Litlar verðhækkanir bæði á íbúða- og leigumarkaði

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,35% á milli mánaða í október eftir að hafa hækkað um rúmlega 1% á milli mánaða í september. Árshækkun íbúðaverðs mældist 2,1% í október samkvæmt nýjustu gögnum HMS og fylgir því áfram svipaðri þróun og á síðustu mánuðum.
Raunverð lækkar
Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað þó nokkuð minna en verðbólga, sem þýðir að raunverð íbúða hefur lækkað og er nú 3,5% lægra en á sama tíma í fyrra. Raunverð hefur dregist samfellt saman á milli ára tólf mánuði í röð. Raunverð fæst með því að líta til íbúðaverðs að teknu tilliti til verðbólgu og notum við vísitölu neysluverðs án húsnæðis til þess. Raunverð lækkar þannig á milli ára ef árshækkun íbúðaverðs er minni en samsvarandi hækkun á vísitölu neysluverðs án húsnæðis.
Hækkanir svipaðar á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni
Íbúðaverð bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni hækkaði lítillega á milli mánaða í október. Undirvísitölurnar sveiflast oftast meira á milli mánaða en vísitalan í heild. Þegar litið er á ársbreytingu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og á landsbyggðinni hins vegar sést að verðið hefur þróast nokkuð í takt síðustu misseri.
Velta á íbúðamarkaði minni það sem af er ári
Velta á íbúðamarkaði er töluvert minni fyrstu tíu mánuði ársins en á sama tíma í fyrra, en alls voru um 880 kaupsamningar undirritaðir í október. Undirrituðum kaupsamningum fækkaði um 20% á milli ára í október. Kaupsamningar um íbúðarhúsnæði hafa verið færri en sömu mánuði í fyrra hvern einasta mánuð það sem af er ári.
Leiguverð lækkar þriðja mánuðinn í röð
Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,23% á milli mánaða í október og er þetta þriðji mánuðurinn í röð þar sem vísitalan lækkar á milli mánaða. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,8%. Síðustu ár hefur hækkunartaktur leiguverðs verið nokkuð meiri en íbúðaverðs, en október er fyrsti mánuðurinn í rúmlega þrjú ár þar sem árshækkun íbúðaverðs er meiri en árshækkun leiguverðs.
Til lengri tíma ættu leiguverð og íbúðaverð að fylgjast nokkurn veginn að. Frá 2020 og árin eftir faraldurinn hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu töluvert meira en leiguverð og það myndaðist nokkuð stórt bil. Frá 2023 hefur leiguverð aftur á móti hækkað hlutfallslega meira en íbúðaverð og bilið hefur því minnkað eitthvað.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.









