Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Nær jafn­marg­ir ferða­menn þrátt fyr­ir minna flug

Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
21. september 2026

Erlendum ferðamönnum fækkaði aðeins um 1% milli ára á fyrstu átta mánuðum ársins, þótt flugframboð og heildarfarþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll hafi dregist mun meira saman. Minna flugframboð hefur fyrst og fremst komið fram í færri tengifarþegum og utanlandsferðum Íslendinga. Ferðaþjónustuútflutningur dróst saman að raunvirði á fyrri hluta árs, þar sem bæði neysla ferðamanna hér á landi og farþegaflutningar með flugi drógust saman. Aukin kortavelta í júlí og ágúst bendir hins vegar til þess að ferðalagaliðurinn hafi tekið við sér yfir sumarið. Sólmyrkvinn virðist hafa haft meiri áhrif á neyslu ferðamanna en fjölda þeirra, þar sem nánast jafnmargir komu til landsins í ágúst í ár og í fyrra.

Minna flugframboð hefur lítil áhrif á fjölda ferðamanna 

Tæplega 10% færri farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum Isavia. Þrátt fyrir það bendir talning Ferðamálastofu til þess að ferðamönnum til landsins hafi fjölgað lítillega frá sama mánuði í fyrra sem líklega má rekja til aukinnar eftirspurnar vegna sólmyrkvans. Þróunin frá áramótum hefur verið svipuð en samkvæmt talningu Ferðamálastofu hefur erlendum ferðamönnum aðeins fækkað um 1% frá síðasta ári á sama tíma og umferð um Keflavíkurflugvöll hefur dregist saman um 8%, samkvæmt fyrrnefndum tölum Isavia. Þess í stað hefur tengifarþegum fækkað verulega á milli ára, eða um 22% það sem af er ári. Utanlandsferðum Íslendinga hefur einnig fækkað, eða um 10%. 

Flutningstölur Icelandair fyrir ágúst styðja þessa þróun, en þar kemur fram að félagið hafi lagt aukna áherslu á farþega til og frá landinu og dregið úr áherslu á tengifarþega. Þau fluttu 5% færri farþega í ágúst í ár en í fyrra, en samdrátturinn var þó mestur hjá tengifarþegum sem voru 27% færri. Farþegum til og frá landinu fjölgaði um rúmlega 11%.  

Ferðaþjónusta er bæði ferðalög og farþegaflutningar 

Útflutningstölur Hagstofunnar um ferðaþjónustu má í grófum dráttum skipta í ferðalög og farþegaflutninga með flugi. Ferðalög mæla neyslu erlendra ferðamanna hér á landi en farþegaflutningar með flugi mæla tekjur flugfélaga af erlendum farþegum, þar á meðal tengifarþegum.  

Þessi aðgreining skiptir sérstaklega máli í ár. Fjöldi ferðamanna hefur haldist nokkuð stöðugur og það sama má segja um fjölda gistinátta ferðamanna. Kortavelta erlendra ferðamanna á föstu gengi jókst á fyrri hluta árs, en ef leiðrétt er fyrir innlendu verðlagi dróst hún hins vegar saman. Aukning í kortaveltu dugði því ekki til að vega upp verðhækkanir hér á landi og neysla ferðamanna dróst því saman að raunvirði. Á sama tíma hefur minna flugframboð til og frá landinu dregið úr tekjum flugfélaga af erlendum ferðamönnum, sér í lagi vegna tengifarþega. 

Þetta sést skýrt í þjónustuútflutningstölum Hagstofunnar þegar þær eru skoðaðar á föstu verðlagi. Bæði ferðalög og farþegaflutningar með flugi hafa dregist saman frá lokafjórðungi síðasta árs. Samdrátturinn á fyrstu tveimur fjórðungum þessa árs er um 7,5%, þar sem farþegaflutningar með flugi hafa dregist saman um 11,6% en ferðalög um 5,7%. 

Horfur skárri á seinni hluta ársins 

Kortavelta erlendra ferðamanna, leiðrétt fyrir verðlagi, jókst á milli ára bæði í júlí og sérstaklega í ágúst, stærsta ferðaþjónustumánuði ársins. Það bendir því til þess að ferðalagaliður þjónustuútflutnings hafi tekið við sér á þriðja ársfjórðungi, ekki síst vegna aukinnar eftirspurnar vegna sólmyrkvans í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á ferðaþjónustuna virðist þannig hafa komið skýrar fram í aukinni neyslu ferðamanna þótt þeir hafi verið svipað margir og í fyrra, en raunvirði kortaveltu þeirra jókst töluvert.  

Farþegaflutningar með flugi verða líklega áfram veikari á seinni hluta ársins. Horfurnar eru þó betri en á fyrri hluta árs, ekki síst vegna grunnáhrifa, en framboð dróst verulega saman frá október í fyrra þegar flugfélagið Play féll. Spá Isavia gerir þannig áfram ráð fyrir samdrætti í flugframboði á seinni hluta ársins, en þó minni en var á fyrri hluta árs. 

Stóra myndin er því sú að eftirspurn eftir ferðum til Íslands hefur reynst nokkuð stöðug þrátt fyrir minna flugframboð. Aðlögunin hefur einkum komið fram í færri tengifarþegum og utanlandsferðum Íslendinga en ekki í mikilli fækkun erlendra ferðamanna. Engu að síður hefur ferðaþjónustuútflutningur dregist saman að raunvirði á fyrri hluta árs, bæði vegna minna flugframboðs og þess að aukin neysla ferðamanna hélt ekki í við verðbólgu. 

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.