Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Tryggingar

Trygg­ing­ar fyr­ir þig og þína

Við hjálp­um þér að vaxa og dafna og gríp­um þig þeg­ar áföll verða.

Samstarf sem einfaldar lífið

TM er vátryggingafélag og veitir tryggingarnar, en Landsbankinn annast dreifingu og þjónustu í umboði TM. Saman bjóðum við fyrsta flokks þjónustu og betri kjör. Með öll fjármálin og tryggingarnar á einum stað færð þú betri yfirsýn og frábær fríðindi.

Fjölskyldan

Við sérsníðum tryggingarnar að þörfum fjölskyldunnar og bjóðum víðtæka vildarþjónustu.

Heimilið

Góðar heimilistryggingar veita þér og þínum mikilvæga vernd og hugarró.

Farartækin

Við aðstoðum þig við að finna réttu tryggingarnar hvort sem vilt hjóla í vinnuna eða fara í frí á húsbílnum.

Fríðindi fyrir þig

Viðskiptavinir bankans fá betri kjör á tryggingum. Með því að velja Fjölskylduleið færðu fyrsta flokks tryggingaþjónustu og aðgang að Velferðatorgi.

Ókeypis tími í sérfræðiþjónustu.
Enginn aukakostnaður ef þú veldur ökutækjatjóni.
Endurgreiðsla eftir tjónlaust ár.
Afsláttur af bílstólum og öryggisvörum.

Allt á einum stað

Í Landsbankaappinu sérðu yfirlit yfir tryggingarnar þínar hjá TM, getur fengið tilboð og pantað ráðgjöf. Með því að hafa fjármálin og tryggingarnar á sama stað færðu fleiri möguleika á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Aukakrónur

Aukakrónur af tryggingunum þínum

Allir sem eru með tryggingar hjá TM fá 1% endurgreiðslu í formi Aukakróna þegar greitt er með korti tengdu við Aukakrónukerfið. Svo er líka hægt að borga fyrir tryggingarnar með Aukakrónum. 

Þá viltu vera hjá okkur

Það getur verið mjög gott að taka spjallið. Við tökum vel á móti þér í persónulega tryggingaráðgjöf í útibúum Landsbankans á Akureyri, í Reykjanesbæ, í Reykjastræti 6, á Selfossi og í Vestmannaeyjum.

Persónuvernd

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.