Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum

Störfum á almenna markaðnum hefur fækkað á meðan störfum hjá hinu opinbera hefur fjölgað síðustu misseri. Samkvæmt nýjustu gögnum Hagstofunnar um fjölda starfandi, fjölgaði störfum í opinberri þjónustu um 2,9% í september frá sama tíma í fyrra, en störfum á almenna markaðnum fækkaði um 1,3% á sama tímabili.
Þegar litið er á einstakar greinar sést að fækkunin er einna mest í greinum tengdum ferðaþjónustu, þar sem störfuðu 1,5% færri nú í september en á sama tíma í fyrra. Einnig má sjá samdrátt í sjávarútvegi og byggingarstarfsemi. En á sama tíma starfa 2% fleiri við opinbera þjónustu en í september í fyrra. Boðaðar aðhaldsaðgerðir ríkisins fela meðal annars í sér að stöðugildum verði fækkað um 1% á næsta ári, að öðru óbreyttu ætti það að leiða til færri starfa í opinberri þjónustu.
Skýr merki um kólnandi vinnumarkað
Það sem af er ári hefur atvinnuleysi mælst 0,5-0,7 prósentustigum hærra en á sama tíma í fyrra samkvæmt skráðu atvinnuleysi Vinnumálastofnunar. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir að sú þróun haldi áfram næstu misseri og að atvinnuleysi nái hápunkti í vetur og mælist um 5%. Við gerum ráð fyrir að vextir lækki á næsta ári, samhliða hjöðnun verðbólgu, og í kjölfarið styrkist vinnumarkaðurinn eftir því sem atvinnulífið tekur smám saman við sér.
Í september birti Seðlabankinn niðurstöður úr ársfjórðungslegri könnun Gallup á meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja. Á þriðja ársfjórðungi þessa árs töldu einungis 14% fyrirtækja vera skort á starfsfólki og 86% fyrirtækja töldu nægt framboð til staðar. Hlutfallið hefur ekki verið svo hátt síðan á tímum faraldursins og er því skýrt merki um breyttan vinnumarkað síðustu misseri.
Spáum minnkandi launahækkunum, en áframhaldandi kaupmáttaraukningu
Undanfarið hefur dregið úr hækkunartakti launa eftir ríflegar launahækkanir síðustu ár. Í október náðist samkomulag á vinnumarkaði sem felur í sér að gildandi kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda. Við gerum ráð fyrir að laun fylgi þeim samningum og að launaskrið verði lítið á meðan atvinnuleysi mælist hátt og hægagangur ríkir í hagkerfinu. Launavísitalan hækkaði um 7,9% á síðasta ári. Það sem af er ári hefur vísitalan hækkað töluvert minna og í september var tólf mánaða hækkun hennar 5,6%.
Í hagspánni gerum við ráð fyrir nokkuð hóflegum launahækkunum næstu árin. Launavísitalan hefur að meðaltali hækkað um rúm 7% á hverju ári frá aldamótum. Við gerum ráð fyrir 5,8% hækkun í ár, 5,1% á næsta ári og 5,6% hækkun síðustu tvö ár spátímans.
Háir vextir, aukið atvinnuleysi og hægari kaupmáttarvöxtur hafa dregið úr neysluvilja og neyslugetu heimila. Gangi spá okkar eftir mun kaupmáttur aukast um 0,3% í ár og 0,8% á næsta ári. Við gerum ráð fyrir meiri kaupmáttaraukningu síðustu tvö ár spátímans, samhliða hjöðnun verðbólgu og auknum umsvifum í hagkerfinu. Horfur eru því á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði áfram hægur á næstunni. Kólnun hagkerfisins og slakari vinnumarkaður ættu þó að skapa svigrúm fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að hefja vaxtalækkanir snemma á næsta ári, þótt töluverð óvissa ríki um tímasetninguna.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.









