Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ferða­menn mun fleiri á þessu ári en því síð­asta – en fækk­aði í októ­ber

Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.
Ferðamenn
21. nóvember 2025

Tæplega tvær milljónir ferðamanna hafa heimsótt landið það sem af er ári, um 1,8% fleiri en á sama tíma í fyrra. Frá því í maí hefur ferðamönnum fjölgað á milli ára í hverjum einasta mánuði, að október undanskildum. Þá fækkaði ferðamönnum um 6,2% og hafa ekki verið færri í októbermánuði síðan árið 2022. Hér hlýtur fall Play í lok september að hafa spilað inn í. Það kann bæði að hafa gert það að verkum að hluti fyrirhugaðra heimsókna hingað til lands hafa fallið niður og einnig dregið úr flugframboði. Þá má líka vera að hátt raungengi sé farið að hafa áhrif á komu ferðamanna. Þótt gengið hafi veikst á undanförnum vikum er raungengið enn hátt, líkt og við fjölluðum um í nýlegri hagsjá.

Kortavelta dróst saman í október

Kortavelta ferðamanna í október dróst saman í takt við fækkun þeirra. Sé velta erlendra korta hér á landi í október borin saman við veltuna í október í fyrra dróst hún saman um 13,7% á föstu verðlagi á milli ára og á föstu gengi dróst hún saman um 3,7%. Það sem af er ári hefur erlend kortavelta aukist þó nokkuð frá fyrra ári, eða um 10% á föstu gengi.

Ekki er ólíklegt að fall Play haldi áfram að lita ferðaþjónustuna að einhverju leyti á allra næstu mánuðum, en þó má telja að önnur félög hlaupi í skarðið. Þróunin næstu mánuði kann einnig að velta á gengisþróun, en gengið hefur veikst nokkuð skarpt á síðustu vikum eftir áföll í útflutningsgreinunum.

Utanlandsferðum Íslendinga fjölgar sífellt á milli ára

Í október fóru rúmlega 56 þúsund Íslendingar erlendis, 3% fleiri en á sama tíma í fyrra. Landsmenn hafa aldrei farið í jafnmargar utanlandsferðir á fyrstu tíu mánuðum ársins eins og nú. Það sem af er ári hafa Íslendingar farið í um 18% fleiri utanlandsferðir en á sama tíma í fyrra og ferðunum hefur fjölgað  á milli ára alla mánuði ársins. Fjölgun utanlandsferða í október er í takt við aukna kortaveltu Íslendinga erlendis sem jókst um tæplega 24% á milli ára. Þetta er mesti vöxtur í kortaveltu erlendis síðan í apríl, þegar tímasetning páskanna átti stærstan þátt í aukningu á milli ára. Fyrir þann tíma hafði kortavelta erlendis ekki aukist jafn mikið frá því árið 2023. Í þessu samhengi ber að hafa í huga að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem eru notuð á ferðalögum til útlanda en einnig af kortum í erlendri netverslun.

Kortavelta Íslendinga innanlands jókst einnig talsvert í október, um 4%, og hefur ekki aukist jafn mikið síðan í maí 2024. Fall Play kann að hafa ýtt undir innlendu kortaveltuna, en fjöldi fólks þurfti að kaupa nýja flugmiða þegar flug með Play féllu niður.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Seðlabanki
12. mars 2026
Spáum hækkun stýrivaxta í næstu viku 
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting. 
Ísjaki að brotna
12. mars 2026
Spáum 5,4% verðbólgu í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
9. mars 2026
Verulegur halli á viðskiptum við útlönd í fyrra
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra. Erlend staða þjóðarbúsins versnaði á síðasta ári, en er engu að síðar mjög sterk. Krónan veiktist á móti evru í fyrra, en styrktist á móti bandaríkjadal. Sterk staða útflutningsgreina gæti stutt við krónuna á þessu ári þó órói á alþjóðasviðinu auki óvissuna.
Olíuvinnsla
9. mars 2026
Vikubyrjun 9. mars 2026
Talsvert minni halli var á viðskiptum við útlönd á fyrsta ársfjórðungi ársins en á sama fjórðungi árið áður. Í vikunni fáum við ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi.
Gönguleið
6. mars 2026
Atvinnuleysi ólíkt eftir hópum
Atvinnuleysi mjakast upp, störfum er hætt að fjölga og minni eftirspurn er eftir vinnuafli en áður. Aukið atvinnuleysi síðustu mánuði má þó nánast eingöngu rekja til erlends vinnuafls. Atvinnuleysi hefur lítið breyst meðal Íslendinga og er lítið í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir kólnun á vinnumarkaði hefur kaupmáttur launa aukist og einkaneysla haldist sterk, en það hefur stutt við eftirspurn og viðhaldið verðbólguþrýstingi.
Mánaðamót 2
2. mars 2026
Mánaðamót 2. mars 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. mars 2026
Vikubyrjun 2. mars 2026
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var hagvöxtur á síðasta ári 1,3%, en 0,6% samdráttur mældist á fjórða ársfjórðungi. Verðbólga hélst óbreytt á milli mánaða í febrúar og mælist 5,2%. Velta skv. VSK-skýrslum dróst saman á tímabilinu nóv-des í öllum þremur stóru útflutningsgeirunum.
27. feb. 2026
Hagvöxtur í fyrra drifinn áfram af einkaneyslu
Landsframleiðsla jókst um 1,3% á milli ára að raunvirði í fyrra, en dróst saman um 0,6% á fjórða ársfjórðungi. Einkaneysla var mjög sterk bæði á árinu í heild og á fjórða ársfjórðungi. Fjármunamyndun og innflutningur litaðist af uppbyggingu á gagnaverum, sem var þó nokkur á fyrri hluta árs, en minnkaði á þriðja ársfjórðungi og var lítil á þeim fjórða.
26. feb. 2026
Undirliggjandi þrýstingur eykst þrátt fyrir óbreytta verðbólgu
Verðbólga stóð í stað í febrúar og mælist áfram 5,2%. Vísitala neysluverðs hækkaði töluvert meira í febrúar en við spáðum. Mesta frávik frá okkar spá er vegna flugfargjalda til útlanda sem hækkuðu töluvert, en flestir liðir hækkuðu aðeins meira en við spáðum. Reiknuð húsaleiga hækkaði þó minna og Hagstofan leiðrétti verðmælingar á eldsneyti í janúar sem kemur til lækkunar nú, en hefði átt að þýða minni verðbólga í janúar.
Fasteignir
24. feb. 2026
Íbúðaverð tók stökk í janúar en raunverð íbúða lækkar áfram
Hækkun vísitölu íbúðaverðs á milli mánaða í janúar hefur ekki verið meiri síðan í byrjun árs 2024. Á síðustu mánuðum hefur þó dregið talsvert úr verðhækkunum á íbúðamarkaði og raunverð hefur lækkað á milli ára þrjá mánuði í röð. Við gerum ráð fyrir raunverðslækkunum á milli ára á allra næstu mánuðum, þó nafnverðslækkanir séu ólíklegri.