Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 7. sept­em­ber 2026

Hagkerfið dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samkvæmt fundargerð peningastefnunefndar ræddi nefndin að hækka vexti um 0,25 prósentustig eða halda þeim óbreyttum á fundi sínum í ágúst.
Vikubyrjun
7. september 2026

Vikan framundan

  • Í dag birtir Hagstofan fjölda starfandi út frá staðgreiðsluskrám.
  • Á fimmtudag birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll. Sama dag er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.
  • Á föstudaginn birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi og verðbólgutölur verða birtar í Bandaríkjunum.

Mynd vikunnar

Í liðinni viku birti Seðlabankinn í fyrsta sinn tölur um gjaldeyrisviðskipti viðskiptabankanna fjögurra. Innlend fyrirtæki seldu bönkunum gjaldeyri fyrir 60 milljarða króna og erlendir aðilar seldu þeim gjaldeyri fyrir 76 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins. Á hinni hliðinni keyptu lífeyrissjóðir gjaldeyri af bönkunum fyrir 62 milljarða króna, Seðlabankinn keypti 10 milljarða króna og önnur fjármálafyrirtæki en viðskiptabankarnir keyptu gjaldeyri af þeim fyrir 153 milljarða króna. Alls seldu viðskiptabankarnir frá sér gjaldeyri fyrir um 90 milljarða króna. Krónan hefur styrkst nokkuð það sem af er ári, sem er í ákveðinni mótsögn við þessi gögn.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar mældist 1,1% samdráttur á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samdrátturinn á fjórðungnum skýrist aðallega af minna útfluttu magni af áli og sjávarafurðum. Þrátt fyrir þetta jókst útflutningur á áli og sjávarafurðum í krónum talið vegna hagstæðrar verðþróunar. Fjármunamyndun jókst vegna uppbyggingu gagnavera og stóriðjufjárfestingar. Bæði opinber fjárfesting og íbúðafjárfesting drógust saman á milli ára.
  • Seðlabankinn birti fundargerð peningastefnunefndar vegna fundarins 17.-18. ágúst. Nefndin ræddi að hækka vexti um 0,25 prósentustig eða halda þeim óbreyttum. Þrír nefndarmenn studdu tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,25 prósentustig, en einn nefndarmaður, Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, greiddi atvæði gegn tillögunni og vildi halda vöxtum óbreyttum.
  • Halli á viðskiptum við útlönd mældist 120 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi. Erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 350 milljarða króna á ársfjórðungnum.
  • Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst. Flestar uppsagnirnar voru á velferðarsviði og skóla- og tómstundarsviði Reykjavíkurborgar.
  • Verðbólga á evrusvæðinu hækkaði úr 2,9% í 3,3% í ágúst í samræmi við væntingar. Ágúst er sjötti mánuðurinn í röð sem verðbólga er fyrir ofan 2% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Evrópu og er almennt búist við að bankinn hækki vexti á fimmtudaginn.
  • Atvinnuleysi í Bandaríkjunum var óbreytt á milli mánaða í 4,1% í ágúst. 162 þúsund ný störf urðu til, sem er nokkuð fleiri en búist var við og mun meira en þau 21 þúsund störf sem urðu til í júlí. Þetta er seinasta vinnumarkaðstala fyrir næstu vaxtaákvörðun 16. september, en í millitíðinni kemur ein verðbólgutala.
  • Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna tók til afgreiðslu umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir fyrirhugaða hliðstæðu. Sýn ákvað að hætta útsendingu á sjónvarpsfréttum og birti tilkynningu í Kauphöllinni vegna málshöfðunar Gavia Invest ehf. gegn Úrsus ehf.
  • Moody’s veitti Landsbankanum lánshæfismat í fyrsta sinn.
  • Fossar hélt víxlaútboð. Lánamál ríkisins hélt útboð á ríkisbréfum.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 7. september 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð. 
18. sept. 2026
Kortavelta heimilanna dróst saman í ágúst
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.
17. sept. 2026
Spáum 5,8% verðbólgu í september
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.
Vikubyrjun
14. sept. 2026
Vikubyrjun14. september 2026
Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.
9. sept. 2026
Krónan styrkist þrátt fyrir halla á viðskiptum við útlönd
Um 150 milljarða króna halli mældist á viðskiptum við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins. Þrátt fyrir það hefur krónan styrkst. Skýringin er líklega sú að viðskiptum við útlönd fylgir ekki alltaf samsvarandi gjaldeyrisflæði. Viðskiptajöfnuður mælir tekjur og gjöld samkvæmt uppgjörsreglum en gengið ræðst af raunverulegum og væntum kaupum og sölu á gjaldeyri.
Mánaðamót 2
1. sept. 2026
Mánaðamót 1. september 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.