Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga ekki minni í fimm ár

Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.
Epli
27. nóvember 2025

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,48% á milli mánaða í nóvember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Verðbólga hjaðnar því um 0,6 prósentustig: úr 4,3% í 3,7%. Óhætt er að segja að talan hafi komið á óvart, en við spáðum því að vísitalan myndi hækka um 0,13% á milli mánaða og að verðbólga yrði óbreytt í 4,3%.

Það er einkum tvennt sem skýrir þessa miklu hjöðnun: Áhrif afsláttardaga í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við höfðum spáð.

Tilboðsdagar í nóvember hafa áhrif til lækkunar

Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár. Samkvæmt Hagstofunni skýrist það af því að „ekki er einungis um að ræða 2-3 daga eins og áður heldur tilboð sem teygja sig yfir marga daga og jafnvel vikur í mánuðinum“. Verð á fötum og skóm lækkaði um 2,7% á milli mánaða og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði um 2,2%. Nóvembermánuði undanfarinna ára hefur ekki komið til verðlækkana á borð við þessar.

Þótt afslættirnir komi til með að ganga til baka að miklu leyti í desember ber að hafa í huga að umfangsmeiri afsláttardagar kunna að skýrast af minni eftirspurn eftir vörum á borð við föt og heimilisbúnað og meiri þörf verslana til þess að hreinsa út af lagernum. Fata- og húsgagnaverslanir eru í samkeppni við erlendar netverslanir sem margar hverjar bjóða upp á margra daga afsláttartímabil í nóvember.

Flugfargjöld lækka meira en við spáðum

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við spáðum, eða um 14,3% í stað 5%. Nú er um 8% ódýrara að fljúga til útlanda en í október í fyrra. Lækkunin er athyglisverð í ljósi falls Play. Líkt og síðustu ár gerðum við ráð fyrir að flugfargjöld myndu lækka á milli mánaða í nóvember en við töldum þó að tímabundið minni samkeppni í flugi til og frá Íslandi myndi halda uppi flugfargjöldum.

Íslendingar hafa haldið áfram að ferðast mun meira til útlanda en í fyrra og fóru 3% fleiri utanlandsferðir í október í ár en á sama tíma í fyrra, en komum erlendra ferðamanna til landsins fækkaði á milli ára í október. Hugsanlega hefur eftirspurn erlendra ferðmanna eftir flugmiðum hingað til lands farið minnkandi á síðustu vikum og þar með dregið úr verðþrýstingi.

Verðbólguspá til næstu mánaða bjartari en áður

Þar sem októberverðbólgan var verulega undir væntingum breytist verðbólguspáin til næstu mánaða. Við gerum ráð fyrir að mánaðabreytingar í flugfargjöldum þróist með svipuðum hætti og síðustu ár og að verðið verði því áfram nokkrum prósentustigum lægra en síðustu ár. Þá teljum við að verðlækkun frá því í nóvember vegna tilboðsdaga í þeim mánuði gangi ekki að fullu til baka í desember, heldur verði verð áfram lítillega lægra en fyrir afsláttinn. Þannig ætlum við að lítillega minnkuð eftirspurn komi áfram fram í verðinu. Við spáum því að verðbólga haldist áfram í 3,7% í desember þegar vísitala neysluverðs hækkar um 0,43%.

Samt gerum við áfram ráð fyrir lítillega aukinni verðbólgu í janúar, eða 3,9%, þegar breytt gjaldtaka af ökutækjum tekur gildi. Þá spáum við því að vísitala neysluverðs lækki um 0,17%, en vísitalan lækkar að jafnaði í janúar vegna janúarútsala. Vörugjöld af bílum sem ganga fyrir jarðeldsneyti hækka, vörugjöld af rafbílum verða felld niður og styrkur til rafbílakaupa lækkar.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.
Vikubyrjun
27. júlí 2026
Vikubyrjun 27. júlí 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,3% í júlí. Áfram sjást merki um hægagang á fasteignamarkaði en fjölda kaupsamninga um íbúðarhúsnæði hefur fækkað á milli ára á sama tíma og fjöldi íbúða til sölu hefur aukist.
23. júlí 2026
Verðbólga jókst lítillega í júlí
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Að þessu sinni kom enginn undirliður mikið á óvart. Við búumst við að verðbólgan verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði.
Vikubyrjun
20. júlí 2026
Vikubyrjun 20. júlí 2026
Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára, bæði innanlands og erlendis. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði á milli mánaða, aðallega vegna lægra bensínsverðs. 
Vikubyrjun
13. júlí 2026
Vikubyrjun 13. júlí 2026
Ferðamannafjöldinn í júní dróst saman um 4,8% á milli ára og atvinnuleysi mældist 0,6 prósentustigum meira en fyrir ári síðan. Við spáum því að verðbólga í júlí muni mælast óbreytt á milli mánaða og standa í 5,2%.  
8. júlí 2026
Spáum óbreyttri verðbólgu í júlí
Við spáum því að verðbólga mælist 5,2% í júlí. Sumarútsölur og lægra bensínverð hafa áhrif til lækkunar í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda munu aftur á móti hafa mest áhrif til hækkunar gangi spá okkar eftir. Við teljum líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í næsta mánuði.
Vikubyrjun
6. júlí 2026
Vikubyrjun 6. júlí 2026
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði milli ára í maí, en gistinóttum Íslendinga fækkaði. Færri ný störf urðu til í Bandaríkjunum í júní en búist var við og verðbólga á evrusvæðinu í júní var lægri en búist var við.
Mánaðamót 2
1. júlí 2026
Mánaðamót 1. júlí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
29. júní 2026
Vikubyrjun 29. júní 2026
Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.