Vikan framundan
- Á morgun birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll í október og Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi. Sama dag birtir Eimskip uppgjör og verðbólgutölur verða birtar í Bandaríkjunum. Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hefst.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn niðurstöður úr könnun á væntingum markaðsaðila og Alvotech birtir uppgjör.
- Á fimmtudag birtir Amaroq uppgjör.
- Á föstudag lýkur verðkönnunarviku Hagstofunnar.
Mynd vikunnar
Frá árslokum 2024 hefur orðið töluverð aukning á innflutningi á fjárfestingarvörum. Mjög stóran hluta af þessari aukningu má rekja til innflutnings á tölvubúnaði fyrir gagnaver. Í október nam innflutningur fjárfestingarvara tæplega 80 milljörðum króna og hefur aldrei mælst meiri, en til samanburðar var allur vöruútflutningur í mánuðinum um 95 milljarðar króna. Hagstofan áætlar að þriðjungur alls vöruinnflutnings í október hafi verið tölvubúnaður fyrir gagnaver. Þessi mikli innflutningur á tölvubúnaði síðustu ár hefur því haft töluverð áhrif á vöruskiptajöfnuð. Á móti hefur þó orðið mikil aukning í þjónustuútflutningi í tengslum við tölvuþjónustu og gera má ráð fyrir frekari vexti á næstu misserum.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Fjöldi starfandi hélst óbreyttur á milli ára í september, störfum á almenna markaðnum fækkaði á milli ára í september á meðan störfum hjá hinu opinbera fjölgaði á sama tíma.
- Verðbólga á evrusvæðinu jókst úr 3,8% í 4,0% og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Búist er við frekari vaxtahækkunum hjá Seðlabanka Evrópu í desember.
- Englandsbanki hækkaði vexti um 0,25 prósentustig og hækkuðu stýrivextir bankans því úr 3,75% upp í 4,0%. Þetta er fyrsta vaxtahækkun bankans í þrjú ár.
- Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 4,1% í október. Störfum fjölgaði um 165 þúsund, sem er töluvert meiri fjölgun en hefur sést síðustu mánuði.
- Reitir, JBT Marel, Eik fasteignafélag, Oculis, Heimar og Sýn birtu uppgjör. Icelandair birti farþegatölur.
- Festi lauk sölu á víxlum. Styrkás, Reykjastræti og Útgerðarfélag Reykjavíkur luku sölu á skuldabréfum. Lánamál ríkisins lauk sölu á ríkisbréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










