Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Óbreytt­ir vext­ir og sami tónn

Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Stýrivextir
7. október 2026

Mæld verðbólga hefur aukist vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana, en undirliggjandi verðbólga hefur haldist óbreytt í nokkurn tíma, að mati nefndarinnar. Hækkun mældrar verðbólgu sé því ekki merki um aukinn verðbólguþrýsting. Vaxtahækkanir sem nú þegar hefur verið farið í voru fyrst og fremst viðbrögð við auknum verðbólguvæntingum og hættu á annarrar umferðar áhrifum, enda hafi vextir bankans ekki áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu. 

Háir vextir farnir að bíta 

Áhrif hárra vaxta á hagkerfið eru orðin greinilegri og skýr merki eru um að vinnumarkaðurinn sé að kólna. Nefndin taldi þess vegna ekki tilefni til að hækka vexti, en þó þyrfti að halda peningalegu aðhaldi þéttu þangað til hjöðnun verðbólgu er orðin skýr og trúverðug. Nefndin tekur fram að hún telji flest benda til þess að verðbólga lækki nokkuð hratt á næsta ári sem myndi skapa svigrúm til vaxtalækkana, en nefndin vill sjá það gerast áður en hún lýsir yfir sigri.  

Vaxtaákvarðanir peningastefnunefndar

Dags. Vikur frá síðustu ákvörðun Ákvörðun Atkvæði með Atkvæði móti Kosið annað Meginvextir
7. febrúar 2024 11 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
20. mars 2024 6 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
8. maí 2024 7 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS AS (-0,25%)   9,25%
21. ágúst 2024 15 óbr. ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS     9,25%
2. október 2024 6 -0,25% ÁJ, RS, TB, ÁÓP   HS (óbr.) 9,00%
20. nóvember 2024 7 -0,50% ÁJ, RS, TB,  ÁÓP, HS     8,50%
5. febrúar 2025 11 -0,50% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     8,00%
19. mars 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,75%
21. maí 2025 9 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP   HS (óbr.) 7,50%
20. ágúst 2025 13 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
8. október 2025 7 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
19. nóvember 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     7,25%
4. febrúar 2026 11 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,25%
18. mars 2026 6 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB ÁÓP, HS (+0,50%)   7,50%
20. maí 2026 9 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,75%
19. ágúst 2026 13 +0,25% ÁJ, ÞGP, ÁÓP, HS TB (óbr.)   8,00%
7. okt. 2026 7 óbr. ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     8,00%
18. nóv. 2026 6          

ÁJ: Ásgeir Jónsson, ÁÓP: Ásgerður Ósk Pétursdóttir, GJ: Gunnar Jakobsson, HS: Herdís Steingrímsdóttir, RS: Rannveig Sigurðardóttir, TB: Tómas Brynjólfsson, ÞGP: Þórarinn G. Pétursson
Heimild: Seðlabanki Íslands

Mikilvægt að kjarasamningar haldi 

Í kynningu varaseðlabankastjóra peningastefnu kom fram að undirliggjandi drifkraftar verðbólgunnar hafi fyrst og fremst verið innlendir. Launahækkanir hér á landi hafi verið töluverðar og þegar verðbólga er há sé hætta á því að launahækkanir rati hraðar út í verðlag. Það sé því brýnt að kjarasamningar haldi. Verði þeim sagt upp og samið um meiri hækkanir þyrfti peningalegt aðhald að aukast og vara lengur, sem kæmi meðal annars fram í færri störfum og auknu atvinnuleysi.  

Lítil trú á tímabundnum aðgerðum 

Í svörum nefndarinnar eftir ákvörðunina kom fram að bankinn hafi takmarkaða trú á tímabundnum aðgerðum sem lækka mælda verðbólgu. Það á bæði við um tímabundnar lækkanir á virðisaukaskatti og verðfrystingar eða verðlækkanir fyrirtækja, ef það felur aðeins í sér að verðhækkunum sé frestað um nokkrar vikur. Verðfrystingar gætu þó hjálpað ef þær ná að rjúfa víxlhækkun launa og verðlags. Það er erfitt fyrir alla aðila að halda verðhækkunum undir eða við verðbólgumarkmið ef launaþátturinn hækkar meira. Tímabundnar aðgerðir geta haft áhrif á mælda verðbólgu til skamms tíma, en þær breyta ekki undirliggjandi þróun og leysa ekki vandann.  

Óvissa og horfur  

Seðlabankinn telur að nægjanlega hafi verið hert á aðhaldi í bili. Verðbólgu sé líkleg til að hjaðna á næsta ári og það nokkuð hratt. Aðalmálið er þó hvernig takist að stöðva innlenda víxlverkun launa og verðbólgu. Haldi kjarasamningar, sem nú er orðið líklegt, og hækki opinber gjöld í takt við verðbólgumarkmið ætti að skapast svigrúm á næsta ári til vaxtalækkana, að því gefnu að staðan í alþjóðamálum þróist einnig með hagfelldum hætti. 

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum.