18. september 2023
Vikan framundan
- Á þriðjudag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og seinni fjármálastöðugleikaskýrslu ársins. Þann dag verður einnig tilkynnt um vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum.
- Á fimmtudag er vaxtaákvörðun hjá Englandsbanka.
- Á föstudaginn birtir Hagstofan vísitölu launa fyrir ágúst.
Mynd vikunnar
Sú breyting hefur orðið á íslenskum vinnumarkaði að aukinni eftirspurn eftir vinnuafli í efnahagsuppsveiflum er nú í vaxandi mæli mætt með aðfluttu vinnuafli. Það hefur meðal annars haft þau áhrif að atvinnuleysi verður ekki jafn lítið og áður í efnahagsuppsveiflum. Í fyrri uppsveiflum hefur atvinnuleysi nokkrum sinnum farið niður í, eða undir, eitt prósent. Til samanburðar fór það lægst í 2,8% í núverandi efnahagsuppsveiflu.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Alls fóru 282 þúsund erlendir ferðamenn frá landinu í gegnum Leifsstöð í ágúst. Þetta eru þriðju flestu brottfarir í ágústmánuði frá upphafi, en 2018 voru brottfarir 291 þúsund og árið 2017 voru þær 284 þúsund. Um 1.510 þúsund ferðamenn hafa sótt landið heim í gegnum Leifsstöð á fyrstu átta mánuðum ársins, einungis 5,5% færri en á metferðamannaárinu 2018.
- Alls nam greiðslukortavelta íslenskra heimila 103 mö. kr. í ágúst og dróst saman um 3,4% milli ára að raunvirði. Fimmta mánuðinn í röð dróst kortavelta heimila saman milli ára og ef aðeins er litið til kortaveltu innanlands hefur hún dregist saman sex mánuði í röð. Þessar kortaveltutölur benda til þess að áfram hafi dregið úr eftirspurnarþrýstingi og ljóst að hátt vaxtastig er farið að draga úr neyslu landsmanna.
- Skráð atvinnuleysi mældist 2,9% í ágúst. Atvinnuleysi hækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða, en atvinnuleysi er alla jafna minnst á sumrin.
- Á hlutabréfamarkaði hækkaði Reginn tilboðsverð í valfrjálsu tilboði í hlutafé Eikar, stjórn Eikar birti greinargerð vegna þessa yfirtökutilboðs, Arion banki tilkynnti kauphöllinni að Moody’s hefði hækkað lánshæfismat bankans og Icelandair birti uppfærða afkomuspá fyrir árið 2023.
- Á skuldabréfamarkaði gaf sveitarfélagið Árborg út nýjan skuldabréfaflokk og Lánamál ríkisins birtu Markaðsupplýsingar.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi umfjöllun og/eða samantekt er markaðsefni sem er ætlað til upplýsinga en felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningar eiga því ekki við, þar með talið bann við viðskiptum fyrir dreifingu. Umfjöllunin er unnin út frá opinberum upplýsingum frá aðilum sem Landsbankinn telur áreiðanlega, en bankinn getur ekki ábyrgst réttmæti upplýsinganna. Landsbankinn tekur enga ábyrgð á tjóni sem gæti hlotist af notkun upplýsinganna sem hér eru settar fram. Upplýsingar um fyrri árangur fjármálagerninga eða -vísitalna sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef árangur byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur. Nánari upplýsingar um fyrri árangur fjármálagerninga og -vísitalna má finna á vef Landsbankans, þ.m.t. um ávöxtun síðastliðinna 5 ára. Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra á vef Landsbankans. Landsbankinn er viðskiptabanki sem starfar samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og starfar undir leyfi og eftirliti fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.fme.is).Þú gætir einnig haft áhuga á

11. des. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.

8. des. 2025
Talsvert minni afgangur mældist af viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi þessa árs en þess síðasta. Í síðustu viku gaf Seðlabankinn út yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og fundargerð peningastefnunefndar. Í þessari viku verða birtar ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi fyrir nóvembermánuð.

1. des. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

1. des. 2025
Óhætt er að segja að verðbólgumælingin í síðustu viku hafi komið á óvart. Verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hefur ekki mælst minni í fimm ár. Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi aukist um 1,2% á þriðja ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 1,8% á milli ára í október.

28. nóv. 2025
Landsframleiðsla jókst um 1,2% á þriðja ársfjórðungi og um 1,5% á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi var drifinn áfram af innlendri eftirspurn og þjóðarútgjöld jukust um heil 4,7%. Áfram er kraftur í einkaneyslu og fjárfestingu, en auknar birgðir hafa einnig sitt að segja. Innflutningur vegur þungt á móti og framlag utanríkisviðskipta er neikvætt, líkt og á síðustu fjórðungum.

27. nóv. 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.

24. nóv. 2025
Seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku með það fyrir augum að stemma stigu við því aukna peningalega aðhaldi sem hefur hlotist af breyttu lánaframboði í kjölfar vaxtadómsins. Auk þess spáir Seðlabankinn nú auknum slaka í hagkerfinu, minni hagvexti og minni verðbólgu en í síðustu spá. Hagstofan birtir verðbólgumælingu nóvembermánaðar á fimmtudaginn og þjóðhagsreikninga fyrir þriðja ársfjórðung á föstudaginn.

21. nóv. 2025
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.

17. nóv. 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.

14. nóv. 2025
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í október og verðbólgumælingin bar þess merki að undirliggjandi verðþrýstingur hefði aukist. Í ljósi breytts lánaframboðs og óviðbúinna áfalla í útflutningsgeirunum má líkast til búast við mildari tón frá peningastefnunefnd.
