28. júlí 2025
Vikan framundan
- Á þriðjudag birtir Festi uppgjör.
- Á miðvikudag birtir Hagstofan gögn yfir gistinætur í júní, Arion banki birtir uppgjör og Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnir um vaxtaákvörðun.
- Á fimmtudag birtir Íslandsbanki uppgjör.
- Á föstudag verða birtar atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum og verðbólgutölur fyrir evrusvæðið.
Mynd vikunnar
Á síðustu tólf mánuðum (júlí 2024 til júní 2025), fjölgaði fyrirtækjum í einkennandi greinum ferðaþjónustu um tæplega 170. Heldur hefur dregið úr fjölguninni, en á 12 mánuðum þar á undan (júlí 2023 til júní 2024) fjölgaði þeim um tæplega 240.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,32% á milli mánaða í júlí og við það hjaðnaði verðbólga úr 4,2% í 4,0%. Verðbólga þróaðist í samræmi við væntingar, en við spáðum 0,26% hækkun VNV á milli mánaða og 4,0% verðbólgu. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu meira en við gerðum ráð fyrir, reiknuð húsaleiga hækkaði minna og sumarútsölur á fötum og skóm voru lakari. Við teljum ekki horfur á að verðbólga fari aftur niður fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands í ár, heldur haldist á bilinu 4,0% til 4,3% út árið.
- Vísitala launa hækkaði um 0,4% á milli mánaða í júní og árshækkun vísitölunnar fór úr 8,3% í 8,2%. Laun hafa því hækkað langt umfram verðlagshækkanir.
- Hagstofan birti talnaefni um nýskráningu og gjaldþrot fyrirtækja á 2. ársfjórðungi.
- Seðlabanki Evrópu hélt vöxtum óbreyttum. Ákvörðunin var samþykkt einróma og var í samræmi við væntingar.
- Play birti afkomuviðvörun. Arion banki og Kvika banki sendu frá sér sameiginlega tilkynningu um framvindu samrunaferlisins.
- Lánamál ríkisins tilkynntu um niðurstöðu viðbótarútgáfu.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

9. nóv. 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.

5. nóv. 2026
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.

4. nóv. 2026
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.

2. nóv. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

2. nóv. 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september.

29. okt. 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.

26. okt. 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.

21. okt. 2026
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.

19. okt. 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.

19. okt. 2026
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
