27. desember 2021 - Greiningardeild
Vikan framundan
- Á fimmtudag birta Lánamál ríkisins ársáætlun fyrir 2022 og ársfjórðungsáætlun fyrir 1. ársfjórðung sama árs.
Mynd vikunnar
Þrjú mest streymdu lögin hér á landi á Spotify á aðfangadag voru All I want for Christmas is you með Mariah Carey, Last Chrismas með Wham! og It's beginning to look a lot like Christmas með Michael Bublé. Þar á eftir koma 6 íslensk jólalög, Snjókorn falla með Ladda er mest streymda íslenska jólalagið og jafnframt fjórða mest streymda lagið.
Efnahagsmál
- Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,45% milli mánaða í desember og mælist verðbólgan 5,1% samanborið við 4,8% í nóvember. Þetta var meiri hækkun milli mánaða en við áttum von á, en við höfðum spáð 0,3% milli mánaða. Verðbólgan er nú 1,5 prósentustig hærri en í desember 2020.
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% milli mánaða í nóvember og er árshækkun vísitölunnar 17%. Þetta er er minnsta hækkun milli mánaða síðan í júlí. Fjölbýli hækkaði um 1% milli mánaða í nóvember og sérbýli lækkaði um 0,5%. Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,2% milli mánaða og er árshækkun leiguverðs mun lægri en árshækkun íbúðaverðs, eða 3,4%.
- Launavísitalan hækkaði um 0,3% milli mánaða í nóvember samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Síðustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,5%, sem er svipaður árstaktur og verið hefur síðustu mánuði.
- Heildarfjöldi greiddra gistinótta í nóvember var 362.000 sem er 24% minna en í nóvember 2019. Tæplega 70% greiddra gistinótta í nóvember voru á hótelum. Um fjórðungur gistinótta var vegna Íslendinga.
- Seðlabanki Íslands birti Hagvísa í síðustu viku.
- Hagstofan birti einnig: mannfjöldaspá til 2070, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum fyrir tímabilið sept.-okt., vísitölu byggingarkostnaðar í janúar 2022 og niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir nóvember.
Fjármálamarkaðir
- Lánamál ríkisins hættu við fyrirhugað útboð ríkisvíxla í síðustu viku.
- Skeljungur samþykkti skilmálaskjal og viljayfirlýsingar vegna sölu fasteigna.
- Kvika banki tilkynnti um nýtingu afskriftaréttinda og hækkun hlutafjár.
- Eimskip birti afkomuviðvörun.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

20. apríl 2026
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.

20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.

17. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.

16. apríl 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.

13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.

1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.

26. mars 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.

23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.

16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
