Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ís­lend­ing­ar auka er­lenda neyslu sína

Kortavelta Íslendinga jókst um 2,7% á milli ára í október að raunvirði. Áfram er mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis á sama tíma og samdráttur mælist innanlands. Við spáum því að einkaneysla aukist lítið í ár en taki síðan smám saman við sér.
17. nóvember 2026

Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 2,7% á milli ára í október, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Þar af jókst kortavelta erlendis um 11,3% á milli ára á föstu gengi, sem sýnir að það er áfram mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis. Íslendingar fóru í rúmlega 14% fleiri utanlandsferðir nú í október en í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem eru notuð á ferðalögum erlendis og erlendri netverslun. Kortavelta innanlands dróst einungis saman um 0,1% að raunvirði í október, sem er talsvert minni samdráttur en síðustu mánuði.

Aldrei hefur stærri hluti neyslunnar verið erlendis

Í október mældist hlutfall erlendrar neyslu Íslendinga 26% og hefur aldrei mælst hærra. Það sem af er ári hefur hlutfallið verið á bilinu 23-25,6%. Sé litið til breytingar á milli ára þá jókst kortavelta erlendis, sem fyrr segir, um 11,3% á milli ára í október miðað við fast gengi sem er meiri vöxtur en hefur sést á allra síðustu mánuðum. Frá áramótum hefur þó að jafnaði mælst um 12% aukning á milli ára á mánaðarlegri kortaveltu heimilanna erlendis, að teknu tilliti til gengis.

Hægir verulega á vexti einkaneyslu

Dregið hefur úr vexti innlendrar kortaveltu íslenskra heimila síðustu misseri. Vöxtur mælist áfram í neyslu Íslendinga erlendis þrátt fyrir að Íslendingar hafi farið í rúmlega 7% færri utanlandsferðir það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Í þessu samhengi ber að hafa í huga að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem eru notuð á ferðalögum til útlanda en einnig í erlendri netverslun sem framkvæmd er innanlands.

Háir vextir, aukið atvinnuleysi og hægari kaupmáttarvöxtur hafa dregið úr neysluvilja og neyslugetu heimila. Í nýjustu hagspá okkar gerum við ráð fyrir að einkaneysla aukist lítið í ár en taki síðan smám saman við sér þegar vextir fara að lækka og óvissa minnkar. Innlán heimila hafa aukist mikið undanfarið og við gerum ráð fyrir að hluti þess sparnaðar renni í aukna neyslu þegar fram sækir.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.