Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Korta­velta heim­il­anna dróst sam­an í ág­úst

Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.
18. september 2026

Greiðslukortavelta heimila dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Þetta er mesti samdráttur sem hefur mælst síðan í október 2023. Kortavelta erlendis jókst um 3,8% í ágúst á föstu gengi, sem er minnsti vöxtur sem hefur mælst síðan í apríl 2024. Kortavelta Íslendinga innanlands dróst saman um 2,6% að raunvirði á milli ára sem er svipuð þróun og hefur sést á allra síðustu mánuðum, að júní undanskildum en þá jókst kortaveltan lítillega. Þessi gögn eru vísbending um að það hægi á vexti einkaneyslu og benda til þess að aukið vaxtaaðhald Seðlabankans síðustu mánuði sé farið að hafa áhrif.

Stór hluti neyslunnar fer fram erlendis

Það sem af er ári hefur hlutfall neyslu Íslendinga sem fer fram erlendis verið á bilinu 24-26,5%. Í júlí var hlutfallið 26,5% og hefur aldrei mælst hærra. Sé litið til þróunar á milli ára þá jókst kortavelta, sem fyrr segir, um 3,8% á milli ára í ágúst miðað við fast gengi, sem er talsvert minni vöxtur en hefur mælst á síðustu mánuðum. Frá áramótum hefur að jafnaði mælst um 12% aukning á milli ára á mánaðarlegri kortaveltu heimilanna erlendis að teknu tilliti til gengis.

Dregið hefur úr utanlandsferðum Íslendinga í ár

Talsvert hefur dregið úr utanlandsferðum Íslendinga það sem af er ári, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Nú í ágúst fóru Íslendingar í um 10% færri utanlandsferðir en í ágúst í fyrra, en samdráttur hefur mælst í utanlandsferðum Íslendinga alla mánuði ársins að júlí undanskildum. Það sem af er ári hefur utanlandsferðum Íslendinga fækkað um rúmlega 10% frá sama tímabili í fyrra. Í þessu samhengi er vert að benda á að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem notuð eru á ferðalögum erlendis og frá erlendri netverslun.

Hægir á vexti neyslu

Kortaveltutölur ágústmánaðar benda til þess að það hægi á neyslu landsmanna þar sem nú mælist samdráttur á milli ára, en slíkt hefur aðeins gerst einu sinni á þessu ári. Þróunin bendir jafnframt til þess að hluti neyslu Íslendinga færist frá innlendri verslun í erlenda. Engu að síður er vöxturinn í kortaveltu erlendis í ágúst sá minnsti frá því á fyrri hluta árs 2024, samkvæmt þessum tölum. Einkaneysla á öðrum ársfjórðungi jókst um 0,8%, sem var talsvert minni vöxtur en á fyrsta fjórðungi ársins, þegar hún jókst um 1,7%. Þessi gögn benda til þess að jafnvel megi gera ráð fyrir enn hófstilltari vexti á þriðja ársfjórðungi.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.