Olían finnur sér leið

Olíuframboð í heiminum hefur batnað verulega eftir miklar framboðstruflanir vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Batinn skýrist ekki síst af auknum útflutningi frá Persaflóasvæðinu, bæði um Hormússund en einnig eftir hjáleiðum. Samkvæmt nóvemberskýrslu Alþjóðaorkumálastofunnar (IEA) var útflutningur hráolíu frá svæðinu í október um 82% af því sem hann var áður en átökin brutust út.
Hormússund er ein mikilvægasta flutningsleið olíu í heiminum. Fyrir átökin fór um fimmtungur allrar olíu sem heimsbyggðin notaði um þetta sund, eða um 20 milljónir fata á degi hverjum, þar af um 15 milljónir af hráolíu og um 5 milljónir af unnum olíuafurðum. Minni bati hefur verið í útflutningi á unnum olíuafurðum og fljótandi olíugasi frá svæðinu en í hráolíunni. Í október var útflutningur af hráolíu um 50% af því sem var fyrir átökin.
Flutningskostnaður hefur aukist umtalsvert
Olíuframleiðendur við Persaflóa hafa í auknum mæli nýtt aðrar flutningsleiðir til að koma olíunni á markað. Sádi-Arabía flytur nú meira magn eftir olíuleiðslum landleiðina til Rauðahafsins og Sameinuðu arabísku furstadæmin nýta leiðslur til hafna sem ekki eru við Hormússund. Mestu munar þó um verulega aukningu á olíuflutningum um sundið sjálft. Þar hefur nýtt fyrirkomulag leitt til þess að umskipun hefur færst í aukana – skip sigla út sundið með olíuna þar sem hún er flutt yfir í önnur skip sem flytja hana síðan til kaupenda.

Heimild: Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA, 2026), The Middle East and Global Energy Markets. CC BY 4.0.
Þessar leiðir eru flóknari og tímafrekari en hefðbundnir flutningar, en auk þess er áhætta enn mikil vegna áframhaldandi átaka á svæðinu. Þótt olíuflutningar hafi tekið við sér er engu að síður kostnaðarsamara en áður að koma olíunni á markað. Sem dæmi má nefna að samkvæmt Alþjóðaorkumálastofnuninni var kostnaður við að flytja hráolíu frá Persaflóa til Asíu um miðjan október meira en fimmfalt hærra en fyrir átökin.
Olíuhreinsun tekur hægar við sér og dísilolíuverð enn hátt
Framleiðsla á olíuafurðum hefur tekið hægar við sér en framboð hráolíu. Aðgengi olíuhreinsistöðva að hráolíu hefur batnað, en flutningar eru flóknari og dýrari. Það hefur dregið úr framlegð sumra olíuhreinsistöðva sem getur takmarkað framleiðslu. Auk þess eru olíuhreinsistöðvar oft sérhæfðar fyrir ákveðna tegund hráolíu og erfitt getur verið að söðla um yfir í aðra tegund. Þá hafa truflanir á olíuflutningum einnig áhrif á unnar olíuafurðir auk þess sem árásir á olíuhreinsistöðvar á Persaflóasvæðinu og í Rússlandi dregið úr framboði unninna olíuafurða.
Þessar truflanir hafa sérstaklega bitnað á framboði dísilolíu og skyldra olíuafurða til húshitunar, síður á bensínmarkaðinum. Venjulega safnast birgðir þessara afurða upp yfir sumarið til að mæta aukinni eftirspurn yfir veturinn en í ár hafa birgðir aftur á móti dregist saman yfir sumarið. Mikil eftirspurn eftir flugvélaeldsneyti í sumar varð til þess að hreinsistöðvar reyndu að hámarka framleiðslu þess, sem dró á móti úr framleiðslu á dísilolíu sem eykur enn á skort á dísilolíumarkaði nú.
Framboð hráolíu hefur aukist verulega en enn er mikill skortur á dísilolíu samkvæmt nýjustu skýrslu IEA. Það endurspeglast í verðþróuninni en dísilolíuverð hefur lækkað minna en hráolíuverð síðustu vikur.
Horfur á minni verðþrýstingi en óvissa enn mikil
Ólík þróun bensín- og dísilverðs á alþjóðamörkuðum endurspeglast einnig hér á landi. Dísilolía er nú dýrari en hún var í desember í fyrra áður en olíugjaldið var fellt niður um áramótin. Bensín er aftur á móti enn ódýrara en þá.
Horfur á olíumörkuðum hafa þó batnað. Samkvæmt nóvemberskýrslu IEA er gert ráð fyrir að heimsframboð á olíu verði meira en eftirspurn á lokafjórðungi þessa árs og stofnunin gerir einnig ráð fyrir aukinni olíuhreinsun á næstu mánuðum. Óvissa er þó áfram mikil vegna áframhaldandi átaka sem geta fljótt raskað þeim bata sem orðið hefur.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.









