Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 27. apríl 2026

Árshækkun vísitölu íbúðaverðs mældist 2,6% og vísitölu leiguverðs 6,3% í mars. Velta skv. VSK-skýrslum dróst saman að raunvirði á milli ára á VSK-tímabilinu jan-feb. Á miðvikudag birtir Hagstofan aprílmælingu vísitölu neysluverðs. Við spáum því að verðbólga hækki úr 5,4% í 5,5%.
Vikubyrjun
27. apríl 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birta Icelandair og Síminn árshlutauppgjör.
  • Á miðvikudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir apríl, við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,4% í 5,5%. Seðlabankinn birtir niðurstöðu úr útlánakönnun, Hagstofan birtir gistinætur, Festi og Skagi birta árshlutauppgjör og Hagar birta ársreikning. Seðlabanki Bandaríkjanna birtir vaxtaákvörðun.
  • Á fimmtudag birta Landsbankinn, Nova klúbburinn og Sjóvá árshlutauppgjör. Þá er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu og Englandsbanka. Sama dag verða birtar verðbólgutölur á evrusvæðinu.

Mynd vikunnar

Nokkuð ólík þróun hefur verið á heildarfjölda starfandi og fjölda starfandi hjá hinu opinbera, þ.e. í opinberi stjórnsýslu, fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónustu. Heildarfjöldi starfandi dregst jafnan saman í niðursveiflum og eykst aftur þegar betur árar. Fjöldi starfandi í opinberri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónustu breyttist hinsvegar lítið á árunum 2008 til 2017, en frá þeim tíma það hefur fjölgað nokkuð ört.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 27. apríl 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
22. apríl 2026
Vísbendingar um kólnandi hagkerfi
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 5% að raunvirði í janúar og febrúar, samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þá sýna nýleg gögn um fjölda starfandi að verulega hefur dregið úr fjölgun starfa sem stóð í stað á milli ára í febrúar.
20. apríl 2026
Merki um að innlend neysla sé að minnka
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.
Vikubyrjun
20. apríl 2026
Vikubyrjun 20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.
17. apríl 2026
Hagspá til 2028: Hagkerfi í hægum vexti
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.
Verðbólga
16. apríl 2026
Spáum 5,5% verðbólgu í apríl
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.
Vikubyrjun
13. apríl 2026
Vikubyrjun 13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.