Vikubyrjun 16. nóvember 2026

Vikan framundan
- Í dag birtir Kaldalón tilkynningu um afkomu.
- Á morgun birtir Seðlabankinn greiðslumiðlun í október og HMS birtir vísitölu íbúðaverðs.
- Á miðvikudag er vaxtaákvörðun hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, HMS birtir vísitölu leiguverðs, Iceland Seafood birtir uppgjör og verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
- Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu og Brim og Síldarvinnslan birta uppgjör.
- Á föstudag birtir Hampiðjan uppgjör.
Mynd vikunnar
Seðlabankinn birti niðurstöður úr könnun á væntingum markaðsaðila í síðust viku. Líkt og við gera markaðsaðilar ráð fyrir óbreyttum vöxtum út árið og að fyrsta vaxtalækkunin verði á fyrsta fjórðungi næsta árs. Verðbólga á þriðja ársfjórðungi var hærri en gert var ráð fyrir í síðustu könnun, sem fór fram í ágúst. Því gera markaðsaðilar nú ráð fyrir hærri verðbólgu á fjórða ársfjórðungi en þá. Verðbólguvæntingar hafa því aðeins versnað til skamms tíma en aftur á móti lækkuðu væntingar til meðalverðbólgu næstu fimm ára. Tveir þriðju telja að aðhaldið sé of eða alltof þétt.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Erlendum ferðamönnum fjölgaði um tæplega 1% á milli ára í október. Það sem af er ári hefur ferðamönnum fækkað um 0,5% miðað við sama tímabili í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um rúmlega 14% á milli ára í október en það sem af er ári hafa Íslendingar farið í rúmlega 7% færri utanlandsferðir en á sama tíma í fyrra.
- Bláa Lónið hélt hlutafjárútboð.
- Skráð atvinnuleysi mældist 4,3% í október og var 0,4 prósentustigum hærra en í sama mánuði í fyrra.
- Vísitala neysluverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 0,4% á milli mánaða í október. Ársverðbólga liggur ekki fyrir þar sem samanburðargögn vantar fyrir október í fyrra.
- Eimskip, Alvotech og Amaroq birtu uppgjör.
- Lánasjóður sveitarfélaga og Hafnarfjarðarkaupstaður héldu skuldabréfaútboð. Íslandsbanki hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum. Landsbankinn hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum ásamt skiptiútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).









