Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.

28. september 2026
Vikan framundan
- Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september og við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%. Seðlabankinn birtir ársfjórðungslega Hagvísa.
- Á miðvikudag birtir Hagstofan fjölda gistinótta í ágúst.
- Á föstudaginn birtast tölur um atvinnuleysi í Bandaríkjunum og um verðbólgu á evrusvæðinu.
Mynd vikunnar
Vísitala launa hækkaði um 0,1% á milli mánaða í ágúst og árshækkun vísitölunnar var óbreytt í 5,7%. Verðbólga í ágúst var aðeins minni, eða 5,6%. Kaupmáttur launa, það er laun leiðrétt fyrir verðlagi, var því svo gott sem óbreyttur á milli ára. Frá því að hagkerfið náði sér aftur á strik eftir fall viðskiptabankanna árið 2008 hafa laun nær alltaf hækkað meira en verðbólga, ef frá eru taldir nokkrir mánuðir á árunum 2022 og 2023.
Það helsta frá vikunni sem leið
- HMS birti niðurstöður út septembertalningu á fjölda íbúða í byggingu. Samkvæmt talningunni hefur íbúðum í byggingu fækkað á sama tíma og nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað. Spá um nýjar fullbúnar íbúðir 2027 og 2028 hefur verið lækkuð frá marstalningunni.
- Seðlabankinn birti yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt Fjármálastöðugleika 2026/2. Að mati nefndarinnar er fjármálakerfið hér á landi traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Nefndin ákvað að halda sveiflujöfnunaraukanum óbreyttum í 2,5%.
- Moody‘s staðfesti A1-lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.
- Fjármálaeftirlitið veitti Íslandsbanka heimild fyrir endurkaupum eigin hlutabréfa. Kaldalón birti niðurstöðu úr endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi. Arion bank hóf annan fasa söluferlis Blikastaðalands ehf.
- Lánamál ríkisins birti niðurstöður viðbótarútgáfu. Orkuveita Reykjavíkur lauk sölu á grænum skuldabréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

21. okt. 2026
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.

19. okt. 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.

19. okt. 2026
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.

15. okt. 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.

12. okt. 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.

7. okt. 2026
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma. Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.

5. okt. 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum.

1. okt. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. sept. 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.

29. sept. 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.