Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 3,9% verð­bólgu í des­em­ber

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.
11. desember 2025

Verðbólga mældist 3,7% í nóvember, töluvert undir okkar spá um 4,2% verðbólgu. Tilboðsdagar í nóvember höfðu töluverð áhrif til lækkunar auk þess sem flugfargjöld til útlanda lækkuðu meira en við spáðum. Við spáum því að vísitalan hækki um 0,56% á milli mánaða nú í desember og að ársverðbólga hækki lítillega og mælist 3,9%. Það sem helst hefur áhrif til hækkunar í desember er að nóvembertilboðin ganga til baka, flugfargjöld til útlanda hækka eins og venjan er í desember og reiknuð húsaleiga hækkar. Á móti lækkar verð á bensíni, gangi spáin eftir.

Áhrif tilboðsdaga í nóvember ganga til baka

Tilboðsdagar í nóvember höfðu töluverð áhrif til lækkunar á vísitölu neysluverðs í nóvember. Föt og skór lækkuðu um 2,7% á milli mánaða en stærsti hluti þeirrar lækkunar er vegna skóbúnaðar, en verðmælingar á skóm sveiflast alla jafna meira en á fötum. Liðurinn húsgögn og heimilisbúnaður lækkaði um 2,2%, sem er meiri lækkun en mældist í sumarútsölum í júlí fyrr á árinu. Tómstundir og menning lækkaði um 0,4%, aðallega vegna lækkunar á raftækjum og á útivistarvörum.

Áhrifin af tilboðsdögum í nóvember hafa aldrei mælst jafn sterk og nú og því aðeins vandasamara að lesa í stöðuna. Umfangsmeiri afsláttardagar kunna að skýrast af minni eftirspurn. Auk þess hefur netverslun Íslendinga aukist til muna og íslenskar verslanir eru í aukinni samkeppni við erlendar verslanir sem einnig eru með töluvert af tilboðum í nóvember. Tímabundnar verðlækkanir í tengslum við útsölur og tilboð hafa alla jafna gengið til baka að fullu á einum eða tveimur mánuðum og þurfa því ekki endilega að vera vísbending um undirliggjandi þróun. Við höllumst þó að því að áhrif tilboðsdaganna gangi að fullu til baka í desember.

Matarkarfan hækkar hóflega í desember

Matarkarfan hefur hækkað á árinu og framlag hennar til ársverðbólgu aukist. Verð á kjöti, fiski og mjólkurvörum hefur hækkað töluvert meira en almennt verðlag á árinu, eða í kringum 8%. Verð á kaffi og súkkulaði hefur einnig hækkað töluvert sem rekja má til hækkunar á heimsmarkaðsverði á kaffi og kakóbaunum. Í nóvember dró aðeins úr hækkunum á matarkörfunni, í takt við vísitölu verðlagseftirlits ASÍ. Verðlagseftirlitið mælir nú um 0,1% hækkun á milli mánaða, en í ljósi þess að mæling Hagstofunnar er oft aðeins hærri, gerum við ráð fyrir að hækkunin verði um 0,2%.

Spáum aðeins minni hækkunum á reiknaðri húsaleigu

Í spánni gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% á milli mánaða næstu mánuði, sem er svipað og meðalhækkun þessa liðar það sem af er ári. Við teljum að annað vegna húsnæðis hækki um 0,3% í desember og að alls verði áhrif húsnæðiskostnaðar 0,13 prósentustig til hækkunar á vísitölunni. 

Flugfargjöld til útlanda hækka

Líkt og síðustu ár lækkuðu flugfargjöld til útlanda á milli mánaða í nóvember. Að öðru óbreyttu mátti búast við að tímabundið minni samkeppni í flugi til og frá Íslandi í kjölfar falls Play myndi halda uppi verði á flugfargjöldum. Það varð ekki raunin og reyndist 8% ódýrara að fljúga út í nóvember í ár en nóvember í fyrra. Brottförum Íslendinga frá Keflavíkurflugvelli fjölgaði um 20% á milli ára í nóvember. Farþegum hjá Icelandair fjölgaði um 15% á milli ára, en þar af fjölgaði farþegum sem hófu ferðalagið á Íslandi um 25% á milli ára. Þetta bendir til þess að verðlækkunin sé ekki vegna minni eftirspurnar.

Í desember verða allar mælingar á flugfargjöldum eftir fall Play komnar inn í verðbólgumælingar, en Hagstofan mælir flugfargjöld til útlanda 2 vikur, 4 vikur og 8 vikur fram í tímann. Við teljum að flugfargjöld til útlanda hækki á milli mánaða í desember líkt og síðustu ár, en að það dragi úr lækkuninni á  milli ára. Samkvæmt verðmælingu okkur lækkaði verð á bensíni um 1,5% á milli mánaða í desember. Við teljum að verð á nýjum bílum hækki aðeins vegna veikingar á gengi krónunnar. Alls eru áhrif ferðaliðarins 0,14 prósentustig til hækkunar á vísitölunni.

Spá um þróun VNV í desember 2025

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,6% 0,2% 0,03%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,2% 0,00%
Föt og skór 3,7% 2,7% 0,10%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,5% 0,3% 0,03%
Reiknuð húsaleiga 20,6% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,8% 2,2% 0,10%
Heilsa 4,1% 0,0% 0,00%
Ferðir og flutningar (annað) 3,8% 0,0% 0,00%
- Kaup ökutækja 6,1% 0,1% 0,01%
- Bensín og díselolía 3,4% -1,5% -0,05%
- Flugfargjöld til útlanda 2,0% 10,4% 0,19%
Póstur og sími 1,6% 0,1% 0,00%
Tómstundir og menning 10,9% 0,5% 0,05%
Menntun 0,9% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,4% -0,1% -0,01%
Aðrar vörur og þjónusta 5,2% 0,2% 0,01%
Alls 100,0%   0,56%

Spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu næstu mánuði

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% í desember, lækki um 0,14% í janúar, hækki um 0,81% í febrúar og um 0,38% í mars. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 3,9% í desember, 4,0% í janúar og 3,9% í febrúar og mars. Spáin er 0,1-0,2% hærri en fyrri spá sem við birtum daginn sem Hagstofan birti nóvembermælingu vísitölu neysluverðs. Ólíkt þeirri spá gerum við nú ráð fyrir að áhrif tilboðsdaga í nóvember gangi að fullu til baka í desember. Gengi krónunnar hefur lækkað síðan við birtum þá spá en á móti kemur að verðkönnun okkar á bensíni er lægri en við gerðum ráð fyrir þá.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.