Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 0,25 pró­sentu­stiga hækk­un stýri­vaxta í næstu viku

Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.
Stýrivextir
13. maí 2026

Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun miðvikudaginn 20. maí. Nefndin hækkaði vexti um 0,25 prósentustig við síðustu ákvörðun og standa meginvextir bankans nú í 7,5%. Þá var gefið sterklega í skyn að hækkunarferlið sem hófst í mars þyrfti að halda áfram og við spáum því að nefndin hækki vexti á ný í maí, um 0,25 prósentustig. Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og mældist almennt undir væntingum. Verðbólga er því sú sama og þegar nefndin hittist síðast og raunstýrivextir nokkurn veginn þeir sömu miðað við liðna verðbólgu. Nefndin tók skýrt fram við síðustu ákvörðun að hún væri tilbúin að herða taumhaldið enn frekar og teljum við því líklegt að svo verði.

Verðbólga hefði hjaðnað ef ekki væri fyrir bensínið

Líkt og fyrr segir hefur verðbólga staðið í stað frá síðasta fundi nefndarinnar. Ef rýnt er í framlag ólíkra liða sést aftur á móti að framlag flestra liða til verðbólgu hefur dregist saman frá síðasta fundi nefndarinnar. Bensín og aðrar innfluttar vörur vega 0,62 prósentustig til hækkunar verðbólgu á milli funda, meðan allir aðrir liðir til samans vega nánast jafn mikið til lækkunar. Að öðru óbreyttu hefði verðbólga því mælst 4,6% ef bensín og aðrar innfluttar vörur hefðu ekki hækkað.

Peningastefnunefnd getur haft áhrif á verðbólguvæntingar

Vissulega hafa stýrivaxtahækkanir á Íslandi ekki áhrif á heimsmarkaðsverð á bensíni. Þær geta þó haft áhrif á verðbólguvæntingar, sem dregur úr verðbólguþrýstingi. Verðbólguvæntingar skipta miklu máli, meðal annars þegar kemur að stöðunni á vinnumarkaði. Ef heimilin gera ráð fyrir meiri verðbólgu getur það haft áhrif á launakröfur þeirra. Á sama hátt geta væntingar fyrirtækja um hærri launakostnað haft áhrif á verðlagningu þeirra. Þannig getur verðbólga orðið þrálátari og viðvarandi.

Ekki hefur tekist að ná niður verðbólguvæntingum. Þvert á móti hafa þær hækkað nokkuð síðan í desember, samhliða aukinni verðbólgu. Við slíkar aðstæður verður erfitt að líta framhjá tímabundnum verðhækkunum sem koma erlendis frá. Það skýrir að okkar mati hvers vegna nefndin hækkaði vexti í mars og er ástæða þess að við teljum líklegt að hún hækki vexti aftur í næstu viku.

Niðurstöður nýrrar könnunar á væntingum markaðsaðila sýnir ennfremur að verðbólguhorfur hafa versnað og almennt gerir markaðurinn ráð fyrir því að vextir hækki í næstu viku.

Nefndin er reiðubúin að hægja enn frekar á hagkerfinu

Í yfirlýsingunni með síðustu vaxtaákvörðun sagði nefndin orðrétt að hún væri „tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.“ Við sjáum merki um að hagkerfið hafi hægt talsvert á sér. Atvinnuleysi hefur aukist, fjöldi starfandi dregist saman og hægt hefur á kortaveltu. Auk þess sýna gögn um veltu samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum samdrátt á fyrstu mánuðum árs og raunverð íbúða lækkar. Að öðrum kosti hefðu þessi merki um kólnandi hagkerfi líklega vegið þyngra gegn vaxtahækkun í næstu viku. Yfirlýsing nefndarinnar var skýr, hún er tilbúin að herða taumhaldið frekar, jafnvel þótt það hægi enn á efnahagsumsvifum, til að tryggja að verðbólga hjaðni að markmiði. Í ljósi þess teljum við líklegt að nefndin hækki vexti á ný í maí.

Við síðustu ákvörðun vildu tveir nefndarmenn ganga lengra og hækka um 0,5 prósentustig. Líkt og fyrr segir kom skýrt fram í máli nefndarinnar að hún væri tilbúin að herða taumhaldið enn frekar á næstu fundum. Við teljum því ólíklegt að nefndin velti fyrir sér óbreyttum vöxtum, heldur muni vilja hækka og við útilokum ekki að 0,5 prósentustiga hækkun verði aftur rædd, að minnsta kosti meðal einhverra nefndarmanna. Það verða svo 13 vikur í næstu ákvörðun sem er óvenjulangur tími milli funda. Á þeim tíma getur mikið gerst, ekki síst þegar líður að hausti, en gangi  verðbólguspá okkar eftir, skapast heimild til að segja kjarasamningum upp.

Í ljósi þrálátra verðbólguvæntinga, skýrra skilaboða nefndarinnar við síðustu ákvörðun og langs tíma fram að næsta fundi teljum við líklegt að peningastefnunefnd haldi hækkunarferlinu áfram og hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku.

Vaxtaákvarðanir peningastefnunefndar

Dags. Vikur frá seinasta fundi Ákv. Atkvæði með Atkvæði móti Kosið annað Meginvextir
7. febrúar 2024 11 óbr. ÁJ, RS, ÁP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
20. mars 2024 6 óbr. ÁJ, RS, ÁP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
8. maí 2024 7 óbr. ÁJ, RS, ÁP, HS AS (-0,25%)   9,25%
21. ágúst 2024 15 óbr. ÁJ, RS, TB, ÁP, HS     9,25%
2. október 2024 6 -0,25% ÁJ, RS, TB, ÁP, HS   HS (óbr.) 9,00
20. nóvember 2024 7 -0,50% ÁJ, RS, TB,  ÁÓP, HS     8,50%
5. febrúar 2025 11 -0,50% ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS     8,00%
19. mars 2025 6 -0,25% ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS     7,75%
21. maí 2025 9 -0,25% ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS   HS (óbr.) 7,50%
20. ágúst 2025 13 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
8. október 2025 7 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
19. nóvember 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     7,25%
4. febrúar 2026 11 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,25%
18. mars 2026 6 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB ÁÓP, HS (+0,50%)   7,50%
20. maí 2026 9          
19. ágúst 2026 13          
7. okt. 2026 7          
18. nóv. 2026 6          

AS: Arnór Sighvatsson, ÁJ: Ásgeir Jónsson, ÁÓP: Ásgerður Ósk Pétursdóttir, GJ: Gunnar Jakobsson, GZ: Gylfi Zoëga, HS: Herdís Steingrímsdóttir, RS: Rannveig Sigurðardóttir, TB: Tómas Brynjólfsson, ÞGP: Þórarinn G. Pétursson
Heimild: Seðlabanki Íslands

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð. 
18. sept. 2026
Kortavelta heimilanna dróst saman í ágúst
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.
17. sept. 2026
Spáum 5,8% verðbólgu í september
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.
Vikubyrjun
14. sept. 2026
Vikubyrjun14. september 2026
Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.