Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 28. apríl 2025

Hagstofan birtir verðbólgutölur fyrir aprílmánuð á morgun og við búumst við að verðbólga hækki tímabundið upp í 4%. Í vikunni fáum við fyrstu uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung og fyrsta mat á hagvexti í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu á fyrsta ársfjórðungi.
USD
28. apríl 2025

Vikan framundan

  • Í dag birtir Seðlabankinn niðurstöður úr útlánakönnun meðal viðskiptabankanna.
  • Á þriðjudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir apríl. Við spáum því að verðbólga hækki úr 3,8% í 4,0%. Festi, Icelandair, Play, Síminn og Skagi birta uppgjör.
  • Á miðvikudag birtir Hagstofan gögn um gistinætur í mars og veltu samkvæmt VSK-skýrslum fyrir VSK-tímabilið janúar-febrúar. Landsbankinn birtir uppgjör og fyrsta mat á hagvexti í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu verður birt.
  • Á föstudag birtir Hagstofan niðurstöður úr vinnumarkaðsrannsókn og gögn um laus störf á fyrsta ársfjórðungi. Þá verða birtar atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum og verðbólgutölur á evrusvæðinu.

Mynd vikunnar

Gullverð hefur rokið upp á síðustu vikum og hækkað um 25% það sem af er ári. Verðið sló sögulegt met þann 22. apríl sl. þegar það fór í fyrsta sinn yfir USD 3.500 á únsu. Hækkunin er ekki síst rakin til þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði þá gert því skóna að Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, yrði látinn fara. Trump hafði ófögur orð um Powell og sakaði hann um að halda vöxtum of háum, stuttu eftir að Powell hafði lýst yfir áhyggjum af áhrifum tolla á bandarískt hagkerfi. Eftir því sem óvissa um efnahagshorfur og alþjóðaviðskipti eykst hefur almennt mátt búast við aukinni eftirspurn eftir Bandaríkjadal og bandarískum ríkisskuldabréfum, en einnig gulli. Orð forsetans hafa verið túlkuð sem aðför að sjálfstæði seðlabankans og vakið áhyggjur af minnkandi tiltrú á stöðugleika á mörkuðum þar í landi. Því hafa fjárfestar frekar horft til fjárfestinga í gulli heldur en dollurum eða bandarískum ríkisskuldabréfum.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 28. apríl 2025 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Flugvél
16. maí 2025
Íslendingar á faraldsfæti og kortavelta erlendis aldrei meiri
Kortavelta jókst um 9,4% á milli ára í apríl að raunvirði og erlendis jókst hún um 32,8%. Íslendingar hafa aldrei farið í fleiri utanlandsferðir í einum mánuði en í apríl síðastliðnum, samkvæmt gögnum Ferðamálastofu. Nýbirtar kortaveltutölur renna enn frekari stoðum undir spá um að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Neysla landsmanna hefur haldið dampi þrátt fyrir hátt vaxtastig og við teljum horfur á að einkaneysla aukist smám saman á næstu árum.
Bananar
15. maí 2025
Spáum 3,9% verðbólgu í maí
Við spáum því að verðbólga lækki úr 4,2% í 3,9% í maí. Horfur eru á að verðbólga hjaðni lítillega í sumar en aukist aftur með haustinu þegar einskiptisliðir vegna skólagjalda og skólamáltíða detta úr 12 mánaða taktinum. Við gerum ráð fyrir 4,0% verðbólgu í árslok.
Seðlabanki Íslands
15. maí 2025
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd geri hlé á vaxtalækkunarferlinu og haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í apríl og verðbólguvæntingar hafa haldist tiltölulega stöðugar. Þá virðist hagkerfið þola vaxtastigið vel, kortavelta hefur aukist sífellt síðustu mánuði og enn er þó nokkur velta á íbúðamarkaði. Peningalegt taumhald losnaði með aukinni verðbólgu í apríl og við teljum ólíklegt að peningastefnunefnd þyki tímabært að lækka raunstýrivexti enn frekar.
Sendibifreið og gámar
12. maí 2025
Vikubyrjun 12. maí 2025
Brottfarir um Keflavíkurflugvöll hafa aldrei verið jafnmargar í aprílmánuði eins og í apríl síðastliðnum og erlendir ferðamenn voru 6,5% fleiri en í apríl í fyrra. Skráð atvinnuleysi var 3,9% í apríl og minnkaði um 0,3 prósentustig frá því í mars. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt stýrivöxtum óbreyttum en Englandsbanki lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig. Báðar ákvarðanir voru í takt við væntingar.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
7. maí 2025
Stór hluti íslensks vöruútflutnings til Bandaríkjanna undanþeginn tollum
Ætla má að um þriðjungur íslenskra vara sem fluttar eru frá Íslandi til Bandaríkjanna sé undanþeginn þeim tollum sem nú eru í gildi, til dæmis lyf og flestar lækningavörur. Óvissa um framvindu mála í alþjóðaviðskiptum getur samt ein og sér leitt til þess að fyrirtæki halda að sér höndum og ráðast síður í nýjar fjárfestingar. Á síðasta ári fór um 12% af vöruútflutningi Íslands til Bandaríkjanna.
Dollarar og Evrur
5. maí 2025
Vikubyrjun 5. maí 2025
Í apríl jókst verðbólga úr 3,8% í 4,2%, nokkuð umfram okkar spá um 4,0% verðbólgu. Velta samkvæmt VSK-skýrslum jókst á milli ára í flestum atvinnugreinum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Á fyrsta ársfjórðungi mældist hagvöxtur á evrusvæðinu en samdráttur í Bandaríkjunum. Í þessari viku er vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum og einnig í Bretlandi.
2. maí 2025
Mánaðamót 2. maí 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Fasteignir
2. maí 2025
Leiguverð á hraðari uppleið en kaupverð undanfarið
Ör fólksfjölgun og hækkun húsnæðisverðs hefur aukið eftirspurn eftir leiguíbúðum. Stærstur hluti Airbnb-íbúða er nú leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu. Frumvarp um hert skilyrði um skammtímaleigu hefur verið sett í samráðsgátt. Hömlur á skammtímaleigu gætu aukið framboð leiguíbúða og jafnvel söluframboð. 
29. apríl 2025
Verðbólga yfir væntingum og mælist 4,2%
Verðbólga mældist 4,2% í apríl og hækkaði úr 3,8% frá því í mars. Verðbólga var umfram okkar spá, einkum vegna þess að reiknuð húsaleiga og verð á matvörum hækkaði meira en við bjuggumst við.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
28. apríl 2025
Versnandi efnahagshorfur í heiminum að mati AGS
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti nýja efnahagsspá um páskana. Hagvaxtarhorfur í heiminum hafa verið færðar niður og AGS telur að spenna í alþjóðaviðskiptum og veruleg óvissa komi til með að draga úr umsvifum í heimshagkerfinu.