Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Minna af fiski en meiri verð­mæti

Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
4. nóvember 2026

Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman á milli ára frá árinu 2022. Útflutningsmagn er hér mælt á föstu verði, þar sem leiðrétt er fyrir breytingar á afurðaverði. Það er því ekki alveg það sama og útflutningur mældur í tonnum, enda tekið tillit til þess að ólíkar sjávarafurðir eru misverðmætar. Hátt afurðaverð síðustu ár hefur þó vegið á móti minni afla að einhverju marki, sér í lagi í fyrra, þegar það mældist rúmlega 5% samdráttur í útflutningsmagni en útflutningsverðmæti, þ.e. fjárhæðin sem fékkst fyrir útflutning á sjávarafurðum, jókst um 3,5% á milli ára.

Afurðaverð hefur hækkað mikið

Miklar verðhækkanir á sjávarafurðum síðustu misseri má að stórum hluta rekja til minnkandi framboðs á alþjóðamörkuðum. Aflaheimildir hafa ekki aðeins verið skertar við Ísland heldur víðar, meðal annars í Barentshafi, þar sem aflamark á þorski hefur ekki verið minna í áratugi. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir sjávarafurðum verið mikil svo minna framboð hefur leitt til verulegra verðhækkana. Verð á botnfiski hefur hækkað sérstaklega mikið og hefur sú þróun komið íslenskum sjávarútvegi til góða.

Samdráttur í ár og á næsta ári

Minni aflaheimildir á þorski og ýsu vega langþyngst í samdrætti á útflutningsmagni á milli ára í ár, en loðnuvertíðin í ársbyrjun gerir samdráttinn þó minni en ella. Horfur fyrir næsta ár velta að miklu leyti á því hversu mikið verður veitt af loðnu. Hafrannsóknarstofnun lækkaði aflaráðgjöf fyrir loðnu verulega eftir haustleiðangur og fór ráðgjöfin úr 360 þúsund tonnum samkvæmt upphafsrágjöf í 106 þúsund tonn fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Stofnunin tók þó sérstaklega fram að mælingin sem ráðgjöfin byggði á væri mjög líklega vanmat á stærð stofnsins, þar sem ekki tókst að fara yfir allt svæðið, meðal annars vegna veðurs og hafíss.

Við gerum því ráð fyrir að ráðgjöfin verði hækkuð fyrir lokaráðgjöf. Í nýlegri hagspá gáfum við okkur varfærnar forsendur um að loðnuvertíðin verði meiri en í haustráðgjöfinni, en þó minni en síðasta loðnuvertíð. Við gerum ráð fyrir að það mælist samdráttur í útflutningsmagni sjávarafurða á næsta ári, en ef lokaráðgjöf fyrir loðnuna verður nær upphafsráðgjöfinni mætti gera ráð fyrir vexti sjávarafurða, í fyrsta skipti síðan 2022.

Hagvöxtur gæti hæglega orðið meiri finnist meiri loðna

Stærri loðnuvertíð gæti einnig haft áhrif á hagvöxt næsta árs. Í spánni gerum við ráð fyrir rúmlega 2% samdrætti í útflutningi sjávarafurða á næsta ári og því að hagvöxtur verði 1,5%, en miðað við sviðsmynd þar sem loðnuveiðar verða nær upphafsráðgjöfinni gæti hagvöxtur orðið um 1,7%.

Mikil óvissa fylgir þó spám um útflutning fyrir sjávarafurðir enda ekki beint samband á milli afla í tonnum og breytinga á útflutningsmagni á föstu verði. Þá skiptir töluverðu máli hvernig fiskurinn er unninn áður en hann er fluttur út þar sem það getur haft mikil áhrif á afurðaverð. Sem dæmi má nefna að þegar loðnuvertíð er mjög stór er meðalverð á hvert kíló lægra en í minni loðnuvertíð. Það skýrist meðal annars af því að þegar mikið er veitt af loðnu fer stærri hluti hennar í mjöl og lýsi sem er verðminna en loðnuhrogn. Þegar minna er veitt fer miklu stærri hluti af aflanum í hrogn og því verður meðalverð á kíló miklu hærra en þegar meira er veitt.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.