Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Óbreytt­ir vext­ir í sam­ræmi við vænt­ing­ar

Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í morgun og var ákvörðunin einróma. Tónninn var að okkar mati mildur og er ljóst að nefndin hefur vaxandi áhyggjur af kólnandi hagkerfi. Enn er þó lögð áhersla á að verðbólga og verðbólguvæntingar séu langt yfir markmiði. Gangi verðbólguspár eftir gerum við ráð fyrir að nefndin geti lækkað vexti í febrúar.
Stýrivextir
18. nóvember 2026

Nefndin ákvað að halda vöxtum óbreyttum í 8,0% í morgun. Í yfirlýsingunni er nefnt að eldsneytisverð hafi haldist hátt en að afleidd áhrif hækkunar á eldsneytisverð hafi verið minni en óttast var. Á móti vega verri hagvaxtarhorfur, ekki síst vegna hægari vaxtar einkaneyslu. Verðbólga er þó enn of há og óvissa um verðhólguhorfur enn töluverð. Nefndarmenn lýstu auknum áhyggjum af stöðu raunhagkerfisins og að áhættumatið hefði færst meira í þá átt að hætta væri á að vextir yrðu lækkaðir of seint.

Dags. Vikur frá síðustu ákvörðun Ákvörðun Atkvæði með Atkvæði móti Kosið annað Meginvextir
7. febrúar 2024 11 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
20. mars 2024 6 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS GJ (-0,25%)   9,25%
8. maí 2024 7 óbr. ÁJ, RS, ÁÓP, HS AS (-0,25%)   9,25%
21. ágúst 2024 15 óbr. ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS     9,25%
2. október 2024 6 -0,25% ÁJ, RS, TB, ÁÓP   HS (óbr.) 9,00%
20. nóvember 2024 7 -0,50% ÁJ, RS, TB,  ÁÓP, HS     8,50%
5. febrúar 2025 11 -0,50% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     8,00%
19. mars 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,75%
21. maí 2025 9 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP   HS (óbr.) 7,50%
20. ágúst 2025 13 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
8. október 2025 7 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,50%
19. nóvember 2025 6 -0,25% ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     7,25%
4. febrúar 2026 11 óbr. ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,25%
18. mars 2026 6 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB ÁÓP, HS (+0,50%)   7,50%
20. maí 2026 9 +0,25% ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS     7,75%
19. ágúst 2026 13 +0,25% ÁJ, ÞGP, ÁÓP, HS TB (óbr.)   8,00%
7. okt. 2026 7 óbr. ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     8,00%
18. nóv. 2026 6 óbr. ÁJ, ÞGP, TB,  ÁÓP, HS     8,00%

AS: Arnór Sighvatsson, ÁJ: Ásgeir Jónsson, ÁÓP: Ásgerður Ósk Pétursdóttir, GJ: Gunnar Jakobsson, HS: Herdís Steingrímsdóttir, RS: Rannveig Sigurðardóttir, TB: Tómas Brynjólfsson, ÞGP: Þórarinn G. Pétursson
Heimild: Seðlabanki Íslands

Áhættan af því að halda vöxtum of háum er að verða meira áberandi

Samhliða vaxtaákvörðuninni birti bankinn ný Peningamál með nýrri verðbólgu- og hagvaxtarspá. Verðbólguspáin breyttist lítið frá fyrri spá og er enn gert ráð fyrir tiltölulega hraðri verðbólguhjöðnun strax á fyrstu mánuðum næsta árs. Þar er gert ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 4,6% á fyrsta fjórðungi næsta árs og endi í 3,1% á fjórða fjórðungi ársins.

Nefndarmenn töldu núverandi raunvaxtastig hæfilegt, en að það yrði of hátt á næsta ári ef vextir verða óbreyttir og verðbólguspá bankans gengur eftir. Nefndarmenn telja nú að áhættan af því að halda vöxtum háum of lengi sé orðin meiri en fyrr á árinu og að áhættumatið á milli þess að lækka of hratt eða of hægt sé nær jafnvægi en áður. Með öðrum orðum hefur nefndin meiri áhyggjur en áður af því að hagkerfið sé að kólna um of og slakinn í hagkerfinu gæti orðið meiri og hraðari en spáð er. Verðbólga og verðbólguvæntingar væru þrátt fyrir það ennþá of háar sem gæfi nefndinni takmarkað svigrúm til að lækka vexti.

Hagvaxtarhorfur hafa versnað

Í nýju Peningamálunum kemur fram að hagvaxtarhorfur hafi versnað. Bankinn gerir nú ráð fyrir 1% hagvexti í ár og 1,2% á næsta ári en spáin frá því í ágúst gerði ráð fyrir 1,4% vexti í ár og 1,9% á næsta ári. Gert er ráð fyrir minni einkaneyslu en áður var talið og horfur í útflutningi hafa versnað, einkum vegna verri horfa í sjávarútvegi í kjölfar síðasta loðnuleiðangurs Hafrannsóknarstofnunar.

Þetta eru merki um að þétt peningalegt aðhald hafi náð að kæla hagkerfið og því ætti verðbólga að lækka í kjölfarið.

Tónninn að breytast og styttist í lækkun ef spár ganga eftir

Það kom skýrt fram í máli seðlabankastjóranna að gangi verðbólguspáin eftir yrði núverandi vaxtaaðhald of mikið. Fyrstu verðbólgumælingar næsta árs munu því líklega skipta miklu fyrir tímasetningu vaxtalækkana. Við teljum að gangi spá Seðlabankans eftir og verðbólga mælist 4,6% á fyrsta fjórðungi næsta árs, verði hægt að lækka vexti þá.

Við gáfum nýverið út hagspá þar sem við spáum fyrstu vaxtalækkuninni í febrúar. Samkvæmt nýjustu verðbólguspá okkar mun verðbólga mælast 5,1% í janúar. Gangi sú spá eftir eykst aðhaldsstig peningastefnunnar verulega miðað við liðna verðbólgu og ætti að styrkja væntingar um að verðbólga muni lækka áfram. Við teljum því enn líkur á að fyrsta vaxtalækkunin verði í febrúar, í ljósi kólnandi hagkerfis og versnandi hagvaxtarhorfa.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
17. nóv. 2026
Íslendingar auka erlenda neyslu sína
Kortavelta Íslendinga jókst um 2,7% á milli ára í október að raunvirði. Áfram er mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis á sama tíma og samdráttur mælist innanlands. Við spáum því að einkaneysla aukist lítið í ár en taki síðan smám saman við sér.
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september.