Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur

Margt bendir þó til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé smám saman að gefa eftir og gangi spá okkar eftir fara vextir að lækka eftir áramót.
Minni óvissa innanlands vekur von
Á síðustu vikum hefur dregið úr óvissu innanlands og að mörgu leyti má líta framtíðina björtum augum. Við teljum að vaxtahækkunarferlinu sé lokið og óvissa um framhald kjarasamninga hefur minnkað. Horfur hafa því batnað og við teljum líklegt að vaxtalækkanir geti hafist snemma á næsta ári. Það þýðir þó ekki að veturinn verði léttur. Við spáum því að atvinnuleysi aukist enn yfir veturinn, en taki síðan smám saman að minnka á næsta ári. Fasteignamarkaðurinn verður áfram rólegur og vöxtur einkaneyslu hægari. Óvissa um alþjóðlega þróun, ekki síst olíuverð, er áfram mikil.
Við spáum því að hagvöxtur verði 1,3% í ár og 1,5% á næsta ári. Þetta er afar hófstilltur vöxtur í sögulegu samhengi. Hann verður borinn uppi af fjölbreyttum útflutningi, en álútflutningur nær sér á strik ásamt því sem við gerum ráð fyrir vexti í ferðaþjónustu og að fjölbreyttir vaxtarsprotar halda áfram að blómstra. Við spáum samdrætti í íbúðafjárfestingu næstu ár og afar hófstilltum verðhækkunum á íbúðamarkaði. Það má þó gera ráð fyrir áframhaldandi framgangi ýmissa stærri fjárfestingaráforma, til að mynda tengt orkuöflun og gagnaverum.
Toppi verðbólgunnar náð
Verðbólga hefur verið yfir 5% allt þetta ár, en við spáum því að hámarki hafi verið náð með 5,9% verðbólgu nú á haustmánuðum. Verðbólga verður þó tregbreytanleg næstu mánuði, en gangi spá okkar eftir ætti hún að vera komin undir 5% á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Aðstæður innanlands styðja þessa þróun, en slaki hefur myndast bæði á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði. Sátt náðist á vinnumarkaði með þeim afleiðingum að gildandi kjarasamningar halda og ríkið ætlar að halda aftur af gjaldahækkunum.
Við gerum ráð fyrir því að peningastefnunefnd geti hafið vaxtalækkunarferlið í febrúar og mun vaxtastigið fylgja verðbólgunni niður. Raunvextir verða nokkuð stöðugir allt spátímabilið, fara hæst í ríflega 3% en verða almennt á bilinu 2-3% á meðan verðbólga lækkar í átt að markmiði.
Helstu atriði hagspár til 2029
- Hagvöxtur verður 1,3% í ár, 1,5% á næsta ári og 2% árið 2028. Vöxturinn á næsta ári verður borinn uppi af auknum krafti útflutningsgreinanna. Álútflutningur nær sér á strik, ásamt því sem fjölbreyttir vaxtarsprotar á borð við gagnaver, lyf og fiskeldi færa okkur aukinn vöxt.
- Verðbólga hjaðnar og við teljum vaxtahækkunarferlinu lokið. Við spáum 5,5% meðalverðbólgu í ár, 4,3% á næsta ári og 3,4% árið 2028. Hóflegar launa- og gjaldskrárhækkanir ásamt minnkandi eftirspurn munu verða til þess að vaxtalækkunarferlið geti hafist eftir áramót.
- Gengið hefur styrkst mikið og hefur náð stigi sem er ósjálfbært til lengdar. Því mun koma til veikingar en þótt krónan veikist mun raungengið gefa hægt eftir, þar sem meiri verðbólga hér en í viðskiptalöndum vegur á móti þeirri þróun.
- Það hægir verulega á vexti einkaneyslu, sem eykst aðeins um 0,9% í ár en um 1-3% árlega á síðari árum spátímans. Háir vextir, aukið atvinnuleysi og hægari kaupmáttarvöxtur hafa dregið úr neysluvilja og neyslugetu heimila. Við teljum þó að einkaneyslan taki smám saman við sér þegar vextir fara að lækka og heimili ganga í auknum mæli á uppsafnaðan sparnað.
- Fjármunamyndun mun nánast standa í stað á milli ára í ár en dregst saman á næsta ári þar sem hægir á gagnaversfjárfestingum. Stóriðjufjárfestingar verða aftur á móti talsverðar á spátímanum.
- Horfur eru á talsverðum vexti útflutnings á næsta ári, eða 3,3%, eftir lítinn vöxt í ár, eða 0,6%. Horfur batna á næsta ári þar sem álútflutningur nær sér á strik eftir bilun á kerlínu Norðuráls. Við gerum ráð fyrir auknu flugframboði sem styður við ferðaþjónustu. Vaxtarsprotar halda áfram að færa okkur útflutningsvöxt og má þar helst nefna eldisfisk, gagnaver og lyf. Samanlagt mun útflutningur vaxa um 2,6% og 2,7% á síðari tveimur árum spátímans.
- Það dregur úr launaskriði í takt við hægagang í hagkerfinu. Við gerum þó ráð fyrir 5,1% hækkun launa á næsta ári sem kemur í kjölfar 5,8% hækkunar í ár. Kaupmáttur eykst aðeins lítillega í ár og á næsta ári, en meira á síðari árum spátímans samhliða minni verðbólgu. Atvinnuleysi verður nokkuð hátt í ár, eða 4,5%, og 4,4% á næsta ári á meðan vextir eru háir og hagkerfið í hægum vexti.
- Íbúðamarkaður er áfram rólegur og við gerum ráð fyrir hóflegum verðhækkunum á næstu misserum. Framboð hefur aukist hratt og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að nafnverð hækki um 1,9% í ár og um 2% á næsta ári, sem mun leiða til raunverðslækkana bæði árin. Á síðari árum spátímans, þegar vextir hafa lækkað og eftirspurn tekið við sér, gerum við ráð fyrir nokkuð meiri nafnverðshækkunum.

