Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga eykst í 5,6% - hækk­an­ir á breið­um grunni

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.
27. ágúst 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við höfðum spáð því að vísitalan myndi hækka um 0,10% og að verðbólga yrði 5,5%. Þó mælingin sé nálægt spánni okkar er hækkunin á ársverðbólgu á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir.

Ágúst er áttundi mánuðurinn í röð þar sem verðbólga mælist yfir 5%. Verðbólga án húsnæðis hækkaði einnig, úr 4,8% í 5,2%. Áhrif sólmyrkvans voru þó nokkuð hóflegri en við gerðum ráð fyrir og flugfargjöld til útlanda lækkuðu meira en við spáðum. Á móti hafði hækkun á háskólagjöldum töluvert meiri áhrif til hækkunar en við höfðum spáð.

Flestir liðir til hækkunar í mánuðinum

Breyting á samsetningu verðbólgu sýnir að verðhækkanir í ágúst voru nokkuð almennar og flestir liðir voru til hækkunar í mánuðinum. Húsnæðiskostnaður hafði mest áhrif til hækkunar í mánuðinum, meiri áhrif en sá liður hefur haft hingað til á árinu. Áhrif af skráningargjöldum í háskóla höfðu einnig töluverð áhrif til hækkunar á opinberri þjónustu.

Óvenjumikil hækkun á húsnæðisliðnum

Það sem kom mest á óvart í mælingunni var mikil hækkun á reiknaðri húsaleigu í ágúst, sem hækkaði um 0,9% á milli mánaða og árshækkun liðarins eykst því úr 6,7% í 7,2%. Hluti af skýringunni gæti legið í að verðtryggðir leigusamningar fylgdu vísitölu neysluverðs í júní sem hækkaði um 0,94%. Hækkunin stangast á við þróun annarra mælikvarða á íbúða- og leiguverð sem hafa sýnt minni hækkanir undanfarna mánuði. Við gerum ráð fyrir því að þessi liður fari að endurspegla minni umsvif á fasteignamarkaðnum í takt við aðra mælikvarða á næstu mánuðum.

Áhrif sólmyrkvans minni en við spáðum

Flugfargjöld lækkuðu nokkurn veginn eins og við spáðum, þó örlítið meira. Flugfargjöld lækka alla jafna í ágúst eftir hækkanir í júní og júlí. Flugfargjöld lækkuðu um 9,5% nú, en við höfðum spáð 8,8% lækkun. Þetta er töluvert minni lækkun en á sama tíma í fyrra, þegar lækkunin var um 12%. Áhrif aukinnar eftirspurnar á verð á flugfargjöldum voru minni en við spáðum. Flugfargjöld eru nú 27% hærri en þau voru í ágúst í fyrra.

Við spáðum því einnig að verð á gistiþjónustu og á veitingastöðum myndi hækka um 0,9% en liðurinn hækkaði einungis um 0,25%. Verð á gistiþjónustu hækkaði lítillega meira en í ágúst í fyrra en verð á veitingaþjónustu lækkaði á milli mánaða nú í ágúst. Áhrifin af aukinni eftirspurn vegna sólmyrkvans voru því töluvert hóflegri en við höfðum gert ráð fyrir.

Aðrir liðir

  • Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,36% en við spáðum 0,1% hækkun.
  • Sumarútsölur á fötum og skóm í júlí ganga jafnan til baka í ágúst og september. Föt og skór hækkuðu um 2,8% en við spáðum 1,0% hækkun.
  • Áhrif af hækkun á skráningargjöldum í opinbera háskóla voru nokkuð meiri en við höfðum gert ráð fyrir. Við spáðum því að menntunarliðurinn í vísitölunni myndi hækka um 4,5% en mæling Hagstofunnar sýndi 8,1% hækkun.
  • Verð á eldsneyti hækkaði um 1,4% en við spáðum 0,6% hækkun í takt við verðathugun okkar. Mæling Hagstofunnar kom okkur á óvart því verðathugun okkar hefur hingað til verið mjög nálægt mælingunni.

Spá okkar til næstu mánaða nokkuð svipuð

Við gerum ráð fyrir að vísitalan hækki um 0,14% í september, hækki um 0,10% í október og lækki um 0,47% í nóvember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 5,7% í september, 5,3% í október og 5,3% í nóvember. Við gerum ekki miklar breytingar frá síðustu spá sem við birtum í verðkönnunarvikunni. Föt og skór hækkuðu meira en við spáðum í ágúst en við gerum á móti ráð fyrir minni hækkun í september. Í september fellur úr gildi afsláttur af virðisaukaskatti á eldsneyti auk þess sem hækkun á komugjöldum á heilsugæslu og á annarri heilbrigðisþjónustu koma inn í mælingar.  

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.