Viku­byrj­un 28. ág­úst 2023

Í síðustu viku hækkaði Peningastefnunefnd vexti um 0,5 prósentustig. Auk þess birti SÍ Peningamál, HMS birti mánaðarskýrslu, Hagstofan birti veltu skv. VSK-skýrslum og vöru- og þjónustujöfnuð, auk þess sem nokkur uppgjör voru birt. Í þessari viku fáum við verðbólgutölur fyrir ágúst og þjóðhagsreikninga fyrir 2. ársfjórðung.
Ferðafólk
28. ágúst 2023

Vikan framundan

  • Í dag birtir Sjóvá uppgjör.
  • Á miðvikudag birtir Hagstofan ágústmælingu vísitölu neysluverðs. Við spáum því að ársverðbólgan lækki úr 7,6% í 7,5%. Reginn, Sýn og Iceland Seafood birta uppgjör.
  • Á fimmtudag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir 2F 2023 ásamt uppfærðum tölum fyrir 2022. Alvotech og Hampiðjan birta uppgjör.

Mynd vikunnar

Fyrir helgi birti Hagstofan talnaefni um veltu út frá VSK-skýrslum fyrir VSK-tímabilið maí-júlí. Alls jókst velta í viðskiptahagkerfinu að undanskilinni lyfjaframleiðslu, fjármála- og vátryggingastarfsemi um rétt yfir 11% milli fyrstu sex mánaða 2022 og 2023. Það er lítið sem kemur á óvart í veltunni, en mesti uppgangurinn er í ferðaþjónustu og byggingariðnaði á meðan það er samdráttur í álframleiðslu, fiskeldi og sjávarútvegi.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,5 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, eru eftir ákvörðunina 9,25%. Tónninn í yfirlýsingu nefndarinnar var mildari en í þeirri síðustu. Í stað þess að taka fram að „horfur eru því á að hækka þurfi vexti enn meira til að tryggja betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum og koma verðbólgu í markmið“ eins og síðast, stóð nú „vísbendingar eru um að áhrif vaxtahækkana undanfarin misseri séu að koma skýrar fram og mun peningastefnan á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga“. Nefndin heldur því þannig opnu hvert framhaldið verður og hagtölur næstu vikna hljóta að skera úr um það að miklu leyti. Næsta ákvörðun verður birt eftir sjö vikur, miðvikudaginn 4. október.
  • Samhliða yfirlýsingu nefndarinnar gaf Seðlabankinn út ritið Peningamál með uppfærðri verðbólgu- og þjóðhagsspá. Bankinn gerir nú ráð fyrir minni hagvexti í ár, 3,5% milli ára í stað 4,8% eins og hann spáði í maí. Bankinn lækkaði verðbólguspá sína lítillega. Í stað þess að gera ráð fyrir 8,1% verðbólgu á 4F 2023 og 5,0% verðbólgu 2024 gerir hann nú ráð fyrir 7,5% verðbólgu á 4F 2023 og 4,6% verðbólgu árið 2024.
  • Vöru- og þjónustujöfnuður var jákvæður um 3,6 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Eins og verið hefur síðustu misseri var mikill halli af vöruskiptum, en að sama skapi ríflegur afgangur af þjónustuviðskiptum. Útflutningsverðmæti ferðaþjónustu jókst verulega á milli ára á meðan útflutningsverðmæti sjávarafurða og áls dróst saman.
  • Hagdeild HMS birti mánaðarskýrslu fyrir ágúst.
  • Brim, Nova klúbburinn, Reitir, Síldarvinnslan og Síminn birtu uppgjör.
  • Landsbankinn hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum, Lánamál ríkísins hélt útboð ríkisbréfa og Kaldalón seldi víxla.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 28. ágúst 2023 (PDF)

Fyrirvari
Þessi umfjöllun og/eða samantekt er markaðsefni sem er ætlað til upplýsinga en felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningar eiga því ekki við, þar með talið bann við viðskiptum fyrir dreifingu. Umfjöllunin er unnin út frá opinberum upplýsingum frá aðilum sem Landsbankinn telur áreiðanlega, en bankinn getur ekki ábyrgst réttmæti upplýsinganna. Landsbankinn tekur enga ábyrgð á tjóni sem gæti hlotist af notkun upplýsinganna sem hér eru settar fram.

Upplýsingar um fyrri árangur fjármálagerninga eða -vísitalna sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef árangur byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur. Nánari upplýsingar um fyrri árangur fjármálagerninga og -vísitalna má finna á vef Landsbankans, þ.m.t. um ávöxtun síðastliðinna 5 ára.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra á vef Landsbankans.

Landsbankinn er viðskiptabanki sem starfar samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og starfar undir leyfi og eftirliti fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.fme.is).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur