Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 19. fe­brú­ar 2024

Nokkur breyting hefur orðið á samsetningu vinnumarkaðarins hér á landi frá árinu 1991. Stjórnendum, sérfræðingum, sérmenntuðu starfsfólki, þjónustu- og verslunarfólki hefur fjölgað verulega á sama tíma og skrifstofufólki, bændum og fiskveiðifólki hefur fækkað.
Bátur
19. febrúar 2024

Vikan framundan

  • Á þriðjudag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs fyrir janúar. Síminn birtir uppgjör.
  • Á miðvikudag birtir Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar.
  • Á fimmtudag birtir Hagstofan vísitölu launa fyrir janúar. Brim uppgjör.
  • Á föstudag birtir Hagstofan vöru- og þjónustuviðskipti fyrir fjórða ársfjórðung 2023.

Mynd vikunnar

Um leið og menntunarstig hefur hækkað hér á landi og konur aukið hlutdeild sína á vinnumarkaði hefur samsetning starfa tekið þó nokkrum breytingum. Á tímabilinu frá 1991 og þar til nú hefur stjórnendum, sérfræðingum, sérmenntuðu starfsfólki og þjónustu- og verslunarfólki fjölgað verulega en skrifstofufólki, iðnaðarmönnum, bændum og fiskveiðifólki fækkað. Iðnaðarmönnum hefur einnig fækkað lítillega.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 19. febrúar 2024 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á ytri vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.Landsbankinn er viðskiptabanki sem starfar samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og starfar undir leyfi og eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.fme.is).
Þú gætir einnig haft áhuga á
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.