Vikan framundan
- Í dag birtir Hagstofan vísitölu launa.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir nóvember, við spáum að verðbólgan hækki í 6,0%. Hagstofan birtir gistinætur og Ísfélagið birtir uppgjör.
- Á föstudag birtir Hagstofan gögn um vöru- og þjónustuviðskipti á þriðja ársfjórðungi.
Mynd vikunnar
Heildarfjöldi starfa hér á landi stendur í stað. Þrátt fyrir það er hreyfing á vinnumarkaði: störfum fjölgar í sumum atvinnugreinum en fækkar í öðrum. Seðlabankinn birti í síðustu viku, í Peningamálum, útreikning á svokölluðu tilfærsluhlutfalli starfa sem mælir þessa hreyfingu á milli atvinnugreina. Því hærra sem hlutfallið er, þeim mun meiri er samtímis fjölgun og fækkun starfa í ólíkum atvinnugreinum. Hlutfallið hefur hækkað frá 2023 og er nú svipað og eftir fjármálakreppuna. Það bendir til kólnunar, en þó jafnframt að fjölgun starfa í einhverjum greinum vegur á móti fækkun í öðrum.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum, í samræmi við væntingar. Ákvörðunin var einróma og tónninn að okkar mati mildur. Ljóst er að nefndin hefur vaxandi áhyggjur af kólnandi hagkerfi.
- HMS birti vístölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu. Árshækkun íbúðaverðs hækkaði úr 1,8% í 2,1% en árshækkun leiguverðs lækkaði úr 3,2% i 1,8%. Október er fyrsti mánuðurinn í rúmlega þrjú ár sem að árshækkun íbúðaverðs er meiri en árshækkun leiguverðs.
- Greiðslukortavelta jókst um 2,7% á milli ára að teknu tillit til verðbólgu og gengi í október. Áfram er mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis á sama tíma og samdráttur mælist innanlands. 26% af veltu fór fram erlendis og hefur aldrei mælst hærra.
- Kjaratölfræðinefnd birti haustskýrslu.
- Brim, Hampiðjan, Iceland Seafood, Kaldalón, Síldarvinnslan birtu uppgjör. Hlutabréf í Bláa Lóninu voru tekin til viðskipta í kauphöllinni. Icelandair undirritaði kjarasamning við flugvirkja og samþykkti frestun á verkfalli flugmanna. Ásar gengu frá kaupum á Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands.
- Eimskip, Heimar, Lánamál ríkisins, Reitir og Reykjavíkurborg seldu skuldabréf. Fossar og Hagar seldu víxla.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










