Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un14. sept­em­ber 2026

Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.
Vikubyrjun
14. september 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
  • Á miðvikudag birtir HMS vísitölu leiguverðs. Sama dag er vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum og verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
  • Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu og Seðlabankinn birtir greiðslumiðlun í ágúst. Einnig er vaxtaákvörðun í Bretlandi.

Mynd vikunnar

Samþjöppun hefur átt sér stað í lífeyrissjóðskerfinu. Um áramótin rann Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands inn í Frjálsa lífeyrissjóðinn og Almenni lífeyrissjóðurinn og Lífsverk sameinuðust. Sameinaður sjóður Almenna lífeyrissjóðsins og Lífsverks skrifaði svo í ágúst undir viljayfirlýsingu við SL lífeyrissjóð um sameiningu. Í síðustu viku undirrituðu Gildi og Festa samrunasamning. Gangi þessar fyrirhuguðu sameiningar eftir verður sameinaður sjóður Gildis og Festu næststærsti lífeyrissjóður landsins og sameinaður sjóður Almenna, Lífsverks og SL sá fjórði stærsti. Þrír stærstu sjóðirnir munu þá ráða yfir helmingi eigna lífeyrissjóðskerfisins og tíu stærstu sjóðirnir yfir 92% þeirra.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Um 314 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst og er þetta nýtt met í fjölda ferðamanna í einum mánuði. Hóflegur vöxtur frá því í ágúst í fyrra, þrátt fyrir sólmyrkvann, gæti gefið til kynna að við höfum einfaldlega náð hámarksfjölda erlendra ferðamanna sem við getum tekið við í einum mánuði. Tölurnar ríma við farþegatölur Icelandair sem voru birtar fyrr í vikunni, þar sem fram kom að farþegum til og frá Íslandi hefði fjölgað en að tengifarþegar væru færri. Minna framboð af flugsætum til og frá landinu hefur haft lítil áhrif á komur erlendra ferðamanna til landsins en þess í stað dregið úr fjölda tengifarþega og utanlandsferðum Íslendinga, sem fækkaði um 10% á milli ára í ágúst.
  • Fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027. Kynnt voru hallalaus fjárlög þar sem grípa á til aðgerða bæði á tekju- og útgjaldahliðinni. Gjaldahækkanir munu koma til framkvæmda um næstu áramót verði frumvarpið samþykkt og munu hafa áhrif á verðbólgumælingar. Þar vegur þyngst 15,9% hækkun kílómetragjalds.
  • Bæði tölur um fjölda starfandi og skráð atvinnuleysi benda til þess að áfram hægist um á vinnumarkaði. Fjöldi starfandi stóð í stað á milli ára í júlí, skráð atvinnuleysi var 3,9% í ágúst og jókst um 0,5 prósentustig á milli ára.
  • Seðlabankinn ákvað að auka reglubundin gjaldeyriskaup.
  • Seðlabanki Evrópu hækkaði vexti um 0,25 prósentustig, sem var í samræmi við væntingar.
  • Verðbólga í BNA var óbreytt í 3,4% í ágúst. Eldsneytisverð er áfram stærsti drifkraftur verðbólgunnar, en bensín skýrði þriðjung af 0,4% hækkun vísitölunnar á milli mánaða. Nær öruggt er talið að Seðlabanki Bandaríkjanna hækki vexti í næstu viku.
  • Eik, Reitir og Kaldalón gáfu út skuldabréf. Alma gaf út víxla. Landsbankinn hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum ásamt skiptiútboði. Lánamál ríkisins birtu niðurstöðu úr viðbótarútgáfu.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 14. september 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.