Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 4,9% verð­bólgu í maí

Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í maí. Gangi spáin eftir mun verðbólga lækka úr 5,2% í 4,9%. Lægra eldsneytisverð vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkun flugfargjalda hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða samkvæmt spánni. Við spáum að verðbólga mælist 4,9% í ágúst og kjarasamningar því mögulega í húfi.
12. maí 2026

Verðbólga lækkaði á milli mánaða í apríl sem mátti að stórum hluta rekja til minni hækkana á flugfargjöldum til útlanda í apríl í ár, samanborið við apríl í fyrra. Flestir aðrir liðir voru einnig til lækkunar, að eldsneytisliðnum undanskildum, en áhrif hans voru töluverð til hækkunar. Í maí gerum við ráð fyrir að lækkun á eldsneytisverði, vegna tímabundinnar lækkunar á virðisaukaskatti, hafi mest áhrif til lækkunar.

Eldsneytisverð lækkar í maí, vegna lækkunar á virðisaukaskatti

Samkvæmt verðmælingu okkar hefur verð á bensíni og dísilolíu lækkað um 7,1% frá því í apríl. Lækkun má sem fyrr segir rekja til tímabundinnar lækkunar á virðisaukaskatti, úr 24% í 11%. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur sveiflast nokkuð frá verðkönnunarvikunni í apríl. Það sem fór tímabundið yfir í 120 bandaríkjadali á tunnu í lok apríl, en hefur lækkað aftur á allra síðustu dögum og er nú í kringum 105 bandaríkjadalir á tunnu. Til samanburðar var olíuverð mjög lágt í ársbyrjun og tunnan á um 60 bandaríkjadali. Það ríkir mjög mikil óvissa um þróun olíuverðs þessa dagana. Það sveiflast mikið með fréttaflutningi um framvindu deilna í Mið-Austurlöndum og er helsti óvissuþátturinn upp á við í spánni.

Flugfargjöld hafa hækkað töluvert

Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda lækki um 7,5% á milli mánaða í maí. Flugfargjöld lækka alla jafna í maí eftir páskahækkun í apríl. Það sem af er ári hafa flugfargjöld verið töluvert dýrari en sömu mánuði í fyrra. Fyrstu þrjá mánuði ársins voru þau um 20% dýrari en í fyrra en munurinn minnkaði aðeins í apríl og voru flugfargjöld þá um 8,2% dýrari en árið áður. Við gerum ráð fyrir svipaðri þróun allra næstu mánuði, þar sem minna flugframboð og hátt olíuverð munu áfram hafa áhrif á flugfargjöld.

Matarkarfan hækkar

Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ hefur verð á matarkörfunni hækkað um 0,10% frá því í apríl. Þar af hefur leiðandi vísitala ASÍ, sem byggir á nýjasta verði, hækkað um 0,23%. Við gerum ráð fyrir því að matarkarfan hækki aðeins meira, eða um 0,3%. Það skýrist af því að ákvörðun verðlagseftirlits búvara tók gildi í gær, en vísitala ASÍ var uppfærð fyrir helgi. Eftir ákvörðun verðlagseftirlits búvara hækkar heildsöluverð á mjólkurvörum um 2,2% og alla jafna hækkar verð út í búð sem því nemur. Verðsöfnunarvika Hagstofunnar hófst á fimmtudag í síðustu viku og lýkur á morgun og því ljóst að sú hækkun hefur áhrif á mælingar fyrir maímánuð.

Gerum áfram ráð fyrir minni hækkunum á húsnæðisliðnum

Eins og við höfum nýlega fjallað um gerum við ráð fyrir rólegri íbúðamarkaði á næstunni. Bæði hefur hægt á hækkunum á íbúða- og leiguverði og við gerum ráð fyrir að sú þróun endurspeglist í reiknaðri húsaleigu. Reiknuð húsaleiga hækkaði umfram spá okkar í síðasta mánuði, en mánuðina fyrir hafði hún hækkað minna en við spáðum. Við gerum ekki breytingar á spánni okkar og gerum því áfram ráð fyrir að næstu mánuði hækki liðurinn um 0,4% að meðaltali, þó mælingarnar sveiflist eitthvað í kringum það meðaltal.  

Spá um þróun VNV í maí 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,5% 0,3% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,5% 0,0% 0,00%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,3% 0,03%
Reiknuð húsaleiga 20,7% 0,4% 0,08%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,1% 0,1% 0,01%
Heilsa 4,0% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% -0,2% -0,01%
Kaup ökutækja 4,7% 0,4% 0,02%
Bensín og díselolía 2,8% -7,1% -0,21%
Flugfargjöld til útlanda 2,3% -7,5% -0,19%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% 0,4% 0,02%
Afþreying, íþróttir og menning 9,1% 0,5% 0,05%
Menntun 1,0% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,6% 1,0% 0,05%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,1% 0,00%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% -1,0% -0,03%
Alls 100,0%   -0,13%

Forsenduákvæði kjarasamninga virkjast gangi spá okkar eftir

Við gerum núna ráð fyrir að vísitalan lækki um 0,13% í maí, hækki um 0,49% í júní, 0,41% í júlí og 0,07% í ágúst. Gangi spáin eftir verður verðbólga 4,9% í maí, 4,5% í júní, 4,6% í júlí og 4,9% í ágúst. Spáin er lítið breytt frá síðustu spá sem við birtum þegar Hagstofan birti verðbólgutölur fyrir apríl. Gangi spá okkar eftir mun forsenduákvæðið í kjarasamningum vegna verðbólgu virkjast í ágúst sem þýðir að heimild skapast til þess að segja upp samningnum, ef ekki næst að semja um viðbrögð.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.