Vikubyrjun 17. nóvember 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.

17. nóvember 2025
Vikan framundan
- Í dag birtir Kaldalón tilkynningu fyrir þriðja ársfjórðung.
- Á morgun birtir Seðlabankinn greiðslumiðlun fyrir október og HMS birtir vísitölu íbúðaverðs í október.
- Á miðvikudag er vaxtaákvörðun hjá Seðlabankanum og við eigum von á óbreyttum vöxtum. Samhliða verða gefin út Peningamál. Þá birtir HMS vísitölu leiguverðs í október. Verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
- Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu hagdeildar fyrir október. Sama dag birta Brim og Hampiðjan uppgjör.
- Á föstudag birtir Hagstofan vísitölu launa í október.
Mynd vikunnar
Það fer ekki alltaf saman hvað markaðsaðilar telja Seðlabankann eiga að gera og hvað þeir halda að hann muni gera. Í síðustu könnun Seðlabankans meðal markaðsaðila töldu 83% svarenda taumhald peningastefnu of þétt eða allt of þétt og telja þar með stýrivexti of háa miðað við efnahagsástandið. Samt taldi meirihluti svarenda að peningastefnunefnd myndi halda vöxtum óbreyttum í vikunni.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Um 200 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í október, 6,2% færri en í október í fyrra. Uppsafnaður fjöldi ferðamanna á árinu er 1,8% meiri en á sama tíma í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga hélt áfram að fjölga, þó töluvert minna en síðustu mánuði og voru ferðirnar 3% fleiri en í október í fyrra. Það sem af er ári hafa Íslendingar farið í 18% fleiri utanlandsferðir en á sama tímabili í fyrra.
- Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október og jókst um 0,4 prósentustig á milli mánaða og 0,5 prósentustig á milli ára. Atvinnuleysi í tengslum við gjaldþrot Play er nú komið inn í gögnin. Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í október þar sem 25 starfsmönnum var sagt upp.
- Seðlabankinn ákvað að draga úr reglubundnum gjaldeyriskaupum.
- Oculis, Reitir, Eimskip, Alvotech, Amaroq og Iceland Seafood birtu uppgjör.
- Alvotech vann sigur í mikilvægu dómsmáli vegna framleiðslu og markaðssetningar AVT06 hliðstæðunnar við Eylea.
- Sýnatökur hjá Amaroq staðfesta hátt hlutfall sinks, blýs og silfurs ásamt hás hlutfalls af skilgreindum stofnmálmum í Black Angel námunni.
- Landsbankinn lauk sölu á sértryggðum skuldabréfum. Hafnarfjarðarkaupstaður lauk sölu á skuldabréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

9. mars 2026
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra. Erlend staða þjóðarbúsins versnaði á síðasta ári, en er engu að síðar mjög sterk. Krónan veiktist á móti evru í fyrra, en styrktist á móti bandaríkjadal. Sterk staða útflutningsgreina gæti stutt við krónuna á þessu ári þó órói á alþjóðasviðinu auki óvissuna.

9. mars 2026
Talsvert minni halli var á viðskiptum við útlönd á fyrsta ársfjórðungi ársins en á sama fjórðungi árið áður. Í vikunni fáum við ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi.

6. mars 2026
Atvinnuleysi mjakast upp, störfum er hætt að fjölga og minni eftirspurn er eftir vinnuafli en áður. Aukið atvinnuleysi síðustu mánuði má þó nánast eingöngu rekja til erlends vinnuafls. Atvinnuleysi hefur lítið breyst meðal Íslendinga og er lítið í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir kólnun á vinnumarkaði hefur kaupmáttur launa aukist og einkaneysla haldist sterk, en það hefur stutt við eftirspurn og viðhaldið verðbólguþrýstingi.

2. mars 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

2. mars 2026
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var hagvöxtur á síðasta ári 1,3%, en 0,6% samdráttur mældist á fjórða ársfjórðungi. Verðbólga hélst óbreytt á milli mánaða í febrúar og mælist 5,2%. Velta skv. VSK-skýrslum dróst saman á tímabilinu nóv-des í öllum þremur stóru útflutningsgeirunum.

27. feb. 2026
Landsframleiðsla jókst um 1,3% á milli ára að raunvirði í fyrra, en dróst saman um 0,6% á fjórða ársfjórðungi. Einkaneysla var mjög sterk bæði á árinu í heild og á fjórða ársfjórðungi. Fjármunamyndun og innflutningur litaðist af uppbyggingu á gagnaverum, sem var þó nokkur á fyrri hluta árs, en minnkaði á þriðja ársfjórðungi og var lítil á þeim fjórða.

26. feb. 2026
Verðbólga stóð í stað í febrúar og mælist áfram 5,2%. Vísitala neysluverðs hækkaði töluvert meira í febrúar en við spáðum. Mesta frávik frá okkar spá er vegna flugfargjalda til útlanda sem hækkuðu töluvert, en flestir liðir hækkuðu aðeins meira en við spáðum. Reiknuð húsaleiga hækkaði þó minna og Hagstofan leiðrétti verðmælingar á eldsneyti í janúar sem kemur til lækkunar nú, en hefði átt að þýða minni verðbólga í janúar.

24. feb. 2026
Hækkun vísitölu íbúðaverðs á milli mánaða í janúar hefur ekki verið meiri síðan í byrjun árs 2024. Á síðustu mánuðum hefur þó dregið talsvert úr verðhækkunum á íbúðamarkaði og raunverð hefur lækkað á milli ára þrjá mánuði í röð. Við gerum ráð fyrir raunverðslækkunum á milli ára á allra næstu mánuðum, þó nafnverðslækkanir séu ólíklegri.

23. feb. 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst alls um 5,4% á milli ára í janúar. Mánaðarbreyting vísitölu íbúðaverðs hefur ekki verið jafn mikil síðan í febrúar 2024, en hækkunin í janúar var drifin áfram af verðhækkunum á sérbýli. Vísitala leiguverðs lækkaði annan mánuðinn í röð.

16. feb. 2026
Erlendum ferðamönnum fækkaði um 1,8% á milli ára í janúar. Skráð atvinnuleysi hækkaði um 0,7 prósentustig frá fyrra ári og mælist nú 4,2%. Lausum störfum í Bandaríkjunum fjölgaði umfram væntingar.