Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Svip­að­ur fjöldi ferða­manna en breytt sam­setn­ing

Aðeins fleiri erlendir ferðamenn komu til landsins í október í ár en í fyrra. Fjöldi ferðamanna er áfram mjög svipaður milli ára, þrátt fyrir minna flugframboð. Ferðamönnum frá Kína og Kanada hefur fjölgað töluvert á sama tíma og Bretum hefur fækkað. Við gerum áfram ráð fyrir hóflegum vexti í ferðaþjónustunni á næsta ári.
24. nóvember 2026

Tæplega tvær milljónir ferðamanna hafa heimsótt landið það sem af er ári, eða aðeins um 0,5% færri en á sama tíma í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu, þrátt fyrir talsvert minna flugframboð. Samkvæmt verðmælingum Hagstofunnar hafa flugfargjöld verið töluvert hærri í ár en í fyrra, eða að meðaltali 23%. Í október mældust flugfargjöld um 28% hærri en á sama tíma í fyrra. Mæling Hagstofunnar miðast þó við utanlandsferðir Íslendinga og endurspeglar ekki nákvæmlega þau fargjöld sem erlendir ferðamenn greiða fyrir flug til Íslands.

Minna framboð og hærra verð hefur þó ekki haft teljandi áhrif á komur ferðamanna til landsins. Kortavelta ferðamanna í október jókst um 6,3% á milli ára á föstu gengi en á föstu verðlagi dróst hún saman um 1,5%. Ferðamenn eru því að eyða meira í sínum gjaldeyri en fá minna af vörum og þjónustu fyrir peningana. Það sem af er ári hefur kortavelta ferðamanna einnig aukist á föstu gengi en dregist saman leiðrétt fyrir verðlagi.

Samsetning ferðamanna hefur tekið nokkrum breytingum

Bandaríkjamenn eru stærsti einstaki hópur ferðamanna sem kemur til Íslands, eða rétt tæplega þriðjungur og það hlutfall hefur lítið breyst síðustu ár. Hlutfall ferðamanna frá Kína og Kanada af heildarfjölda ferðamanna hefur aftur á móti aukist töluvert ef við berum árið í ár saman við síðustu ár. Á móti hefur hlutfall breskra ferðamanna minnkað töluvert. Fjöldi kínverskra ferðamanna það sem af er ári er nú örlítið minni en á öllu árinu í fyrra, en þeim hefur fjölgað töluvert á allra síðustu mánuðum.

Ferðamannfjöldi svipaður en tengifarþegar færri

Í október fóru 1,2% fleiri farþegar um Keflavíkurflugvöll en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum Isavia. Er þetta fyrsti mánuðurinn þar sem fjölgun mælist á milli ára. Október er líka fyrsti mánuðurinn í ár þar sem starfsemi Play hefur ekki áhrif á samanburðinn við fyrra ár. Frá áramótum hefur heildarumferð um Keflavíkurflugvöll dregist saman um 7% samkvæmt fyrrnefndum tölum Isavia. Samdrátturinn á milli ára skýrist af færri utanlandsferðum Íslendinga og mikilli fækkun tengifarþega.

Áfram horfur á hóflegum vexti á næsta ári

Í hagspánni sem við birtum í október gerðum við ráð fyrir að ferðaþjónusta myndi dragast saman um 3,6% í ár, bæði vegna minni neyslu ferðamanna að raunvirði og samdráttar í flugframboði til og frá landinu. Í tölum Hagstofunnar um útflutning tengdan ferðaþjónustu eru tveir liðir sem saman eiga að ná yfir ferðaþjónustuútflutning: Ferðalög, sem lýsa neyslu erlendra ferðamanna hér á landi, og farþegaflutningar með flugi, sem lýsa tekjum innlendra flugfélaga af erlendum farþegum.

Ferðalagaliðurinn hefur aldrei mælst stærri að raunvirði en í fyrra, þrátt fyrir að fjöldi ferðamanna hafi ekki náð sama metfjölda og árið 2018. Útflutningstekjur af farþegaflutningum með flugi hafa aftur á móti gefið eftir á föstu verðlagi. Í fyrra voru tekjurnar aðeins lægri en árið 2013, þegar ferðamenn voru aðeins 807 þúsund.

Á næsta ári eru horfur á því að flugframboð taki við sér. Við gerum ráð fyrir að aukið flugframboð hafi hlutfallslega meiri áhrif á fjölda tengifarþega en á fjölda ferðamanna, sem við gerum þó ráð fyrir að verði aðeins fleiri á næsta ári en í ár. Við gerum því ráð fyrir að stærri hluti vaxtar í ferðaþjónustuútflutningi á næsta ári komi frá farþegaflutningum með flugi.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
24. nóv. 2026
Litlar verðhækkanir bæði á íbúða- og leigumarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,35% á milli mánaða í október og mælist árshækkun vísitölunnar nú 2,1%. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3,5% á milli ára og velta hefur dregist saman. Það er einnig rólegt á leigumarkaði, en nú mælist 1,8% hækkun á milli ára og í fyrsta skipti í rúmlega þrjú ár mælist minni árshækkun á leiguverði en íbúðaverði. Það er því afar lítið um að vera bæði á íbúða- og leigumarkaði.
Vikubyrjun
23. nóv. 2026
Vikubyrjun 23. nóvember 2026
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Ákvörðunin var einróma og tónninn að okkar mati mildur. HMS birti vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu. Á fimmtudaginn birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir nóvember.
Stýrivextir
18. nóv. 2026
Óbreyttir vextir í samræmi við væntingar
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í morgun og var ákvörðunin einróma. Tónninn var að okkar mati mildur og er ljóst að nefndin hefur vaxandi áhyggjur af kólnandi hagkerfi. Enn er þó lögð áhersla á að verðbólga og verðbólguvæntingar séu langt yfir markmiði. Gangi verðbólguspár eftir gerum við ráð fyrir að nefndin geti lækkað vexti í febrúar.
17. nóv. 2026
Íslendingar auka erlenda neyslu sína
Kortavelta Íslendinga jókst um 2,7% á milli ára í október að raunvirði. Áfram er mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis á sama tíma og samdráttur mælist innanlands. Við spáum því að einkaneysla aukist lítið í ár en taki síðan smám saman við sér.
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.