasta fundi Ákv. Atkvæði með Atkvæði móti Kosið annað Meginvextir
7. febrúar 2024 11 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
20. mars 2024 6 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
8. maí 2024 7 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS AS (-0,25%)   9,25%
21. ágúst 2024 15 óbr. ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS     9,25%
2. október 2024 6 -0,25% ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS   HS (óbr.) 9,00
20. nóvember 2024 7 -0,50% ÁJ, RS, TB,  ÁÓP, HS     8,50%
5. febrúar 2025 11 -0,50% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     8,00%
19. mars 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,75%
21. maí 2025 9 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP   HS (óbr.) 7,50%
20. ágúst 2025 13 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
8. október 2025 7 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
19. nóvember 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     7,25%
4. febrúar 2026 11 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,25%
18. mars 2026 6 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB ÁÓP, HS (+0,50%)   7,50%
20. maí 2026 9 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,75%
19. ágúst 2026 13 +0,25% ÁJ, ÞGP, ÁÓP, HS TB (óbr.)   8,00%
7. okt. 2026 7          
18. nóv. 2026 6          

AS: Arnór Sighvatsson, ÁJ: Ásgeir Jónsson, ÁÓP: Ásgerður Ósk Pétursdóttir, HS: Herdís Steingrímsdóttir, RS: Rannveig Sigurðardóttir, TB: Tómas Brynjólfsson, ÞGP: Þórarinn G. Pétursson
Heimild: Seðlabanki Íslands

Við gerum ráð fyrir óbreyttum vöxtum þrátt fyrir aukna verðbólgu, enda skýrist aukningin ekki af aukinni innlendri eftirspurn. Verðbólguþróunin er þar að auki í takt við það sem bankinn sá fyrir sér í Peningamálum sem gefin voru út samhliða síðustu vaxtaákvörðun. 

Aukin verðbólga ekki eftirspurnardrifin 

Þegar nefndin hittist í ágúst var verðbólga í júlí nýjasta talan sem þau höfðu, en þá mældist 5,3% verðbólga. Nú hefur nefndin tvær nýjar verðbólgumælingar frá síðustu ákvörðun og sú nýjasta, fyrir septembermánuð, sýnir 5,9% verðbólgu. Verðbólga hefur því aukist töluvert á milli ákvarðana, en þegar litið er til þess hvernig samsetning verðbólgunnar hefur breyst sést að aukninguna má að langmestu leyti rekja til hækkunar á eldsneyti. Sú hækkun er annars vegar til komin vegna þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti var felld niður í byrjun mánaðar og hins vegar vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði. Hvorugan þessara þátta má rekja til aukinnar eftirspurnar. Ef engar breytingar hefðu orðið á virðisaukaskattinum á eldsneyti hefði verðbólga mælst óbreytt á milli mánaða í september.

Væntingar hafa ekki breyst að ráði 

Vísbendingar um þróun verðbólguvæntinga frá síðasta fundi má helst sjá út frá verðbólguálagi á skuldabréfamarkaði. Á þann mælikvarða lækkuðu væntingar, hvort sem litið er til tveggja, fimm eða tíu ára, fljótlega eftir síðustu vaxtaákvörðun. Væntingar hafa aftur á móti aukist aftur síðan og eru þær nú á svipuðum stað og fyrir síðasta fund.

Við teljum líklegt að boðaðar gjaldahækkanir í fjárlagafrumvarpinu hafi átt þátt í að ýta verðbólguvæntingunum aftur upp, enda munu þær hafa áhrif á verðbólgumælingar til skamms tíma. Væntingar eru nú á svipuðum stað og fyrir síðasta fund. Við búumst við því að nefndin lýsi yfir áhyggjum af boðuðum gjaldahækkunum og áhrifum þeirra á mælda verðbólgu, en okkur þykir aftur á móti ólíklegt að það muni hafa áhrif á sjálfa vaxtaákvörðunina.   

Hægagangur á vinnumarkaði styður við óbreytta vexti 

Atvinnuleysi hefur stöðugt mælst á bilinu 0,5-0,7 prósentustigi meira en á sama tíma í fyrra og fjöldi starfandi samkvæmt skrám mælist nær óbreyttur á milli ára. Þessi merki um kólnun á vinnumarkaði ásamt hófstilltri þróun kortaveltu bendir til þess að eftirspurnarþrýstingur í hagkerfinu sé að gefa eftir. Þessir þættir styðja við það sem sést einnig á verðbólguþróuninni, að innlendur eftirspurnarþrýstingur sé að gefa eftir og því líkur á að vaxtahækkunarferlinu sé lokið.

Mildari tónn sleginn við síðustu ákvörðun 

Við síðustu ákvörðun mátti greina mun mildari tón hjá nefndinni en áður. Nefndin virtist telja að annarrar umferðar áhrif verðhækkananna, sem einkum mátti rekja til hækkana á opinberum gjöldum og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum, væru minni en upphaflega var óttast. Nefndin hafi talið að þær vaxtahækkanirnar sem gripið hafi verið til á árinu hafi veitt nægilegt aðhald til að draga úr þeim áhrifum. Hagfelld þróun ýmissa undirliða verðbólgunnar styður einnig þá túlkun að frekari vaxtahækkana sé ekki þörf í bili. 

Sem fyrr segir snýr óvissan nú helst að mögulegum viðbrögðum við forsendubresti í gildandi kjarasamningum, en þau eiga að skýrast í síðasta lagi daginn eftir vaxtaákvörðunina, 8. október. Þá á einnig á eftir að koma í ljós hvernig nefndin metur áhrif af boðuðum gjaldahækkunum hins opinbera samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs á verðbólgu og verðbólguvæntingar. 

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.