Verðbólga lækkar í 5,8%

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,54% á milli mánaða í nóvember og verðbólga hjaðnaði í 5,8%. Lækkun á flugfargjöldum til útlanda hafði langmest áhrif til lækkunar í mánuðinum. Tilboðsdagar lituðu mælinguna en áhrifin voru aðeins minni en í nóvember í fyrra. Við gerum ráð fyrir að þau áhrif gangi til baka í næsta mánuði. Lækkunin á milli mánaða var meiri en við spáðum en hún skýrist mikið til af flugfargjöldum, sem er sveiflukenndur liður og lýsir ekki endilega undirliggjandi verðþrýstingi. Spá okkar til næstu mánaða er því að mestu óbreytt.
Flugfargjöld til útlanda lækkuðu verðbólgu
Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkar alla jafna í nóvember. Í fyrra lækkuðu flugfargjöld um rúmlega 14% og við spáðum því að þau myndu lækka um 15% á milli mánaða í ár. Mæling Hagstofunnar sýndi tæplega 22% lækkun. Það þýðir að flugfargjöld eru um 17% hærri í nóvember í ár en í sama mánuði í fyrra. Til samanburðar voru þau 28% hærri í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Við gerum ráð fyrir að árshækkun flugfargjalda gefi eftir á næstu mánuðum, að mestu vegna grunnáhrifa þar sem flugfargjöld byrjuðu að hækka töluvert frá desember í fyrra.
Aðrir liðir
- Áhrif tilboðsdaga í nóvember höfðu minni áhrif en í fyrra, þó misjafnt eftir vöruflokkum. Verð á fötum og skóm lækkaði meira en í fyrra, eða um 3,4% borið saman við 2,7% í fyrra. Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði aftur á móti aðeins um 1% en í fyrra var lækkunin 2,1%. Áhrifin nú voru því samanlagt minni en í fyrra og við gerum ráð fyrir að þau gangi til baka í desember.
- Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,51%, eða nákvæmlega jafn mikið og í nóvember í fyrra. Liðurinn hefur því ekki áhrif á breytingu ársverðbólgu í mánuðinum. Allra síðustu mánuði hefur hægt á hækkunum á liðnum í takt við mælingar á öðrum íbúða- og leiguverðsvísitölum. Við breytum því ekki spá okkar og gerum áfram ráð fyrir að liðurinn hækki um 0,4% á næstu mánuðum.
- Verð á matarkörfunni lækkaði um 0,25% í nóvember. Sterkt gengi síðustu mánuði og átak í frystingu vöruverðs gæti verið að endurspeglast í mælingunni.
- Við gerðum ráð fyrir að verð á nýjum bílum myndi hækka um 2% vegna lækkunar á rafbílastyrk sem tók gildi í byrjun mánaðar. Verð nýrra bíla hækkaði þó aðeins um 1%. Verð nýrra bíla hefur lækkað eða staðið í stað flesta mánuði ársins eftir mikla hækkun í janúar.
- Eldsneytisverð hækkaði einnig minna en við höfðum spáð, eða um 1,5% en ekki 2% eins og spáin gerði ráð fyrir. Samkvæmt verðkönnun okkar hefur verð á eldsneyti lækkað um 1,8% frá verðsöfnunarvikunni. Spá okkar er því óbreytt og gerir ráð fyrir því að eldsneytisverð fari lækkandi í næstu mælingum.
Spáum því að verðbólga fari niður fyrir 5% í febrúar
Við gerum nú ráð fyrir að vísitalan hækki um 1,03% í desember, um 0,19% í janúar og um 0,77% í febrúar. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 5,7% í desember, 5,1% í janúar og 4,9% í febrúar. Þrátt fyrir að nóvembermælingin hafi sýnt meiri lækkun á vísitölunni á milli mánaða en við spáðum, er nær engin breyting á spá okkar til næstu mánaða. Meiri lækkun í mánuðinum en við spáðum skýrist, sem fyrr segir, helst af flugfargjöldum sem er sveiflukenndur liður. Við gerum nú ráð fyrir að flugfargjöld verði aðeins lægri en í síðustu spá, en þó breytir það ekki heildarmyndinni.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.









