Vikan framundan
- Á föstudaginn birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll í júní og Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi í júní.
- Í vikunni fara fram verðmælingar vegna júlímælingar á vísitölu neysluverðs.
Mynd vikunnar
Nýlega voru gerðar breytingar á lögum um lífeyrissjóði þar sem að fjárfestingarheimildir þeirra voru rýmkaðar þar sem lagt er meira upp úr svokallaðri skynsemisreglu og dregið úr magnbundnum takmörkunum á fjárfestingar. Íslendingar greiða um 90 ma.kr. á ári meira inn í kerfið í gegnum iðgjöld en er verið að greiða út á ári í lífeyrisgreiðslur. Lífeyrissjóðirnir þurfa að ráðstafa þessu fjármagni með hagkvæmum hætti til þess að geta staðið undir framtíðar lífeyrisskuldbindingum sínum.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Alls voru gistinætur á hótelum 432 þúsund í maí, sem er 0,9% fjölgun milli ára. Um 87% gistnótta voru vegna erlendra ferðamanna og fjölgaði þeim um 1,8% milli ára meðan gistinóttum Íslendinga hér á landi fækkaði um 4,4%.
- Seðlabankinn birti fundargerð frá síðasta fundi fjármálastöðugleikanefndar.
- Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 4,2% í júní. 27 þúsund ný störf urðu til í mánuðinum, sem er mun minna en búist var við.
- Verðbólga á evrusvæðinu mældist 2,8% í júní. Verðbólga lækkaði milli mánaða og var undir væntingum.
- Hagar (fjárfestakynning) birtu uppgjör fyrir tímabilið mars-maí. Styrkás endurfjármagnaði bankalán sín og réði ráðgjafa vegna skráningar í kauphöllina. Festi sendi frá sér tilkynningu um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Kaldalón tilkynnti um framkvæmd endurkaupaáætlunar og úthlutun kauprétta.
- Landsbankinn hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum ásamt skiptiútboði. Lánamál ríkisins héldu útboð ríkisbréfa og birtu ársfjórðungsáætlun.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










