Spáum aftur óbreyttum vöxtum

Peningastefnunefnd Seðlabankans fundar í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun sína miðvikudaginn 18. nóvember. Nefndin hélt vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun eftir þrjár hækkanir í röð. Tónninn bæði í yfirlýsingu nefndarinnar og á kynningarfundinum við síðustu ákvörðun gaf að okkar mati mjög skýrt til kynna að vaxtahækkunarferlinu væri lokið. Á sama tíma var lögð áhersla á að bíða þyrfti eftir skýrum merkjum um að verðbólga væri að hjaðna áður en hægt væri að lækka vexti.
Vaxtaákvarðanir peningastefnunefndar
| Dags. | Vikur frá seinasta fundi | Ákv. | Atkvæði með | Atkvæði móti | Kosið annað | Meginvextir |
| 7. febrúar 2024 | 11 | óbr. | ÁJ, RS, ÁÓP, HS | GJ (-0,25%) | 9,25% | |
| 20. mars 2024 | 6 | óbr. | ÁJ, RS, ÁÓP, HS | GJ (-0,25%) | 9,25% | |
| 8. maí 2024 | 7 | óbr. | ÁJ, RS, ÁÓP, HS | AS (-0,25%) | 9,25% | |
| 21. ágúst 2024 | 15 | óbr. | ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS | 9,25% | ||
| 2. október 2024 | 6 | -0,25% | ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS | HS (óbr.) | 9,00 | |
| 20. nóvember 2024 | 7 | -0,50% | ÁJ, RS, TB, ÁÓP, HS | 8,50% | ||
| 5. febrúar 2025 | 11 | -0,50% | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 8,00% | ||
| 19. mars 2025 | 6 | -0,25% | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 7,75% | ||
| 21. maí 2025 | 9 | -0,25% | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP | HS (óbr.) | 7,50% | |
| 20. ágúst 2025 | 13 | óbr. | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 7,50% | ||
| 8. október 2025 | 7 | óbr. | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 7,50% | ||
| 19. nóvember 2025 | 6 | -0,25% | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 7,25% | ||
| 4. febrúar 2026 | 11 | óbr. | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 7,25% | ||
| 18. mars 2026 | 6 | +0,25% | ÁJ, ÞGP, TB | ÁÓP, HS (+0,50%) | 7,50% | |
| 20. maí 2026 | 9 | +0,25% | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 7,75% | ||
| 19. ágúst 2026 | 13 | +0,25% | ÁJ, ÞGP, ÁÓP, HS | TB (óbr.) | 8,00% | |
| 7. okt. 2026 | 7 | óbr. | ÁJ, ÞGP, TB, ÁÓP, HS | 8,00% | ||
| 18. nóv. 2026 | 6 |
AS: Arnór Sighvatsson, ÁJ: Ásgeir Jónsson, ÁÓP: Ásgerður Ósk Pétursdóttir, HS: Herdís Steingrímsdóttir, RS: Rannveig Sigurðardóttir, TB: Tómas Brynjólfsson, ÞGP: Þórarinn G. Pétursson
Heimild: Seðlabanki Íslands
Eldsneytisverð heldur verðbólgunni uppi
Þegar nefndin hittist í október var verðbólga í september nýjasta talan sem þau höfðu, en þá mældist 5,9% verðbólga. Síðan hefur ein verðbólgumæling bæst við, fyrir októbermánuð. Samkvæmt henni var verðbólga aftur 5,9%.
Þegar litið er til breytingar á samsetningu verðbólgunnar sést að framlag þó nokkra liða til ársverðbólgu hefur minnkað, meðal annars innfluttra vara, húsnæðis og flugfargjalda til útlanda. Hækkun á framlagi eldsneytisverðs vó langþyngst til hækkunar og hækkaði framlag þess til verðbólgu um 0,28 prósentustig á milli mælinga. Ef horft er fram hjá hækkun á bensíni á milli mánaða hefði verðbólga lækkað í 5,6% í október. Hækkanir á bensíni eru tilkomnar vegna hækkana erlendis og því ekki til marks um aukna eftirspurn.
Við sjáum merki um að undirliggjandi verðbólga sé á niðurleið samhliða kólnandi hagkerfi. Í verðbólguspá okkar fyrir nóvember gerum við ráð fyrir að verðbólga aukist lítillega, úr 5,9% í 6,0%. Þótt verðlag lækki á milli mánaða gerum við ráð fyrir að lækkunin verði örlítið minni en í nóvember í fyrra og því eykst verðbólga. Þar hafa meðal annars áhrif hækkanir á eldsneytisverði og að verð á nýjum bílum hækkar vegna skerðingar á styrkjum til rafbílakaupa. Það er vissulega óheppileg þróun en ekki til marks um aukinn eftirspurnarþrýsting.
Markaðsaðilar gera ráð fyrir lækkun á fyrsta fjórðungi næsta árs
Í síðustu viku framkvæmdi Seðlabankinn ársfjórðungslega könnun meðal markaðsaðila á skuldabréfamarkaði og mun nefndin hafa niðurstöðu þessarar könnunnar til hliðsjónar þegar hún hittist í næstu viku. Meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir að vextir verði óbreyttir út árið en að þeir lækki á fyrsta fjórðungi næsta árs. Markaðsaðilar telja að nefndin muni ekki lækka vexti í næstu viku. Þrátt fyrir það telja tveir þriðju þeirra að aðhald peningastefnunnar sé of þétt eða alltof þétt.
Sé litið til breytinga frá síðustu könnun sést að verðbólguhorfur hafa aðeins versnað, en það er fyrst og fremst til skemmri tíma. Ferillinn hefur hliðrast upp en endar á svipuðum stað og áður þegar líður á þriðja fjórðung næsta árs. Væntingar til meðalverðbólgu næstu fimm ára lækkuðu aftur á móti aðeins.
Ný spá frá bankanum
Samhliða vaxtaákvörðuninni verða birt ný Peningamál og mun nefndin því hafa nýja hagspá Seðlabankans til hliðsjónar. Það verður forvitnilegt að sjá hvort spá bankans sé enn á þann veg að verðbólga muni hjaðna hratt á nýju ári. Sé það raunin og gangi sú spá eftir, teljum við líkur á að vextir verði lækkaðir á fyrsta fundi nefndarinnar á nýju ári líkt og hagspá okkar gerir ráð fyrir. Flestar nýlegar hagtölur benda til þess að talsvert hafi hægt á efnahagsumsvifum og því æskilegt að draga úr aðhaldi peningastefnunnar áður en of langt um líður. Nýjustu gögn um skráð atvinnuleysi sem birtust fyrr í vikunni sýna til að mynda 4,3% atvinnuleysi í október en það var til samanburðar 3,9% á sama tíma í fyrra og 3,4% í október 2024.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.









