Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um því að verð­bólga standi í stað í júní

Við spáum því að verðbólga standi í stað í júní og mælist aftur 5,1%. Ferðaþjónustutengdir liðir hækka alla jafna í júní og mun verð á flugfargjöldum til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar, gangi spáin eftir. Við gerum einnig ráð fyrir hækkun á hótelum og veitingastöðum í júnímælingunni. Við gerum ráð fyrir að verðbólga aukist næstu mánuði og teljum nánast öruggt að forsendur kjarasamninga bresti í ágúst.
11. júní 2026

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,81% á milli mánaða í júní og að ársverðbólga standi því í stað og mælist áfram 5,1%. Eldsneytisverð og flugfargjöld hafa áfram mest áhrif á verðbólguþróun næstu mánuði, samkvæmt spá okkar. Lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti í maí olli því að verðbólga hjaðnaði úr 5,2% í 5,1%, en án lækkunar á virðisaukaskatti hefði verðbólga aukist og mælst 5,5%. Úrræðið verður í gildi út ágústmánuð en í september hækkar eldsneytisverð aftur, að öðru óbreyttu. Þróun annarra liða benda til minni verðbólguþrýstings.

Eldsneytisverð breytist lítið í júní en óvissan áfram

Verðbólga lækkaði á milli mánaða í maí, eða úr 5,2% í 5,1%. Lækkunina mátti að stórum hluta rekja til lækkunar á eldsneytisverði þar sem virðisaukaskattur var lækkaður úr 24% í 11%. Eldsneytisverð lækkaði um rétt rúmlega 7% en ef virðisaukaskattur hefði ekki verið lækkaður hefði eldsneytisverð hækkað um tæp 4% og verðbólga mælst 5,5%. Samkvæmt verðathugun okkar hefur eldsneytisverð lítið breyst frá síðustu mælingu Hagstofunnar og hækkar um 0,1%. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið nokkuð stöðugt frá miðjum maí, en þróun næstu mánuði veltur á framvindu mála í átökunum í Mið-Austurlöndum og hvenær opnað verður fyrir skipaumferð um Hormússund.

Flugfargjöld áfram há og hótelgistingar hækka

Flugfargjöld til útlanda hafa verið töluvert dýrari í ár en í fyrra, eða um 18% að meðaltali fyrstu fimm mánuði ársins. Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld verði áfram um 20% dýrari en á sama tíma í fyrra og hækki um 12,6% á milli mánaða í júní. Í júní hækkar verð á flugfargjöldum alla jafna þegar straumur ferðamanna til landsins eykst. Það sama má segja um verð á hótelgistingu, en við gerum ráð fyrir að liðurinn hótel og veitingastaðir hækki um 2,1% á milli mánaða nú í júní. Þessir tveir liðir munu hafa mest áhrif til hækkunar á VNV milli mánaða, gangi spáin eftir.

Húsnæði og matur hækka minna

Verð á mat og drykkjarvörum hefur lækkað á milli mánaða síðustu tvo mánuði og árshækkun matarkörfunnar lækkaði úr 5,8% í mars niður í 4,2% í maí. Við gerum ráð fyrir hóflegri hækkun á matarkörfunni nú í júní, eða um 0,15% á milli mánaða, sem er við lægri mörk mælingar verðlagseftirlits ASÍ, það sem af er mánuðinum.

Við gerum ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% á milli mánaða. Húsnæðisliðurinn er enn sá liður sem skýrir stærstan hluta verðbólgunnar, en framlag hans hefur þó minnkað jafnt og þétt síðustu mánuði. Við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram.

Spá um þróun VNV í maí 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,3% 0,2% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,5% 1,0% 0,04%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,4% 0,03%
Reiknuð húsaleiga 20,7% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,0% 0,7% 0,03%
Heilsa 4,0% 0,4% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 0,8% 0,05%
Kaup ökutækja 4,6% -0,1% 0,00%
Bensín og díselolía 2,7% 0,1% 0,00%
Flugfargjöld til útlanda 2,9% 12,6% 0,32%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% 0,3% 0,01%
Afþreying, íþróttir og menning 9,0% 0,5% 0,05%
Menntun 1,0% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,6% 2,1% 0,12%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,7% 0,01%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,5%

0,02%

Alls 100,0%   0,81%

Gerum ráð fyrir að verðbólga aukist næstu mánuði

Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan hækki um 0,81% í júní, 0,51% í júlí, 0,08% ágúst og lækki síðan um 0,03% í september. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,1% í júní, 5,3% í júlí, 5,5% í ágúst og 5,4% í september. Spáin er aðeins hærri en síðasta spá sem við birtum í kjölfar þess að Hagstofan birti verðbólgutölur í maí. Munurinn skýrist nær eingöngu af því að verðkönnun okkar á bensíni var hærri en við gerðum ráð fyrir í síðustu spá, auk þess sem við gerum nú ráð fyrir að olíuverð haldist hærra lengur.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.