Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 5,8% verð­bólgu í sept­em­ber

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.
17. september 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% í ágúst og ársverðbólga jókst úr 5,3% í 5,6%. Við spáum nú 0,23% hækkun vísitölunnar í september og að ársverðbólga mælist 5,8%. Hagstofan birtir septembermælinguna þriðjudaginn 29. september.

Það eru tveir liðir sem hafa mest áhrif á spána í september. Mikil hækkun á eldsneyti hefur langmest áhrif til hækkunar, en á móti spáum við lækkun á flugfargjöldum til útlanda líkt og venjan er í septembermánuði vegna árstíðasveiflu.

Afsláttur af VSK á eldsneyti fellur úr gildi

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24% í 11% féll úr gildi um síðustu mánaðamót. Sú breyting ein og sér hækkar eldsneytisverð um tæplega 12%. Þar að auki hefur heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkað umtalsvert frá síðasta mánuði og spáum við því að verð á bensíni og díselolíu hækki um 16,8% á milli mánaða, í takt við verðathugun okkar.

Flugfargjöld lækka á milli mánaða í september

Flugfargjöld til útlanda lækka yfirleitt töluvert í ágúst og september eftir háannatíma í ferðaþjónustunni yfir sumarið. Við spáum því að þau lækki um 16,7% í september og hafi mest áhrif til lækkunar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verður 25% dýrara að fljúga til útlanda í september í ár en í september í fyrra.

Hækkun á heilbrigðisþjónustu

Komugjald á heilsugæslu á dagvinnutíma hækkaði um síðustu mánaðamót úr 500 krónum í 1.000 krónur og gjald á læknavakt, utan dagvinnutíma, hækkaði úr 3.100 krónum í 3.500 krónur. Þá hækkuðu gjöld vegna leghálsskimunar og brjóstakrabbameinsskimunar einnig. Við spáum því að liðurinn „heilsa“ hækki við þetta um 1,1% á milli mánaða og framlagið verði 0,04 prósentustig til hækkunar á vísitölunni. Matið er þó háð nokkurri óvissu, þar sem sundurliðun voganna breyttist um áramótin þegar nýtt flokkunarkerfi var tekið upp.

Nýtt komugjald fyrir sjúkra-, iðju- og talþjálfun var einnig tekið upp nú í september en samkvæmt Hagstofunni kemur sú breyting inn í mælingar í næsta mánuði. Við áætlum að sú breyting hafi einnig um 1% áhrif til hækkunar á heilsuliðnum í október og heildaráhrifin eru því aftur 0,04 prósentustig, gangi spáin eftir.

Sumarútsölur klárast

Sumarútsölurnar í júlí ganga yfirleitt til baka á tveimur mánuðum. Verð á fötum og skóm lækkaði um 4,7% í júlí og í ágúst hækkaði það til baka um 2,7%. Við gerum ráð fyrir því að þær gangi alveg til baka nú í september og að liðurinn hækki um 2%. Hið sama má segja um liðinn húsgögn og heimilisbúnaður: Hann lækkaði um 2,4% í júlí, hækkaði svo um 1,3% í ágúst og við gerum ráð fyrir um 1% hækkun nú í september.

Matarkarfan stendur nánast í stað

Við gerum ráð fyrir því að matarkarfan hækki um 0,07% í mánuðinum. Leiðandi vísitala verðlagseftirlits ASÍ bendir til þess að matarkarfan hafi lækkað um 0,1% frá septemberbyrjun. Við spáum þó einungis lítils háttar hækkun, m.a. vegna þess að ákvörðun verðlagsnefndar búvara um sirka 1,4% hækkun á heildsöluverði mjólkurvara tók gildi 11. September. Við teljum líklegt að áhrif þeirrar hækkunar eigi eftir að koma fyllilega fram í vísitölu ASÍ.

Reiknuð húsaleiga hækkar áfram

Við gerum áfram ráð fyrir því að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% á milli mánaða og leggi þannig til 0,10 prósentustig til hækkunar vísitölunnar. Síðustu mánuði hefur hækkunin verið nokkuð stöðug, í kringum 0,5%, þó stakar mælingar sveiflist í kringum meðaltalið. Við gerum ráð fyrir því að minni hækkanir á öðrum íbúða- og leiguverðsmælikvörðum fari að endurspeglast í reiknuðu húsaleigunni á næstu mánuðum.

Spá um þróun VNV í september 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,2% 0,1% 0,01%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,4% 2,0% 0,07%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,3% 0,3% 0,02%
Reiknuð húsaleiga 20,9% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,0% 1,0% 0,04%
Heilsa 4,0% 1,1% 0,04%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% -0,3% -0,02%
Kaup ökutækja 4,5% 0,0% 0,00%
Bensín og díselolía 3,1% 16,8% 0,44%
Flugfargjöld til útlanda 2,6% -16,7% -0,53%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% 0,7% 0,03%
Afþreying, íþróttir og menning 9,0% 0,4% 0,04%
Menntun 1,1% 1,0% 0,01%
Hótel og veitingastaðir 5,7% -0,4% -0,03%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,4% 0,01%
Umhirða og félagsþjónusta 3,3% -0,4% -0,01%
Alls 100,0%   0,23%

Verðbólguspá til næstu mánaða hækkar

Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan hækki um 0,22% í september, 0,20% í október, lækki svo um 0,56% í nóvember og hækki um 1,06% í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,8% í september, 5,5% í október, 5,4% í nóvember og 5,3% í desember. Spáin er hærri en síðasta spá okkar, sem birt var eftir ágústmælingu Hagstofunnar. Munurinn skýrist aðallega af hærra heimsmarkaðsverði á bensíni vegna aukinna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.