Í nýliðnum mánuði birtum við hagspá þar sem við gerum ráð fyrir afar hófstilltum vexti á næstu árum í sögulegu samhengi. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Margt bendir til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé smám saman að hjaðna og gangi spá okkar eftir fara stýrivextir að lækka eftir áramót.
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í takt við okkar spá. Verðbólga hefur nú mælst yfir 5% allt þetta ár. Mælingin var að mestu í samræmi við væntingar, en helst kom á óvart hækkun á verði pakkaferða til útlanda. Eldsneytisverð hækkaði aðeins meira en við höfðum spáð og skýrði langstærstan hluta hækkunar vísitölunnar á milli mánaða. Ný komugjöld höfðu einnig meiri áhrif en við höfðum gert ráð fyrir. Október var annar mánuðurinn í röð þar sem reiknuð húsaleiga hækkaði töluvert minna en sömu mánuði í fyrra sem hefur haft áhrif til lækkunar á verðbólgu.
Peningastefnunefnd Seðlabankans var einróma um að halda vöxtum óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun í byrjun október. Verðbólga hafði aukist frá síðasta fundi nefndarinnar, sem mátti helst rekja til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Næsta ákvörðun verður kynnt þann 18. nóvember og við gerum ráð fyrir að nefndin haldi vöxtum aftur óbreyttum.
Í september hækkaði íbúðaverð talsvert meira en síðustu mánuði, eða um rúmlega 1% á milli mánaða. Raunverð íbúða hefur þó lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Það sem af er ári hafa kaupsamningar um íbúðarhúsnæði verið færri en sömu mánuði í fyrra og sýnir íbúðamarkaðurinn því enn nokkur merki kólnunar.
Lesa fréttabréfið í heild:
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










