Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 15. júní 2026

Erlendum ferðamönnum fjölgaði í maí þrátt fyrir minna flugframboð en utanlandsferðir Íslendinga eru færri. Skráð atvinnuleysi mældist 4,2% í maí.
Vikubyrjun
15. júní 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtir Seðlabankinn gögn um greiðslumiðlun í maí. Sama dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs í maí.
  • Á miðvikudag birtir HMS vísitölu leiguverðs í maí. Þá er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Bandaríkjanna og verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
  • Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu og Ölgerðin birtir afkomutilkynningu. Einnig er vaxtaákvörðun hjá Englandsbanka. 

Mynd vikunnar

Um 164 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í maí, eða 2,7% fleiri en á sama tíma í fyrra. Frá ársbyrjun hafa örlítið fleiri ferðamenn komið til landsins en á fyrstu fimm mánuðum síðasta árs, eða um 0,4% fleiri. Í maí fóru tæplega 59 þúsund Íslendingar til útlanda sem er 11% fækkun á milli ára. Það sem af er ári hefur utanlandsferðum Íslendinga fækkað um 14,5% frá sama tímabili í fyrra. Minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll virðist því hafa lítil áhrif á komu ferðamanna til landsins, en kemur frekar fram sem samdráttur í tengifarþegum og færri utanlandsferðum Íslendinga. Þetta gefur til kynna að eftirspurnarteygni sé ólík eftir markhópum; minni hjá erlendum farþegum en Íslendingum.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 15. júní 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.
Vikubyrjun
27. júlí 2026
Vikubyrjun 27. júlí 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,3% í júlí. Áfram sjást merki um hægagang á fasteignamarkaði en fjölda kaupsamninga um íbúðarhúsnæði hefur fækkað á milli ára á sama tíma og fjöldi íbúða til sölu hefur aukist.
23. júlí 2026
Verðbólga jókst lítillega í júlí
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Að þessu sinni kom enginn undirliður mikið á óvart. Við búumst við að verðbólgan verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði.
Vikubyrjun
20. júlí 2026
Vikubyrjun 20. júlí 2026
Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára, bæði innanlands og erlendis. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði á milli mánaða, aðallega vegna lægra bensínsverðs. 
Vikubyrjun
13. júlí 2026
Vikubyrjun 13. júlí 2026
Ferðamannafjöldinn í júní dróst saman um 4,8% á milli ára og atvinnuleysi mældist 0,6 prósentustigum meira en fyrir ári síðan. Við spáum því að verðbólga í júlí muni mælast óbreytt á milli mánaða og standa í 5,2%.  
8. júlí 2026
Spáum óbreyttri verðbólgu í júlí
Við spáum því að verðbólga mælist 5,2% í júlí. Sumarútsölur og lægra bensínverð hafa áhrif til lækkunar í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda munu aftur á móti hafa mest áhrif til hækkunar gangi spá okkar eftir. Við teljum líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í næsta mánuði.