Vikubyrjun 2. mars 2026

Vikan framundan
- Á morgun birta Eimskip og Oculis uppgjör.
- Á miðvikudag birtir Kaldalón uppgjör.
- Á fimmtudag birtir Seðlabankinn greiðslujöfnuð við útlönd fyrir fjórða ársfjórðung. Sama dag birta Hampiðjan og Síldarvinnslan uppgjör.
- Á föstudag verða birtar atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum.
Mynd vikunnar
Landsframleiðsla jókst um 1,3% á milli ára að raunvirði í fyrra, en dróst saman um 0,6% á fjórða ársfjórðungi. Einkaneysla var mjög sterk, en hún jókst um 5,5% á milli ára á ársfjórðungnum. Vöxtur var í flestum neysluvörum, að áfengi og tóbaki undanskildum. Samdráttur í fjármunamyndun á milli ára hefur mest áhrif á minni landsframleiðslu á fjórðungnum, en fjármunamyndun dróst saman um 12,5% á milli ára, sem skýrist að mestu af minni gagnaversfjárfestingu sem var mjög mikil á sama fjórðungi árið áður. Minni gagnaversfjárfesting skýrir einnig minni innflutning á fjórðungnum, sérstaklega á fjárfestingarvörum.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Vísitala neysluverðs hélst óbreytt á milli mánaða og mældist 5,2% í febrúar. Mælingin var nokkuð yfir okkar spá. Það sem helst kom á óvart í mælingunni var að verð á mat og drykkjarvörum hækkaði mun meira en við gerðum ráð fyrir. Flugfargjöld hækkuðu einnig töluvert á milli mánaða, en við gerðum ráð fyrir örlítilli lækkun. Á móti var nokkuð minni hækkun á reiknaðri húsaleigu og Hagstofan leiðrétti mistök í verðmælingu á bensíni og dísel í janúar sem kemur fram sem lækkun í febrúar.
- Afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði nam 24 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Afgangurinn var talsvert minni en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 44,2 milljörðum. Þjónustujöfnuður var jákvæður um 49,4 milljarða en vöruskiptajöfnuður neikvæður um 73,4 milljarða.
- Velta skv. VSK-skýrslum dróst saman á tímabilinu nóv-des í öllum þremur stóru útflutningsgeirunum, þ.e. ferðaþjónustu, sjávarútvegi og framleiðslu málma. Erlendum ferðamönnum fækkaði um 14% á milli ára í nóv-des sem rímar vel við tölurnar. Samdrátt í framleiðslu málma má rekja til bilunar í álveri Norðuráls. Þá jókst velta í sölu og viðhaldi á bifreiðum. Heild- og smásala fylgdi verðlagi og velta jókst í byggingarstarfsemi. Aukna veltu í tækni- og hugverkaiðnaði má rekja til gagnavera.
- Launavísitalan hækkaði um 3,4% í janúar, sem er í takt við kjarasamningshækkanir. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 7,3%.
- Gistinóttum á hótelum fækkaði um 7% á milli ára í janúar og þar af fækkaði gistinóttum erlendra ferðamanna um 4,3% á milli ára.
- JBT Marel, Landsnet, HS Veitur, Brim, Iceland Seafood, Byggðastofnun og Sýn birtu uppgjör. Amaroq birti afkomuspá. Hampiðjan birti afkomuviðvörun.
- Lánamál ríkisins birti niðurstöðu úr viðbótarútgáfu. Kaldalón og Útgerðarfélag Reykjavíkur luku sölu á víxlum. Reykjavíkurborg lauk sölu á skuldabréfum. Eik fasteignafélag lauk skiptiútboði.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).









