Vikan framundan
- Á morgun birtir Hagstofan vísitölu launa í ágúst.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn Fjármálastöðugleika ásamt yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.
Mynd vikunnar
Samkvæmt talningu HMS sem fór fram fyrr í mánuðinum á fullbúnum íbúðum, eru nú um 1.850 íbúðir sem hafa klárast en ekki verið teknar í notkun. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS. Til samanburðar voru um 600 fullbúnar íbúðir sem höfðu ekki verið teknar í notkun í september talningu HMS fyrir tveimur árum. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru að meðaltali seldar ríflega 100 nýjar fullbúnar íbúðir á mánuði, þannig að með þessum söluhraða má ætla að það tæki rúmlega 17 mánuði að selja þennan lager.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði þriðja mánuðinn í röð um 0,09% á milli mánaða. Ársbreyting vísitölunnar mælist nú 2,3%. Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,15% á milli mánaða í ágúst, ársbreyting vísitölunnar er nú 4,2%.
- Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Þetta er mesti samdráttur síðan í október 2023. Kortavelta Íslendinga erlendis jókst um 3,8%, sem er minnsti vöxtur síðan í apríl 2024 en kortavelta Íslendinga innanlands dróst saman um 2,6%.
- Í síðust viku fóru fram verðmælingar fyrir vísitölu neysluverðs í september. Við spáum að vísitalan hækki um 0,23% á milli mánaða og að verðbólga hækki úr 5,6% í 5,8%.
- Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði vexti um 0,25 prósentustig, vextir bankans hækka því úr 3,5-3,75% upp í 3,75-4%. Þetta er í fyrsta skipti í þrjú ár þar sem vextir bankans eru hækkaðir, en ákvörðunin var í takt við væntingar.
- Verðbólga í Bretlandi hækkaði úr 2,9% í 3,1% í ágúst. Peningastefnunefnd Englandsbanka hélt vöxtum óbreyttum, en þrír af níu nefndarmenn vildu hækka vexti um 0,25 prósentustig. Bæði verðbólgutalan og vaxtaákvörðunin var í samræmi við væntingar.
- Lánamál ríkisins lauk sölu á ríkisvíxlum og ríkisbréfum. Alma íbúðafélag, Brim og Lánasjóður sveitarfélaga seldu skuldabréf. Festi seldi víxla. Íslandsbanki seldi skuldabréf í íslenskum krónum sem telja til eiginfjárþáttar 2.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










