Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hæg­ari verð­hækk­an­ir á íbúða­mark­aði og raun­verðs­lækk­an­ir í kort­un­um

Hátt vaxtastig, ströng lánþegaskilyrði og breytt lánaframboð hafa dregið úr verðhækkunum á íbúðamarkaði. Raunverð íbúða hefur nú lækkað nokkra mánuði í röð og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt og birgðatími hefur lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum.
27. apríl 2026

Vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 2,6% á síðustu tólf mánuðum samkvæmt nýjustu gögnum HMS. Þróunin hefur verið afar hæg undanfarið en í desember sl. mældist árshækkunin 2,1% og hafði ekki mælst jafn lítil frá því í september 2023. Síðan hafa tólf mánaða hækkanir verið á bilinu 2,1-2,6%. Síðustu fimm mánuði hafa íbúðaverðshækkanir á ársgrundvelli verið minni en hækkanir á almennu verðlagi sem þýðir að íbúðaverð hefur lækkað að raunvirði, um 2,2% á síðustu tólf mánuðum.

Í nýrri hagspá kemur fram að við teljum að hátt raunstýrivaxtastig, ströng lánþegaskilyrði og breytt lánaframboð dragi úr eftirspurn á íbúðamarkaðnum sem mun hafa talsverð áhrif á verðþróun. Raunverð íbúða hefur nú lækkað á milli ára nokkra mánuði í röð og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Minni verðhækkanir og háir raunstýrivextir sem útlit er fyrir að hækki enn frekar kunna að verða til þess að verktakar sjái hvata í því að lækka verð frekar en að sitja á óseldum íbúðum.

Hægari gangur á íbúðamarkaði birtist meðal annars í því að framboð íbúða til sölu eykst hratt og birgðatími lengist til muna, þá sérstaklega á nýjum íbúðum. Samkvæmt marstalningu HMS voru um 8.400 íbúðir í byggingu á landinu öllu, sem er um 16% aukning frá því í mars í fyrra. Fullbúnar óseldar íbúðir hafa safnast hratt upp á síðustu misserum og eru nú um tvöfalt fleiri en fyrir ári síðan og um 41% fleiri en í september í fyrra.

Útlit fyrir áframhaldandi samdrátt í íbúðafjárfestingu

Á síðasta ári mældist tæplega 6% samdráttur í íbúðafjárfestingu frá fyrra ári. Frá 2021 til 2023 mældist einnig samfeldur samdráttur en árið 2024 var kröftugt ár og íbúðafjárfesting jókst um 18%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum sýnir merki um að hægt hafi talsvert á veltunni á síðustu misserum. Samhliða hefur dregið úr innflutningi byggingarefnis og starfsfólki í byggingariðnaði fækkar á milli ára. Á síðustu mánuðum hafa horfur versnað og verðbólga hefur aukist. Útlit er fyrir áframhaldandi háa raunvexti auk þess sem lánaframboð hefur breyst sem þrengir að kaupendum. Samhliða hægist á veltu á markaði og nýjum íbúðum til sölu fjölgar hratt. Það ætti því að hægja á frekari uppbyggingu og draga úr íbúðafjárfestingu.

Í nýrri hagspá okkar gerum við ráð fyrir því að íbúðafjárfesting dragist saman um 3,5% á þessu ári en aukist síðan lítillega 2027 og 2028.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.